„Fyrir okkur eru flugferðir ekki lúxus heldur lífæð“ Lovísa Arnardóttir skrifar 19. september 2026 13:32 Ásdís segir ferðaþjónustufyritæki þurfa að bera verulegan kostnað vegna mögulegra verkfalla flugvirkja og kallar eftir meiri sanngirni. Aðsend og Vísir/Vilhelm Ásdís Eir Guðmundsdóttir, lögfræðingur Félags atvinnurekenda (FA), segir stjórnvöld verða að skoða hvernig sé hægt að tryggja meiri sanngirni þegar ákveðnar stéttir geti með verkfallsréttinum valdið svo miklum samfélagslegum skaða. Hún segir það ekki samrýmast grundvallarsjónarmiðum samningsréttar að ferðaþjónustuaðilar, sem eigi enda aðild að kjarasamningum flugstétta, beri einir óskipta fjárhagslega áhættu af vinnudeilum flugvirkja. „
Þótt verkfallsréttur sé stjórnarskrárvarinn verður beiting hans í grunninnviðum samgangna að taka mið af meðalhófi og þeim miklu áhrifum sem vinnustöðvanir hafa á aðrar atvinnugreinar,“ segir Ásdís Eir í aðsendri grein á Vísi í dag. Tilefnið eru fyrirhuguð verkföll flugvirkja en að óbreyttu hefjast ótímabundin verkföll flugvirkja aðfaranótt miðvikudagsins 23. september. Síðasta fundi flugvirkja og Icelandair hjá ríkissáttasemjara, í gær, lauk án árangurs. Samninganefndirnar komu saman á hádegi á fyrsta formlega samningafundinum síðan slitnaði upp úr viðræðum 22. júní. Samningar flugvirkja hafa verið lausir frá áramótum. Stjórn Samtaka ferðaþjónustunnar (SAF) lýsti fyrr í dag yfir þungum áhyggjum af áhrifum boðaðs verkfalls á flugvirkja. Ferðaþjónustufyrirtæki hafi þegar fengið fjölda afbókana vegna verkfallsins. Ásdís segir í grein sinni að full ástæða sé fyrir stjórnvöld til að skoða hvernig hægt sé að tryggja betra jafnvægi og meiri sanngirni þegar ákveðnar stéttir njóta verkfallsréttar sem geti valdið umtalsverðum samfélagslegum skaða. Það verði í það minnsta að setja slíku valdi skýr mörk í lagatexta. „Fyrir okkur eru flugferðir ekki lúxus heldur lífæð, brúin sem tengir samfélag okkar og atvinnulíf við umheiminn. Þeir sem búa yfir valdi til að teppa þessa lífæð fara því með mikil völd. Þegar kjaradeilur ógna þessum lífsnauðsynlegu innviðum skapast samstundis djúpstæður titringur í hagkerfinu öllu. Þetta varnarleysi blasir nú við í kjaradeilu flugvirkja, þar sem samningaviðræður eru í hnút og bent hefur verið á að efnahagslegt tjón samfélagsins geti numið vel yfir milljarði króna á dag ef flug leggst af,“ segir Ásdís í grein sinni. Hún segir að í miðju baráttunnar sitji hópur sem muni verða fyrir „þyngsta fjárhagslega og rekstrarlega högginu“ verði af verkfalli. Á sama tíma eigi þessi stétt, íslenskar ferðaskrifstofur, enga aðild að deilunni. „Raunverulegt tjón af völdum vinnudeilna hefst ekki þann dag sem flug fellur niður, heldur um leið og boðað er til aðgerða. Þegar stórir hópar, fyrirtæki á leið í starfsmannaferðir með tugi eða hundruð starfsmanna, standa frammi fyrir boðuðu verkfalli, treysta fyrirsvarsmenn þeirra sér sjaldnast til að bíða átekta fram á síðustu stundu í von um að samningar á milli aðila náist. Margir kjósa því að hætta við ferðina með nokkurra daga fyrirvara,“ segir hún og að við þetta lendi ferðaskrifstofan í gildru. Samningar enn í gildi Á meðan flugfélagið aflýsi ekki ferðinni líti aðrir svo á að samningurinn sé enn í fullu gildi. Einhliða afbókun þeirra við þessar aðstæður myndi þýða að öll tryggingagjöld glatist. „Á sama tíma krefst viðskiptavinurinn fullrar endurgreiðslu eða frestunar. Ferðaskrifstofan er þannig sett í þá óbærilegu stöðu að bera óskipta fjárhagslega áhættu af óvissu sem hún fær með engu móti stýrt.“ Hún segir kerfislægt misgengi þar sem neytendur fái bætur þegar óviðráðanleg atvik skella á en ferðaskrifstofurnar búi síður við þann veruleika og fái sjaldan bættar unnar vinnustundir og launakostnað sem verði sjálfkrafa að rekstrartapi. „Samhliða breytist hefðbundin starfsemi í krefjandi neyðarstjórnun allan sólarhringinn vegna örvæntingar viðskiptavina. Í ofanálag reynir ástandið á dýrmæt viðskiptasambönd við erlenda samstarfsaðila, þar sem oft reynist þrautin þyngri að vinda ofan af samningum og endurheimta fyrirframgreidda fjármuni,“ segir Ásdís Eir. Hún tekur dæmi um starfsmannaferð fyrir hundrað manns til Evrópu. Ferðin kosti um 35 milljónir króna og af því fari um 12 til 15 milljónir króna í flugmiða en yfir 20 milljónir bundnar í hótelgistingu og viðburðum erlendis, sem ferðaskrifstofan hefur þegar greitt áfram mánuðum fyrir brottför. Falli flugið niður vegna verkfalls flugvirkja kveða 3. og 5. mgr. 15. gr. laga um pakkaferðir nr. 95/2018 á um að neytandinn eigi rétt á fullri endurgreiðslu allrar heildarfjárhæðarinnar innan 14 daga. Flugfélaginu beri samkvæmt lögum að endurgreiða flugmiða innan sjö daga en það gildi ekki það sama um erlenda samstarfsaðila sem vísi þá til eigin afbókunarskilmála, neiti endurgreiðslu eða dragi uppgjörið mánuðum saman. „Ferðaskrifstofan situr því ein eftir í gapastokknum, neydd til að reiða fram tugi milljóna króna úr eigin vasa til að brúa bilið og mæta 14 daga lögboðnum fresti gagnvart neytandanum á meðan eigin fjármunir hennar eru læstir erlendis. Fyrir ferðaskrifstofu með nokkra slíka stórhópa hleypur heildarkrafan á hundruðum milljóna króna, en litlar og meðalstórar ferðaskrifstofur hafa sjaldnast bolmagn til að bíða eftir endurgreiðslu,“ segir hún í greininni. Leiði til fákeppni Hún segir að við þessar aðstæður verði að horfa til mikilvægis virkrar samkeppni á innlendum markaði. „Ef ósveigjanlegt lagaumhverfi og endurtekin verkföll þurrka út innlendar ferðaskrifstofur leiðir það óhjákvæmilega til fákeppni, hærra verðs og skertra gæða. Neytendavernd sem í framkvæmd knésetur innlenda þjónustuaðila snýst á endanum gegn sjálfri sér og skilur neytendur eftir í verri stöðu,“ segir Ásdís Eir. Hún segir það því varla samrýmast grundvallarsjónarmiðum samningsréttar að ferðaþjónustuaðilar, sem eigi enda aðild að kjarasamningum flugstétta, beri einir óskipta fjárhagslega áhættu af vinnudeilum annarra. „Neytendavernd á að vera öflug, en hún er ekki sjálfbær ef hún varpar allri áhættunni yfir á milliliði. Íslensk ferðaþjónusta þarf á fyrirsjáanlegu og heilbrigðu starfsumhverfi að halda, þar sem sjálfstæð fyrirtæki eru ekki látin bera ein fjárhagslegan skaða af vinnudeilum sem þau eiga engan þátt í.“
Flug Icelandair Kjaradeila Icelandair og flugvirkja 2026 Kjaramál Ferðaþjónusta Tengdar fréttir Fundað í flugvirkjadeilu Samninganefndir í kjaradeilu Flugvirkjafélags Íslands og Icelandair hafa verið boðaðar til fundar í Karphúsinu á hádegi í dag. Þetta staðfestir Ástráður Haraldsson, ríkissáttasemjari við fréttastofu. Hann segist hafa verið í stöðugu sambandi og átt í samráði við báðar samninganefndir undanfarna daga. 18. september 2026 06:26 Stefna á að aflýsa öllum flugferðum Að öllu óbreyttu verða allar flugferðir með Icelandair frá landinu dagana 23. og 24. september felldar niður vegna yfirvofandi verkfalls flugvirkja. Farþegum stendur til boða að breyta bókuðum ferðum en eru þær breytingar háðar sætaframboði. 16. september 2026 17:39 Gagnrýna tal um meðallaun upp á 1,4 milljónir Flugvirkjafélag Íslands gagnrýnir umræðu um 1,4 milljónir króna í meðallaun flugvirkja og segir meðaltalið geta gefið villandi mynd af kjörum þeirra. 16. september 2026 12:02 Mest lesið Tímamót hjá Heklu: Kveðja Laugaveginn eftir rúma sex áratugi Neytendur Framkvæmdastjóri kveður Nóa Siríus Viðskipti innlent „Fyrir okkur eru flugferðir ekki lúxus heldur lífæð“ Viðskipti innlent Miði keyptur í Fjarðakaupum skilaði 129 milljónum króna Neytendur Wolt á blússandi siglingu á meðan sendlar lýsa skertum kjörum Viðskipti innlent Ungir fatasalar möluðu gull Viðskipti innlent „Þau bentu mér á að ég gólaði ansi oft með“ Atvinnulíf Aðeins 28 ára og stýrir Framúrskarandi fyrirtæki Framúrskarandi fyrirtæki Japanskir stýrivextir ekki eins háir í þrjátíu ár Viðskipti erlent Fólk dregið í dilka í umræðum launa- og kjaramála Atvinnulíf Fleiri fréttir „Fyrir okkur eru flugferðir ekki lúxus heldur lífæð“ Wolt á blússandi siglingu á meðan sendlar lýsa skertum kjörum Framkvæmdastjóri kveður Nóa Siríus Ungir fatasalar möluðu gull Tengir stórframkvæmdir við framtíð lýðræðisins Endurtakk-bræður opna verslun í Hlemmur.haus Wolt svarar fyrir tekjur sendlanna Starfsleyfi Samherja til fiskþurrkunar að Laugum fellt úr gildi Ekki lengur hægt að fá popp og kók í Smárabíói Einar Þór nýr framkvæmdastjóri Reykjafells Spá aukinni verðbólgu: Eldsneyti hækkar um 17 prósent Treble tryggir tvo milljarða í fjármögnun Ekki nægilegt traust á fasteignamarkaði Fasteignamarkaðurinn kólnar enn Wolt sendlar lögðu niður störf Bein útsending: Atvinnu- og framkvæmdaþing Reykjanesbæjar Gagnrýna tal um meðallaun upp á 1,4 milljónir Frá Wise til VÍS Danir lærðu sína lexíu en Íslendingar rífist enn Ósanngjarnt að lítil ferðaþjónustufyrirtæki beri tjón af verkföllum flugstétta Íhlutun vegna kaupa Ása á Öryggismiðstöð og Opnum kerfum nauðsynleg Ekkert verður af kaupum Heklu á Bílson Byggja eitt stærsta gagnaver Íslands á Bakka Tveir nýir sérfræðingar til Jónsbókar Tæplega 50 milljarða halli hins opinbera á öðrum fjórðungi Útlitið ekki allt of gott í kjaradeilu flugvirkja Enn hnútur hjá flugmönnum Icelandair Telur yfir milljarð á dag í húfi Einn tíundi fékkst upp í hundruð milljóna króna gjaldþrot veitingamanns Gengið aldrei verið lægra Sjá meira
Fundað í flugvirkjadeilu Samninganefndir í kjaradeilu Flugvirkjafélags Íslands og Icelandair hafa verið boðaðar til fundar í Karphúsinu á hádegi í dag. Þetta staðfestir Ástráður Haraldsson, ríkissáttasemjari við fréttastofu. Hann segist hafa verið í stöðugu sambandi og átt í samráði við báðar samninganefndir undanfarna daga. 18. september 2026 06:26
Stefna á að aflýsa öllum flugferðum Að öllu óbreyttu verða allar flugferðir með Icelandair frá landinu dagana 23. og 24. september felldar niður vegna yfirvofandi verkfalls flugvirkja. Farþegum stendur til boða að breyta bókuðum ferðum en eru þær breytingar háðar sætaframboði. 16. september 2026 17:39
Gagnrýna tal um meðallaun upp á 1,4 milljónir Flugvirkjafélag Íslands gagnrýnir umræðu um 1,4 milljónir króna í meðallaun flugvirkja og segir meðaltalið geta gefið villandi mynd af kjörum þeirra. 16. september 2026 12:02