Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir skrifar 20. september 2026 20:03 Nokkuð hefur borið á umræðu í samfélaginu undanfarið þar sem fólk veltir fyrir sér hvort að það sé framhjáhald ef makinn stundar sjálfsfróun með kynlífstæki. Það er kannski ekki alveg óskiljanlegt að slíkar spurningar vakni hjá manni. Kynlíf, sjálfsfróun og kynlífstæki geta snert viðkvæma staði (pun intended) í okkur. Við getum upplifað óöryggi, höfnunartilfinningu eða áhyggjur um að maður sé ekki nóg fyrir makann sinn. Ef annar aðilinn notar kynlífstæki getur hinn upplifað það sem vísbendingu um að eitthvað vanti í kynlífið þeirra, að makinn sé ekki fullnægður eða jafnvel að tækið sé á einhvern hátt að taka yfir hlutverk sem honum finnst að hann eigi sjálfur að gegna. Þessar tilfinningar eru mjög raunverulegar, jafnvel þótt túlkunin sem fylgir þeim sé ekki endilega rétt. Hér skulum við hafa í huga að tilfinningar eru sjaldnast byggðar á rökum. Það er í eðli tilfinninga að vera oft órökréttar en það er munur á því að upplifa óöryggi og því að hegðun maka sé raunverulega ógn við sambandið. Sjálfsfróun er fyrir marga einfaldlega hluti af eigin kynverund. Hún getur verið leið til að slaka á, kynnast eigin líkama betur, fá útrás eða njóta kynferðislegrar vellíðunar án þess að það segi neitt neikvætt um löngun til maka. Kynlíf með sjálfum sér og kynlíf með maka uppfylla heldur ekki alltaf sömu þarfir. Annað þarf ekki að koma í stað hins. Sjálfsfróun þarf heldur ekki að draga úr kynferðislegum áhuga á maka. Hjá flestum er það reyndar þveröfugt. Kynferðisleg virkni getur ýtt undir kynferðislegar hugsanir, löngun og áhuga á kynlífi almennt. Löngun er ekki eins og bensíntankur sem tæmist við notkun. Við heyrum aldrei setninguna „æj, sorry elskan, ég er ekki í stuði í kvöld því ég fróaði mér svo mikið í dag“. Kynlöngun er frekar eins og vöðvi sem hitnar og æfist við hreyfingu. Sjálfsfróun getur þannig verið ein leið til að halda kynverundinni virkri og rækta eigin kynlöngun, sem getur síðan skilað sér inn í kynlíf með maka. Hugmynd: kannski ættum við að hætta að líta á sjálfstæða kynverund maka okkar sem samkeppni. Að vera í sambandi þýðir ekki að við eignumst einkarétt á kynferðislegri ánægju hins eða að öll kynferðisleg upplifun þurfi að fara fram með okkur. Verum frekar forvitin. Spyrjum hvað makanum okkar finnst gott, hvað kveikir í honum og hvað hann uppgötvar um sjálfan sig. Kynverund maka okkar er ekki ógn sem þarf að halda í skefjum heldur heill heimur sem við getum fengið að kynnast. Og mögulega er miklu meira spennandi að fá boð inn í þann heim en að reyna að loka honum. Höfundur er sambands- og kynlífsráðgjafi, MSc Sexual Psychology & Sexual Therapy Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kynlíf Eva Pandora Baldursdóttir Mest lesið Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson Skoðun Skoðun Skoðun Seðlabankastjóri kominn í bakkgírinn Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson skrifar Skoðun Gervigreindin sparar tíma og peninga Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Skoðun Landsvirkjun ætti að fjárfesta í íslensku reikniafli Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvar lendir sleggjan næst? Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Gaur! Vertu töffari! Sveinn Waage skrifar Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason skrifar Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Sameining lögregluumdæma – Tækifæri fyrir Búðardal Guðbrandur Tumi Gíslason skrifar Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Einkunnakerfi í öngstræti Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Ekki einu sinni Margrét Einarsdóttir getur fullyrt það Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ég gerði tilraun til lýðræðislegrar uppreisnar í VG Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Við getum í rauninni ekki tapað Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Skaðaminnkun í sautján ár – og þörfin enn mikil Sóley Kristín Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Verður Grensásvegur hjarta tónlistar í Reykjavík? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Aðför að ferðaþjónustunni Helgi Kjartansson skrifar Skoðun Farsæld barna verður ekki tryggð án fjármagns Jóhanna Erla Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson skrifar Sjá meira
Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar
Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar
Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar
Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar
Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar