Kona með spegil Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar 23. september 2026 12:04 Fyrir síðustu Alþingiskosningar lyftu allir nema tveir fulltrúar stjórnmálaflokka upp fánum og sögðust vera andvígir sjókvíaeldi í Seyðisfirði. Allir flokkar í ríkisstjórn nú lyftu fánum. Þau reyna að segja okkur að þau hafi gert allt sem þau gátu. Sjókvíaeldið var samt sem áður ekki nema hugmynd í strandsvæðaskipulagi og umsóknir frá fyrirtækinu til fagstofnanna okkar. Stofnanirnar hafa allar fengið æði mikið af athugasemdum og ábendingum um ástæður til að hafna leyfunum. Samt hrannast leyfin upp og ráðherrar eru alveg miður sín, eins og kaffikerlingar á Mokka sem heyra sorglega kjaftasögu. Völdum fylgir ábyrgð, en stundum, þegar ábyrgðin fer að verða óþægileg er eins og völdin hverfi bak við ský. Pólitíkusum þykir betra að tala um ábyrgð framtíðarinnar. Það verða ekki nema örfá vindorkuver. En vindorkuverin sem eru einhversstaðar í skipulagsferli eru yfir 40. Sum hver í ekki ólíkri stöðu og sjókvíaeldi í seyðisfirði var fyrir tveimur árum. Ég vona að ráðherrar koðni ekki niður í áðurnefndar kaffikerlingar þegar samfélagið streitist á móti vindorkuverum í framtíð og nútíð. Við ætlum að ná árangri í loftslagsmálum Nýjar losunartölur og framreikningar um losun gróðurhúsalofttegunda gefa ekki mikla von um að Ísland standi við skuldbindingar sínar. Sigurpáll hjá Hellnaskeri rýnir vel í stöðuna í grein sinni Samdráttur í losun Íslands en ekki kerfisbreyting. “Afstaða mín er sú að stjórnvöld þurfi því að fjárfesta í raunverulegum og mælanlegum samdrætti: hætta við fyrirhugaðan 3,2 milljarða niðurskurð til Loftslags- og orkusjóðs, beina tekjum af ETS í loftslagsaðgerðir í stað þess að afsala þeim, hefja þjóðarátak í verndun og endurheimt votlendis og setja mælanlega samdráttaráætlun fyrir vegasamgöngur sem sameinar rafvæðingu, öflugar almenningssamgöngur og virka ferðamáta. Sú nálgun er í anda Project Drawdown: að beita mörgum sannreyndum lausnum samtímis í stað þess að treysta á eina tæknilausn. “ En ráðherra freistar þess að varpa ábyrgðinni yfir á bílaleigurnar. Og bílaleigurnar varpa ábyrgðinni á ferðamennina sjálfa. Ábyrgðin er orðin óþægileg, mögulega þarf að grípa til harðari aðgerða en enginn vill gera það. Eitt sinn boðaði aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar stigvaxandi rafbílahlutfallsskyldu á bílaleigur. Fallið var frá því. Í staðin var farið í mýkri aðgerðir, skattaafslætti á rafbíla og hækkaða skatta á bensínbíla. Á sama tíma kom kílómetragjaldið og bensín lækkaði á dælu. Samspil þessara aðgerða allra óljós þoka í framtíðinni. Bækurnar sem mig langar til að hafa lesið Ég fór í góða hirðinn um daginn og hitti vin minn. Hann var að kaupa bækur sem hann sagðist ekki endilega myndu lesa. Sagði bókahilluna ekki endurspegla hver hann er í raun og veru heldur þann mann sem hann langaði til að vera. Mér finnst íslensk stjórnmál endurspegla það sama. Bókahillan full af titlum um að fá ekki sjókvíaeldi í Seyðisfjörð, fá aðeins 1-3 vindorkuver í mesta lagi á Íslandi, ná 41% samdrætti í samfélagslosun og fara fram úr væntingum í samdrætti og bindingu á landi. En raunveruleikinn er annar. Þau virðast þurfa mikla hvatningu frá almenningi til að stappa niður fæti. Og stundum gera þau það. Hanna Katrín Friðriksson stappaði niður fæti fyrir almenning þegar hún hækkaði veiðigjöldin og hún ætlar að gera það aftur og banna hvalveiðar. Slíkt þarf hugrekki og mikilvægt að fagna þegar ráðherrar gera slíkt. Vonandi verður það hvatning til frekara hugrekkis, svo við getum nú öll horft í spegilinn í stað bókahillunnar. Höfundur er formaður Landverndar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þorgerður María Þorbjarnardóttir Mest lesið Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson Skoðun Skoðun Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson skrifar Skoðun Gervigreindin sparar tíma og peninga Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Skoðun Landsvirkjun ætti að fjárfesta í íslensku reikniafli Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvar lendir sleggjan næst? Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Gaur! Vertu töffari! Sveinn Waage skrifar Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason skrifar Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Sameining lögregluumdæma – Tækifæri fyrir Búðardal Guðbrandur Tumi Gíslason skrifar Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Einkunnakerfi í öngstræti Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Ekki einu sinni Margrét Einarsdóttir getur fullyrt það Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ég gerði tilraun til lýðræðislegrar uppreisnar í VG Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Við getum í rauninni ekki tapað Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Skaðaminnkun í sautján ár – og þörfin enn mikil Sóley Kristín Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Verður Grensásvegur hjarta tónlistar í Reykjavík? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Aðför að ferðaþjónustunni Helgi Kjartansson skrifar Skoðun Farsæld barna verður ekki tryggð án fjármagns Jóhanna Erla Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson skrifar Skoðun Reykjavík beygir af Brynhildur Bolladóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar
Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar
Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar
Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar
Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar