Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar 22. september 2026 09:16 Hljóðlátt en eldsnöggt rafmagnskrossarahjól þýtur fram hjá á göngustíg í borginni. Þannig var fréttin á um að krakkar allt niður í ellefu ára aldur hafi sést þenja kraftmikil rafknúin torfæruhjól innan um gangandi vegfarendur og bílaumferð og á ofsahraða sem þau ráða ekki við. Fyrir mörgum vekur þetta ótta og reiði; lögreglan varar við stórhættu og umræðan á kaffistofum landsins snýst um bönn, sektir og ábyrgð foreldra. Margir spyrja sig hvernig standi á því að börn fái í hendurnar tæki sem ná tugum kílómetra hraða á örfáum sekúndum án þess að hafa til þess aldur, réttindi, hvað þá skilning á því hversu alvarlegar afleiðingarnar geta orðið ef þau valda slysi. Hvorki sektarsala né predikanir breyta litlu þegar tæknin er þegar komin inn á heimilin og áhuginn hjá krökkunum brennur sem aldrei fyrr til að uppfylla spennufíknina. Foreldrar standa oft ráðalausir frammi fyrir þessari þróun, fastir á milli þess að vilja styðja við tæknidellu og útiveru barnsins, kannski í þeirri trú að þessi tæki eigi alls ekki að komast hraðar en á löglegum 25 km hraða, á meðan raunveruleikinn er sá að mörg þeirra ná margföldum þeim hraða með örfáum stillingum í appi eða með fikti í aflrofa, eða eins og lögreglan segir: allt upp í 100 km hraða. Bara spurning um tíma Það er ekki spurning um hvort það verði alvarlegt slys, heldur hvenær. Ímyndið ykkur tólf ára dreng sem missir stjórn á hjóli á þessari ferð og keyrir á mömmu með barnavagn á göngustíg eða á annað barn? Við þurfum ekki að spyrja að leikslokum ef slíkt myndi gerast. Og getur það gerst? Já, á hverjum einasta degi sem þessum tækjum er ekið eftirlitslaust um stígana af einstaklingum sem ráða ekki við slíkan hraða og hafa ekki aldur til. Það var einmitt í þessu tómarúmi sem Mótorsmiðjan fann tilgang sinn á sínum tíma, því þetta er ekki nýtt vandamál og ég held að það verði aldrei leyst með boðum og bönnum, heldur með fræðslu og leiðbeiningu sem Mótorsmiðjan á sínum tíma leysti svo vel af hendi. Við eigum að læra af sögunni og reynslunni en ekki að vera í því að finna hjólið alltaf upp á nýtt. Þegar Bjössi mætti í leðrinu: Mykjukenningin Það var búið að gera allt vitlaust uppi í Breiðholti og þetta var ekkert eitt kvöld. Kvöld eftir kvöld voru strákarnir búnir að þenja hjólin stanslaust milli blokkanna og á göngustígunum. Íbúar voru orðnir brjálaðir og lögreglan komin á vaktina til að reyna að elta þá uppi. En allir sem þekkja til vita að það eltir enginn létt torfæruhjól uppi á stígum nema eiga á hættu því að illa fari. Ástandið var orðið algjörlega óbærilegt, áhyggjurnar voru að buga heilt hverfi og enginn virtist hafa nokkra lausn á vandanum þar til presturinn hringdi, ráðþrota, eftir að hafa fengið nóg. Hann hringdi reyndar bara einu sinni en það dugði. Þá mætti Bjössi úr útideildinni Hann kom ekki á lögreglubíl með blá blikkandi ljós eða tilbúinn með sektarblokkina. Hann mætti í leðurgallanum frá toppi til táar og sat bara rólegur á mótorhjólinu sínu. Og viti menn! Flugurnar komu og settust á skítinn, eins og hann orðaði það sjálfur. Og það voru nákvæmlega réttu flugurnar. Eins og hann sagði: Það setjast ekki allar flugur á skít. Strákarnir, sem voru vanir að stinga af undan fullorðna fólkinu eða rífa kjaft við lögguna, drógust að honum eins og seglar. Fyrir framan þá sat maður sem kunni á svona drengi, maður með sömu reynslu og þeir, sem talaði sama tungumál og geislaði af virðingu sem ekki var hægt að kaupa. Engin háskólagráða gat jafnast á við hans þekkingu á þessu sviði. Bjössi horfði yfir hópinn og hjólin þeirra og beið þar til hver einasti kjálki var lokaður. Þá kom ræðan: Hann útskýrði fyrir þeim á þeirra tungumáli að með því að vera í þessu rugli og sýndarmennsku milli húsanna væru þeir ekki hetjur, heldur bara að eyðileggja fyrir sjálfum sér og öllum öðrum sem hefðu áhuga á mótorhjólum í borginni. Ef þeir ætluðu að vera í þessu af viti þá gerðu þeir það almennilega. Skilaboðin voru skýr: Hættið þessu rugli á göngustígunum, takið draslið og komið niður í smiðju. Ef þið ætlið að skrúfa og keyra, gerið það þá á alvöru forsendum þar sem menn kunna til verka, komið og lærið. Enginn reif kjaft. Þeir vissu að þeir höfðu hitt mann sem virti áhuga þeirra en neitaði að láta þá komast upp með heimsku. Mykjukenningin hitti beint í mark og svona varð Mótorsmiðjan til. Það komu engir uppeldisfræðingar að henni eða sérfræðingar með skýrslur, heldur var mykjukenningin notuð og líkur sækir líkan heim, og það virkaði. Neistinn kviknar: Frá útideildinni í Tryggvagötu til Mótorsmiðjunnar Þetta starf varð upphaflega til í tengslum við Útideildina í Tryggvagötu, út frá einfaldri en mikilvægri staðreynd: Véladellan hverfur ekki við að segja „nei“ og vera með boð og bönn. Í stað þess að láta krakkana fikta sig áfram á göngustígum og vegum borgarinnar í leyfisleysi vildi Bjössi búa til vettvang þar sem þau lærðu að virða kraftinn, skilja tæknina og ná tökum á akstrinum undir réttri handleiðslu og kynnast menningu mótorhjólaklúbba. Aðferðafræðin var notuð alla leið „einn fyrir alla og allir fyrir einn“. Síðar kom Mummi að verkinu af miklum krafti, fann nafnið Mótorsmiðjan, víkkaði starfið út og gerði þar frábæra hluti. Saman náðu þeir að brúa bilið milli áhyggjufullra foreldra og ævintýragjarnra ungmenna og færðu orkuna úr ólöglegum glæfrabakstri inn á viðurkenndan grundvöll og undir eftirliti. Er runninn upp tími til að endurreisa Mótorsmiðjuna? Í dag er vandinn orðinn enn brýnni og hljóðlátari en hann var áður. Bensínhjólin heyrðust úr margra kílómetra fjarlægð, en nútíma rafmagnskrossari kemur á ógnarhraða án þess að gefa frá sér hljóð. Hann er keyptur á netinu með einum smelli og lendir beint í höndum barna sem hafa hvorki þroska né brautaraðstöðu til að ráða við kraftinn. Að banna, sekta og setja alla ábyrgðina yfir á ráðalausa foreldra hefur aldrei leyst neinn vanda. Krakkarnir hætta ekki að leita í hraða og spennu; þau færa sig bara lengra inn á göngustígana, inn í blindhornin og í veg fyrir hættuna. Getur verið að núna sé einmitt rétti tíminn til að endurreisa Mótorsmiðjuna í nýjum búningi? Samfélagið þarf ekki fleiri prédikanir eða nefndir sem skilja hvorki tækin né ungmennin. Það þarf verkstæði þar sem ungt fólk fær að læra á rafkerfi, stýringar og öryggisbúnað undir traustri leiðsögn fólks sem talar sama tungumál. Það þarf lokaðar brautir þar sem hægt er að fá útrás á löglegum og öruggum forsendum. Hugsjónin sem varð til í Tryggvagötunni, mótuð af Bjössa og efld af Mumma, á enn meira erindi í dag en nokkru sinni fyrr. Spurningin er bara hvort við grípum tækifærið áður en stórslysin verða. Höfundur er starfsmaður Fjölsmiðjunnar og fyrrverandi starfsmaður útideildar og Mótorsmiðjunnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Davíð Bergmann Mest lesið Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson Skoðun Skoðun Skoðun Seðlabankastjóri kominn í bakkgírinn Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson skrifar Skoðun Gervigreindin sparar tíma og peninga Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Skoðun Landsvirkjun ætti að fjárfesta í íslensku reikniafli Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvar lendir sleggjan næst? Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Gaur! Vertu töffari! Sveinn Waage skrifar Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason skrifar Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Sameining lögregluumdæma – Tækifæri fyrir Búðardal Guðbrandur Tumi Gíslason skrifar Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Einkunnakerfi í öngstræti Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Ekki einu sinni Margrét Einarsdóttir getur fullyrt það Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ég gerði tilraun til lýðræðislegrar uppreisnar í VG Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Við getum í rauninni ekki tapað Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Skaðaminnkun í sautján ár – og þörfin enn mikil Sóley Kristín Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Verður Grensásvegur hjarta tónlistar í Reykjavík? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Aðför að ferðaþjónustunni Helgi Kjartansson skrifar Skoðun Farsæld barna verður ekki tryggð án fjármagns Jóhanna Erla Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson skrifar Sjá meira
Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar
Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar
Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar
Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar
Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar