Neville: Alveg ömurlegt og versta korter sem ég hef séð hjá Man. Utd Sindri Sverrisson skrifar 20. september 2026 20:31 Marcus Rashford og félagar gengu bara um völlinn í korter líkt og þeir biðu þess að lenda undir, að mati Gary Neville. Getty/Justin Setterfield Sparkspekingurinn Gary Neville talaði hreint út varðandi frammistöðu Manchester United í dag eftir að liðið var stálheppið að ná í 1-1 jafntefli við botnlið Fulham, í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta.
United-menn náðu þar með aðeins í fimm stig í fyrstu fimm umferðum deildarinnar, fyrir landsleikjahléið sem nú tekur við næstu þrjár vikur. Neville var sérfræðingur í beinni útsendingu Sky Sports frá leiknum í dag og fylgdist með þegar United lenti undir með afar slysalegu sjálfsmarki Lisandro Martínez, sem markverðinum Senne Lammens tókst ekki að verjast. Um þennan kafla í seinni hálfleik, fram yfir sjálfsmarkið, sagði hinn 51 árs gamli Neville: „Ég hef fylgst með Manchester United síðan ég var fimm ára og þetta eru verstu 15 mínútur sem ég hef séð liðið spila. Þetta var algjörlega ömurlegt. Þeir gengu bara um í 15 mínútur og menn fá það sem þeir eiga skilið í fótbolta. Kannski kemur eitthvað svar núna en ég hef aldrei séð svona mikinn skort á áreynslu á 15-20 mínútna kafla.“ Carrick sagði United verðskulda sigur Michael Carrick, stjóri United, þvertók fyrir að liðið hefði verið of varfærið í leiknum og sagði það hafa verðskuldað sigur. „Fótbolti er erfiður. Við vorum með stjórnina stóran hluta fyrri hálfleiks. Þetta er enska úrvalsdeildin og það koma kaflar þar sem þú ræður ekki öllu. Ég held að enginn geti búist við að hafa algjöra stjórn í gegnum allan leikinn í þessari deild. Mér fannst við eiga skilið að vinna, við sköpuðum nóg til þess. Við ætluðum okkur auðvitað sigur en við getum tekið það með okkur hvernig við kláruðum leikinn,“ sagði Carrick en Matheus Cunha tryggði United stig með jöfnunarmarki undir lokin.
Enski boltinn Manchester United Mest lesið Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Fótbolti Fleiri fréttir Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Arteta framlengir við Arsenal Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Dregur sig úr landsliðshópnum Meiddist í Portúgal Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Sjá meira