Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Aron Guðmundsson skrifar 22. september 2026 11:17 Gary Lineker er ekki aðdáandi eigenda Manchester United, Glazer-fjölskylduna og Sir Jim Ratcliffe Vísir/Getty Gary Lineker, fyrrverandi atvinnu- og landsliðsmaður í fótbolta og núverandi sparkspekingur, fór hörðum orðum um Íslandsvininn Sir Jim Ratcliffe sem er einn af eigendum enska úrvalsdeildarfélagsins Manchester United.
Ratcliffe keypti hlut í Manchester United í febrúar árið 2024 og vonuðust stuðningmenn félagsins til þess að með því myndu fylgja bjartari tímar. Ekki hefur hins vegar tekist að snúa gengi liðsins við síðan þá og vonbrigði í upphafi yfirstandandi tímabils urðu til þess að Lineker tætti í raun Ratcliffe og stöðuna hjá Manchester United í sig í nýjasta þætti The Rest is Football hlaðvarpsins. „Ég horfi á Manchester United og sé bara vandamál sem koma að ofan,“ sagði Lineker en yfir lengri tíma hefur mikil óánægja stuðningsmanna félagsins beinst að meirihlutaeigendum Manchester United, Glazer-fjölskyldunni. „Ég verð að óska Glazer-fjölskyldunni til hamingju með að hafa fundið einhvern enn verri en þá sjálfa sem þau geta kennt um og fengið hann inn til að taka alla gagnrýnina: Jim Ratcliffe. Ég held að hann sé ekki sérstaklega þægilegur einstaklingur og þetta er svolítil ringulreið hjá fótboltaklúbbnum eins og hann er rekinn um þessar mundir. Þannig að vel gert hjá Glazer-fjölskyldunni að beina allri athygli frá sér!“ Vandamálin séu mörg innan sem utan vallar. „Þú ert með völl sem er að hrynja, alls kyns kvartanir yfir ýmsu, úrslitin, óstöðugleikinn virðist vera kominn aftur. Þeir hafa stutt stjórann margoft og það hefur ekki virkað fyrir þá en það hlýtur að vera eitthvað sem smitast niður kerfið hjá félaginu frá toppnum.“ Manchester United situr í 12. sæti ensku úrvalsdeildarinnar eftir fimm umferðir og er með fimm stig.
Enski boltinn Manchester United Fótbolti Mest lesið Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Fótbolti Fleiri fréttir Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Arteta framlengir við Arsenal Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Dregur sig úr landsliðshópnum Meiddist í Portúgal Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Sjá meira