Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar 22. september 2026 07:01 „Við þurfum líka bara svolítið að læra að meta þetta og laga fegurðarskynið okkar að orkuskiptabyltingunni,“ sagði Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, þegar Vaðölduver var gangsett í síðustu viku.[1] Jafnframt hvatti hann andstæðinga vindorkuvera til að koma og virða þessi mannvirki fyrir sér. Skilaboð ráðherra eru óvenjuleg og vel þess virði að staldra við. Hvað er eiginlega verið að biðja fólk um þegar það er beðið um að laga fegurðarskyn sitt? Mat á methraða Ímyndaðu þér, lesandi góður, að þú sért í göngutúr og gangir fram á eitthvað sem vekur athygli þína. Það getur verið sólarlag, bygging eða vindmylla. Fyrirvaralaust og á broti úr sekúndu leggur þú mat á það sem fyrir augu ber. „Vá, flott“ eða „úff, þetta er ljótt.“ Fræðimenn hafa deilt um hvernig þetta skjótfengna mat verður til, hvort tilfinningaviðbrögð að baki því eigi sér stað án ítarlegrar vitrænnar úrvinnslu eða hvort vitræn úrvinnsla, mótuð af lærdómi og reynslu, sé þegar að verki án okkar vitundar.[2][3] Hvort sem heldur er segir hraðinn ekki til um dýpt matsins, það getur rist djúpt í sálarlíf okkar þótt aðeins augnablik taki að kalla það fram. Í sálþróunarkenningu sinni gerir Roger Ulrich, þungavigtarmaður innan umhverfissálfræði, ráð fyrir að þetta skjóta og ósjálfráða mat eigi sér að hluta rætur í þeim umhverfisþáttum og aðstæðum sem hafa reynst manninum hagstæð eða hafa ógnað honum í gegnum þróunarsöguna.[4] Samkvæmt þeirri nálgun snertir fegurðarmat okkar fleira en það sem gleður augað. Þar koma líka við sögu öryggi og lífsafkoma, líðan og möguleikinn á að upplifa sálarró og sálræna endurheimt (e. psychological restoration).[5] Sem og sú geta náttúrunnar að láta okkur finna til eigin smæðar, vekja upp lotningu og tilvistarlegar vangaveltur.[6] Þess vegna er fegurðarskyn okkar ekki eitthvað sem við ákveðum bara sisvona. Vissulega getur það breyst en þá þarf í flestum tilvikum meira til en hvatningu ráðherra. Persónubundni þátturinn Ef við förum aftur í okkar ímyndaða göngutúr, þá skulum við gefa því gaum að okkar eigin, meðvitaða saga er með í för og hefur hún áhrif á mat okkar á því sem fyrir augu ber. Sagan geymir gildismat okkar sem ræður miklu í umræðu um vindmyllur og vindorkuver, og í því endurspeglast togstreita milli ólíkra hópa. Líti fólk fyrst og fremst á náttúruna sem auðlind til nýtingar og vettvang framkvæmda, og á vindmyllur sem táknmynd orkuskipta líkt og ráðherra nefndi, þá er eðlilegt að því finnist mannvirkin mjög falleg og tignarleg, þrátt fyrir að vera ágeng.[1] Að sama skapi er fyllilega eðlilegt að fólki sem lítur á náttúruna sem griðastað, sem veitir andrými og tækifæri til upplifunar og endurheimtar, finnist vindmyllur og vindorkuver árás á náttúruna.[7] Það getur einnig upplifað árás á eigið gildismat og viðhorf til nýtingar, árás á sögu svæðanna og þau tilfinningalegu tengsl sem það hefur við tiltekna staði.[8] Fólk kann einnig að finna sig órétti beitt, það kann að finna fyrir dvínandi trausti til ferla og til yfirvalda,[9] og það kann að upplifa lært hjálparleysi og uppgjöf.[10] Allt þetta og meira til kann í mismiklum mæli að hafa áhrif á mat þessa hóps, sem ráðherra sagði iðka „trumpíska“ orðræðu.[1] Við þekkjum ekki vindmyllur í íslenskri náttúru Í Vaðölduveri hafa nú risið 14 vindmyllur af 28, og full starfsemi er áætluð fyrir árslok 2027.[1] Við erum ekki vön slíkum mannvirkjum í íslenskri náttúru, en líkt og áður segir felst í orðum ráðherrans hvatning til að fólk læri að meta þau. Sálfræðilegar rannsóknir hafa einmitt sýnt að það er hægt. Endurtekin og meinlaus kynni (e. mere exposure) geta skapað kunnugleika (e. familiarity) og jákvæðari viðhorf með tímanum.[11] En þótt fólk læri að meta mannvirkin hefur ekki þar með verið bætt upp fyrir það sem kann að hafa tapast. Að venjast raski er ekki það sama og að njóta góðs af því. Kunnugleikinn kann að deyfa óttann og mótþróann, en hann tryggir ekki að við fáum aftur þau gæði sem kunna að hafa glatast þegar náttúru var breytt í orkuvinnslusvæði. „Samdaunasýki“ Hér kann einhver að staldra við og benda á að Vaðölduver sé reist á þegar röskuðu svæði, auk þess sem vindorkuverið hafi verið hluti af rammaáætlun.[12] Þetta er réttmæt ábending og það er einmitt kjarni málsins. Á röskuðum svæðum getur hvert skref orðið réttlæting fyrir því næsta. Með öðrum orðum: Raskið kann því að réttlæta frekara rask. Þessu getur fylgt „samdaunasýki“ (e. shifting baseline syndrome) sem felur í sér að breytt ástand umhverfis verður að viðmiði um það sem telst eðlilegt, þótt það sé lakara en áður.[13][14][15] Þegar vitneskja um fyrra ástand dofnar getur hver kynslóð tekið við lakara ástandi án þess að gera sér grein fyrir því sem hefur tapast. Kynslóð sem elst upp við landslag mótað af mannvirkjum til orkuöflunar getur þannig talið það hið eðlilega ástand.[16] Nýr núllpunktur verður til. Samfara þessu getur umburðarlyndi samfélagsins gagnvart áframhaldandi hnignun umhverfisins aukist og vítahringur skapast.[15] Hvað er ráðherra að biðja um? Ráðherrann kallar eftir að fegurðarskyn andstæðinga vindorkugarða verði endurstillt. Þarna fatast ráðherranum flugið því það er ekki hægt að smætta fegurðarskyn fólks niður í yfirborðskenndan smekk, sem það bara endurstillir, rétt eins og vekjaraklukkuna sína. Til þess á það sér of djúpar og flóknar rætur, líkt og áður hefur verið rakið. Í ljósi þessa les ég hvatningu ráðherra sem svo að það sé upplifun fólks sem þurfi að laga að framkvæmdunum. En þegar sú upplifun er samofin gildismati, væntingum, viðhorfum, tilfinningum og tengslum við staði er farið fram á meira en að fólk mæti vindmyllum og vindorkuverum með opnum hug. Satt að segja er mér til efs að umhverfisráðherra eigi að tala með þeim hætti sem Jóhann Páll Jóhannsson gerði við gangsetningu Vaðölduvers. Nærtækara væri að hann beitti sér fyrir aukinni þekkingarsköpun og skilningi á hinu sálfélagslega samspili fólks og náttúru, þ.e. hvaða gildi svæðin hafa fyrir heilsu, líðan og velferð fólks og hvað framkvæmdir sem þessar geti tekið frá því. Sú þekking og sá skilningur eiga sannarlega heima í umræðu og aðgerðum er varða orkuskipti. Höfundur er dr. í umhverfissálfræði Heimildir [1] Rafn Ágúst Ragnarsson. (2026, 15. september). Laga þurfi fegurðarskynið að orkuskiptum. Vísir. [2] Zajonc, R. B. (1980). Feeling and thinking: Preferences need no inferences. American Psychologist, 35(2), 151–175. [3] Van de Cruys, S., Bervoets, J. og Moors, A. (2022). Preferences need inferences: Learning, valuation, and curiosity in aesthetic experience. Í M. Skov og M. Nadal (ritstj.), The Routledge International Handbook of Neuroaesthetics (bls. 475–506). Routledge. [4] Ulrich, R. S., Simons, R. F., Losito, B. D., Fiorito, E., Miles, M. A. og Zelson, M. (1991). Stress recovery during exposure to natural and urban environments. Journal of Environmental Psychology, 11(3), 201–230. [5] Kaplan, S. (1995). The restorative benefits of nature: Toward an integrative framework. Journal of Environmental Psychology, 15(3), 169–182. [6] Keltner, D. og Haidt, J. (2003). Approaching awe, a moral, spiritual, and aesthetic emotion. Cognition and Emotion, 17(2), 297–314. [7] Pasqualetti, M. J. (2000). Morality, space, and the power of wind-energy landscapes. Geographical Review, 90(3), 381–394. [8] Devine-Wright, P. og Howes, Y. (2010). Disruption to place attachment and the protection of restorative environments: A wind energy case study. Journal of Environmental Psychology, 30(3), 271–280. [9] Bell, D., Gray, T. og Haggett, C. (2005). The ‘social gap’ in wind farm siting decisions: Explanations and policy responses. Environmental Politics, 14(4), 460–477. [10] Cordoves-Sánchez, M., Aponte, H., Vallejos-Romero, A., Sáez Ardura, F. og Cisternas, C. (2026). Justice and risk perception in Chile’s wind energy expansion. Frontiers in Environmental Science, 14, grein 1764282. [11] Zajonc, R. B. (1968). Attitudinal effects of mere exposure. Journal of Personality and Social Psychology, 9(2, 2. hluti), 1–27. [12] Landsvirkjun. (e.d.). Vaðölduver. [13] Ólafur Gestur Arnalds. (2023). Mold ert þú – jarðvegur og íslensk náttúra. IÐNÚ útgáfa. [14] Pauly, D. (1995). Anecdotes and the shifting baseline syndrome of fisheries. Trends in Ecology & Evolution, 10(10), 430. [15] Soga, M. og Gaston, K. J. (2018). Shifting baseline syndrome: Causes, consequences, and implications. Frontiers in Ecology and the Environment, 16(4), 222–230. [16] Kahn, P. H., Jr. (2002). Children’s affiliations with nature: Structure, development, and the problem of environmental generational amnesia. Í P. H. Kahn, Jr. og S. R. Kellert (ritstj.), Children and nature: Psychological, sociocultural, and evolutionary investigations (bls. 93–116). MIT Press. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Páll Jakob Líndal Mest lesið Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson Skoðun Skoðun Skoðun Seðlabankastjóri kominn í bakkgírinn Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson skrifar Skoðun Gervigreindin sparar tíma og peninga Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Skoðun Landsvirkjun ætti að fjárfesta í íslensku reikniafli Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvar lendir sleggjan næst? Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Gaur! Vertu töffari! Sveinn Waage skrifar Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason skrifar Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Sameining lögregluumdæma – Tækifæri fyrir Búðardal Guðbrandur Tumi Gíslason skrifar Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Einkunnakerfi í öngstræti Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Ekki einu sinni Margrét Einarsdóttir getur fullyrt það Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ég gerði tilraun til lýðræðislegrar uppreisnar í VG Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Við getum í rauninni ekki tapað Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Skaðaminnkun í sautján ár – og þörfin enn mikil Sóley Kristín Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Verður Grensásvegur hjarta tónlistar í Reykjavík? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Aðför að ferðaþjónustunni Helgi Kjartansson skrifar Skoðun Farsæld barna verður ekki tryggð án fjármagns Jóhanna Erla Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson skrifar Sjá meira
„
Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar
Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar
Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar
Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar
Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar