Hver sat við borðið? Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar 23. september 2026 09:00 Samráð er fallegt orð sem er mikið notað um þessar mundir en hvað þýðir það að viðhafa raunverulegt samráð? Samkvæmt lögum er skylda að hafa samráð við fatlað fólk þegar fjallað er um þeirra málefni. Í því samhengi er ekki nóg að spyrja fatlað fólk hvað því finnist þegar tillögur um þeirra réttindi eru nánast tilbúnar, en slík vinnubrögð eru því miður allt of algeng. Til þess að samráð skili árangri þarf fatlað fólk að geta haft áhrif á það sem verið er að móta en ekki eingöngu fengið að gera athugasemdir við niðurstöðuna. Þess vegna leikur mér forvitni á að vita hver sátu við borðið þegar drög að stefnumörkun Sambands íslenskra sveitarfélaga fyrir árin 2026–2030 voru unnin en í þeim má finna mikla og alvarlega stefnubreytingu t.d. hvað varðar NPA. Drögin verða tekin fyrir á landsþingi Sambandsins sem hefst í dag á Akureyri og mun þingið standa yfir dagana 23.–25. september. Í drögunum er meðal annars lagt til að Sambandið beiti sér fyrir heildarendurskoðun laga nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk og endurskoðun reglugerðar um notendastýrða persónulega aðstoð, NPA. NPA þjónusta er grundvöllur að sjálfstæðu lífi fatlaðs fólks og snýst um hversdagslegustu hluti lífsins. Hvenær við förum á fætur. Hvort við komumst í vinnu eða nám, getum hitt vini og farið út þegar við sjálf viljum eða jafnvel bókstaflega hvort maður geti farið í bað eða á klósettið þegar maður þarf á því að halda. Ákvörðun um að breyta lögum og reglum um NPA, felur í sér ákvörðun um það hvort við, fatlað fólk, stjórnum eigin lífi eða þurfum að laga lífið að skipulagi þjónustukerfisins. Samráð skiptir öllu Ég tók þátt í vinnu við setningu laga nr. 38/2018 og síðar vinnu við endurskoðun þeirra. Ég hef líka komið að gerð reglugerða, reglna sveitarfélaga og gerð leiðbeininga og handbóka, meðal annars um NPA. Sú reynsla hefur kennt mér að það er mikill munur á því annars vegar að sitja við borðið meðan enn er verið að ræða hvað eigi að gera og því hins vegar að fá nær tilbúinn texta sendan til umsagnar. Á því stigi í vinnuferlinu er vinnan komin of langt á veg og eingöngu hægt að bregðast við því sem aðrir hafa mótað, þó að maður hefði kannski viljað byrja á allt öðrum spurningum við upphaf vinnunnar. Svona týnast tækifæri til að skoða heildarmyndina út frá öllum hliðum. Hvar er fatlaða fólkið? Ég hef ekki séð opinberar upplýsingar um aðkomu samtaka fatlaðs fólks að drögum Sambandsins. Ég sé heldur ekki að opnað hafi verið sérstakt umsagnar- eða samráðsferli þar sem samtökum er boðið að koma að vinnu við drögin áður en þau verða borin undir landsþingið. Ég ætla ekki að fullyrða að ekkert samráð hafi farið fram en miðað við efni draganna finnst mér það ólíklegt og þegar verið er að móta stefnu sem hefur bein áhrif á réttindi fatlaðs fólks á ekki að þurfa að leita að þátttöku þess milli línanna. Árið 2018 skrifuðum við Katrín Oddsdóttir, lögfræðingur, grein um samráðsskyldu við fatlað fólk sem bar yfirskriftina „Við þurfum að mennta kerfið“. Átta árum síðar ættum við að vera komin lengra en svo að þurfa enn að spyrja hvort fatlað fólk hafi verið með í ráðum þegar stefna um þess eigið líf var mótuð. Við ættum heldur ekki að þurfa að skrifa grein (sem birtist í gær) um skort á samráði við fatlað fólk við gerð draga um stefnumörkun Sambands íslenskra sveitarfélaga. Samráðsskylda samkvæmt lögum Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks hefur nú lagagildi á Íslandi. Hann kveður á um virka þátttöku fatlaðs fólks og náið samráð við það þegar lög og stefna sem varða fatlað fólk eru mótuð, t.d. með aðkomu fulltrúa samtaka fatlaðs fólks. Þetta er ekki aðeins réttlætismál heldur einnig gæðamál því aukið samráð skilar betri, skynsamlegri og hagstæðari niðurstöðum. Samband íslenskra sveitarfélaga er ekki Alþingi eða ráðuneyti og stefnumörkun þess er ekki löggjöf. Sambandið mótar samt sameiginlega pólitíska stefnu sveitarfélaga sem bera víðtæka ábyrgð á þjónustu og réttindum fatlaðs fólks um allt land. Við, fatlað fólk, eigum að koma að þeirri vinnu. Samráð felur ekki í sér neitunarvald. Sveitarfélög og fatlað fólk geta vel verið ósammála þrátt fyrir gott samráð en ef samráð er tryggt þá fá í öllu falli sjónarmið allra og reynsluheimur fatlaðs fólks að koma fram. Krefjist svara á landsþinginu Þið sem sækið landsþingið þurfið að fá svör áður en þið takið afstöðu til stefnumörkunar Sambandsins. Hverjir komu að mótun þeirra hluta stefnumörkunarinnar sem fjalla um fatlað fólk? Hvaða samtök fatlaðs fólks tóku þátt? Á hvaða stigi komu þau inn í vinnuna? Hvaða áhrif höfðu sjónarmið fatlaðs fólks á stefnumörkunina? Við eigum ekki að þurfa að giska á hvort fatlað fólk hafi fengið sæti við borðið þegar verið er að móta stefnu um okkar eigið líf. Birtið hverjir komu að mótun stefnumörkunar Sambands íslenskra sveitarfélaga. Höfundur er formaður NPA miðstöðvarinnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Rúnar Björn Herrera Þorkelsson Tengdar fréttir Við þurfum að mennta kerfið Ætli það færi framhjá einhverjum ef Alþingi ætlaði að setja lög um kvóta án þess að tala við Samtök útgerðarmanna? 30. maí 2018 07:00 NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Í drögum Sambands íslenskra sveitarfélaga að stefnumörkun fyrir árin 2026–2030 er lagt til að Sambandið beiti sér fyrir endurskoðun NPA-reglugerðarinnar: „með áherslu á að NPA samningar nýtist notendum sem eru í námi, atvinnu og virkir í félagslegri þátttöku.“ 22. september 2026 12:04 Mest lesið Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson Skoðun Skoðun Skoðun Seðlabankastjóri kominn í bakkgírinn Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson skrifar Skoðun Gervigreindin sparar tíma og peninga Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Skoðun Landsvirkjun ætti að fjárfesta í íslensku reikniafli Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvar lendir sleggjan næst? Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Gaur! Vertu töffari! Sveinn Waage skrifar Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason skrifar Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Sameining lögregluumdæma – Tækifæri fyrir Búðardal Guðbrandur Tumi Gíslason skrifar Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Einkunnakerfi í öngstræti Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Ekki einu sinni Margrét Einarsdóttir getur fullyrt það Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ég gerði tilraun til lýðræðislegrar uppreisnar í VG Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Við getum í rauninni ekki tapað Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Skaðaminnkun í sautján ár – og þörfin enn mikil Sóley Kristín Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Verður Grensásvegur hjarta tónlistar í Reykjavík? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Aðför að ferðaþjónustunni Helgi Kjartansson skrifar Skoðun Farsæld barna verður ekki tryggð án fjármagns Jóhanna Erla Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson skrifar Sjá meira
Við þurfum að mennta kerfið Ætli það færi framhjá einhverjum ef Alþingi ætlaði að setja lög um kvóta án þess að tala við Samtök útgerðarmanna? 30. maí 2018 07:00
NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Í drögum Sambands íslenskra sveitarfélaga að stefnumörkun fyrir árin 2026–2030 er lagt til að Sambandið beiti sér fyrir endurskoðun NPA-reglugerðarinnar: „með áherslu á að NPA samningar nýtist notendum sem eru í námi, atvinnu og virkir í félagslegri þátttöku.“ 22. september 2026 12:04
Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar
Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar
Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar
Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar
Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar