Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar 21. september 2026 13:31 Niðurstöður síðustu PISA könnunar hafa vakið nokkra umræðu og áhyggjur vegna hrakandi frammistöðu barna í íslenskum skólum í stærðfræði, lestri og náttúruvísindum. Frammistaðan hefur líka versnað í nágrannalöndunum en af Norðurlöndunum er staðan samt langverst á Íslandi. Mér datt í hug að skoða hvernig Englandi gengur. Þar voru gerðar róttækar breytingar á námsskrá grunnskóla árið 2014. Michael Gove, þáverandi menntamálaráðherra Íhaldsflokksins, lagði aukna áherslu á fræðilega færni, færði kröfur um kunnáttu í átt að eldri viðmiðum og flókin hugtök voru innleidd hjá yngri börnum. Lestur skyldi kenndur með hljóðaðferð og áhersla lögð á stafsetningu og málfræði. Í stærðfræðikennslu var lögð meiri áherslu á dýpt skilnings umfram hraða yfirferð námsefnis. Almenn brot vor til dæmis innleidd hjá yngstu börnunum. Skotland og Wales gerðu ekki sömu breytingar og England, og er efni í aðra grein að bera saman þróunina milli bresku svæðanna. Á Íslandi var gefin út ný „Hæfnimiðuð“ Aðalnámsskrá á árunum 2011- 2013, og hún innleidd í skrefum eftir skólastigum. Margir bentu á að hæfniviðmiðin væru óljós, og erfitt að átta sig hvað ætti að kenna börnunum, en með tímanum hefur skólakerfið lagað sig að þeim. Aðalnámsskránni er ætlað styðja við almenna menntun þegnanna, og stuðla að virkri þáttöku þeirra í lýðræðissamfélagi. Ekki var lengur jafn skýrt tekið fram hvað börnin ættu að kunna eftir námsgreinum að grunnskóla loknum. Skóli án aðgreiningar var innleiddur áratuginn á undan, þar sem öll börn eru saman í bekk og eiga að fá þjónustu við sitt hæfi, óháð námsforsendum. Það er falleg hugmynd, en gerir kröfu um mikinn stuðning inn í bekkina ef vel á að vera. Eftir 2008 voru samræmd lokapróf felld niður og í staðinn tekin upp samræmd könnunarpróf fyrr í skólagöngunni. Vægi þeirra var minnkað, og loks voru þau alveg felld niður fyrir fjórum árum, eftir tæknilega örðuleika í stafræna prófakerfinu. Þessi þrjú atriði eru öll veigamiklar breytingar á grunnskólakerfinu frá aldamótum. Á meðfylgjandi myndum má sjá frammistöðu 15 ára nemenda í á Íslandi og í Englandi, samanborið við OECD meðaltal og hvernig hún hefur þróast á öldinni. Aðsend Mynd 1. Frammistaða 15 ára nemenda á Íslandi (blá lína), í Englandi (rauð lína) ásamt OECD meðaltali (grá lína) í PISA-könnunum. Myndirnar sýna að um aldamótin stóðu íslensku börnin framar þeim ensku í stærðfræði og sambærilega í lesskilningi og voru yfir OECD meðaltalinu, en svo hallar undan fæti, og herðir all verulega á þeirri þróun eftir 2018. Ensku börnin standa nokkurn vegin í stað, og í lok tímabilsins er frammistaða þeirra mun betri en íslensku barnanna. Fram hefur komið að íslenskum nemendum líður vel í skólanum og hafi almennt góða sjálfsmynd og er það vel. En skólakerfið er ekki bara geymslustaður þar sem börnum á að líða vel. Tilgangur kerfisins er að mennta börnin, að þau öðlist þá þekkingu sem gerir þeim kleift að ná árangri í lífinu. Heyrst hefur að PISA mæli „gamaldags“ þekkingu, en ég á erfitt með að sjá fyrir mér að mikilvægi lestrarfærni, stærðfræði eða náttúruvísinda minnki eftir því sem upplýsingaáreyti og framboð af röngum upplýsingum eykst. Þeim mun farnast best sem hafa góðan lesskilning og þekkingu til að greina kjarnann frá hisminu, til að sjá í gegnum blekkingar og eru fyrir vikið góðir lýðræðisþegnar. Bresk börn fengu snjallsíma og samfélagsmiðla á sama tíma og þau íslensku, og þar eru líka mörg börn af erlendum uppruna. Samt hefur þeirra námsárangur haldið sjó, meðan okkar hefur hrunið. Nú er svo komið að 15 ára íslensk börn eru allt að þrem árum styttra komin í námi en jafnaldrar þeirra voru árið 2000. Þarna er alls ekki við börnin okkar að sakast, þau eru ekkert minna klár en þau voru, heldur hefur menntkerfið brugðist þeim alvarlega. Kannski væri ráð að skoða hvaða breytingar voru gerðar í Englandi, og læra af þeim? Höfundur er prófessor í verkfræði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein PISA-könnun Mest lesið Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson Skoðun Skoðun Skoðun Seðlabankastjóri kominn í bakkgírinn Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson skrifar Skoðun Gervigreindin sparar tíma og peninga Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Skoðun Landsvirkjun ætti að fjárfesta í íslensku reikniafli Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvar lendir sleggjan næst? Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Gaur! Vertu töffari! Sveinn Waage skrifar Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason skrifar Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Sameining lögregluumdæma – Tækifæri fyrir Búðardal Guðbrandur Tumi Gíslason skrifar Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Einkunnakerfi í öngstræti Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Ekki einu sinni Margrét Einarsdóttir getur fullyrt það Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ég gerði tilraun til lýðræðislegrar uppreisnar í VG Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Við getum í rauninni ekki tapað Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Skaðaminnkun í sautján ár – og þörfin enn mikil Sóley Kristín Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Verður Grensásvegur hjarta tónlistar í Reykjavík? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Aðför að ferðaþjónustunni Helgi Kjartansson skrifar Skoðun Farsæld barna verður ekki tryggð án fjármagns Jóhanna Erla Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson skrifar Sjá meira
Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar
Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar
Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar
Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar
Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar