Frjósemisvarðveisla; Jafnt aðgengi að framtíðinni Ragnhildur Þóra Hafsteinsdóttir skrifar 16. september 2026 08:32 Ungt fólk sem greinist með krabbamein á ekki að þurfa að velja á milli fjárhagslegs öryggis og möguleikans á að eignast börn í framtíðinni. Á ári hverju greinast um 90 ungir einstaklingar með krabbamein á Íslandi. Krabbameinsgreining kollvarpar lífi einstaklinga. Á örskömmum tíma þarf að taka stórar ákvarðanir um meðferð og framtíð. Fyrir ungt fólk getur ein þessara ákvarðana varðað framtíð sem það hefur jafnvel ekki leitt hugann að áður: Vil ég eignast börn í framtíðinni? Ákveðin krabbamein og krabbameinsmeðferðir geta haft bæði tímabundin og varanleg áhrif á frjósemi. Rannsóknir sýna að ófrjósemi og afleiðingar hennar geta verið á meðal stærstu áhyggjuefna einstaklinga eftir krabbameinsmeðferð. Upplýsingagjöf á ekki að vera lækna-lottó Kraftur kallar eftir því að þau sem standa frammi fyrir mögulegum neikvæðum áhrifum á frjósemi vegna veikinda sinna fái upplýsingar og tækifæri til að taka upplýsta ákvörðun um frjósemisvarðveitandi meðferðir áður en krabbameinsmeðferð hefst. Niðurstöður Áttavitans, rannsóknar Krabbameinsfélags Íslands, sem gerð var á reynslu fólks sem greindist með krabbamein á árunum 2015 – 2019, sýna að upplýsingagjöf til þessa hóps sé ófullnægjandi. Aðeins 21% karla og 10% kvenna sem spurningin átti við töldu sig hafa fengið fullnægjandi upplýsingar um frjósemisverndandi aðgerðir. Þá sögðust 75% svarenda hafa fengið litlar eða engar upplýsingar um rétt sinn til tæknifrjóvgunar og frjósemisverndandi aðgerða. Fyrstu niðurstöður úr lífsgæðarannsókn Krabbameinsfélagsins, frá árinu 2025, styðja við fyrri rannsóknir og benda til þess að þörfum þessa hóps sé ekki nægilega mætt. Samtal um varðveislu frjósemi getur vissulega verið yfirþyrmandi í kjölfar nýrrar krabbameinsgreiningar en afskaplega mikilvægt svo hægt sé að taka upplýsta ákvörðun. Það ætti því ekki að vera tilviljunarkennt hverjir fá samtalið heldur sjálfsögð þjónusta fyrir öll. En hver á að fjármagna? Upplýsingagjöf er þó ekki það eina sem hindrar unga krabbameinsgreinda í þessu mikilvæga ákvörðunarferli. Staðreyndin er sú að frjósemismeðferðir á Íslandi eru dýrar. Ungt fólk sem greinist með krabbamein er oftar en ekki að stíga sín fyrstu skref í lífinu, festa kaup á húsnæði með námslán á bakinu og ung börn á framfæri. Krabbameinsgreiningunni sjálfri getur einnig fylgt tekjutap og ófyrirséður kostnaður. Frá því að Kraftur vakti athygli á málinu árið 2022 hafa mikilvæg skref verið tekin. Greiðsluþátttaka Sjúkratrygginga Íslands vegna frjósemisvarðveislu fyrir fólk sem stendur frammi fyrir yfirvofandi ófrjósemi vegna krabbameinsmeðferða hefur verið aukin og sérstakt ákvæði um hópinn er nú að finna í reglugerð og því ber að fagna. Raunveruleikinn er þó enn sá að ungt fólk þarf að leggja út háar fjárhæðir á viðkvæmum tíma í lífi sínu, sem eðli málsins samkvæmt getur haft veruleg áhrif á líf þessara einstaklinga. Það er Krafti mjög mikilvægt sanngirnismál að allir sitji við sama borð þegar kemur að frjósemisvarðveislu vegna krabbameina. Þekking og aðgengi á ekki að vera bundin við bakland. Það er því brýnt að bæta og staðla verkferla, boðleiðir og upplýsingagjöf. Þannig aukum við öryggi skjólstæðinga og bætum samfellu í þjónustu svo öll hafi jafnt aðgengi óháð efnahag. Það er með öllu óásættanlegt að ungt fólk með krabbamein þurfi að velja á milli fjárhagslegs öryggis og möguleikans á að eignast barn í framtíðinni, undir miklu álagi og oft með skamman tíma til stefnu. Kraftur kallar eftir því að stjórnvöld taki skrefið alla leið og niðurgreiði að fullu frjósemisvarðveislu vegna krabbameins. Þangað til hefur Kraftur brugðist við með því að setja á laggirnar frjósemissjóð sem ætlað er að styðja við ungt fólk sem þarf að standa straum af þessum kostnaði. En betur má ef duga skal. Ef við ætlum að taka heildrænt utan um bata fólks eftir krabbamein verðum við að líta lengra en að meðferðinni sjálfri. Varðveisla frjósemi eru mannréttindi, ekki lúxus sem aðeins sumir hafa efni á. Höfundur er fræðslu- og hagsmunastjóri Krafts stuðningsfélags. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Krabbamein Mest lesið Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson Skoðun Skoðun Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson skrifar Skoðun Gervigreindin sparar tíma og peninga Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Skoðun Landsvirkjun ætti að fjárfesta í íslensku reikniafli Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvar lendir sleggjan næst? Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Gaur! Vertu töffari! Sveinn Waage skrifar Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason skrifar Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Sameining lögregluumdæma – Tækifæri fyrir Búðardal Guðbrandur Tumi Gíslason skrifar Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Einkunnakerfi í öngstræti Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Ekki einu sinni Margrét Einarsdóttir getur fullyrt það Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ég gerði tilraun til lýðræðislegrar uppreisnar í VG Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Við getum í rauninni ekki tapað Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Skaðaminnkun í sautján ár – og þörfin enn mikil Sóley Kristín Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Verður Grensásvegur hjarta tónlistar í Reykjavík? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Aðför að ferðaþjónustunni Helgi Kjartansson skrifar Skoðun Farsæld barna verður ekki tryggð án fjármagns Jóhanna Erla Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson skrifar Skoðun Reykjavík beygir af Brynhildur Bolladóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar
Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar
Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar
Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar
Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar