Víkingur - Kefla­vík 4-1 | Annað skref í átt að titlinum

Kolbeinn Kristinsson skrifar
Valdimar Þór Ingimundarson lagði tvö upp í dag. Víkingar áttu í litlum vandræðum með Keflavíkinga.
Valdimar Þór Ingimundarson lagði tvö upp í dag. Víkingar áttu í litlum vandræðum með Keflavíkinga. Anton/Vísir

Víkingur vann sannfærandi 4-1 sigur á Keflavík á Víkingsvelli í 23. umferð Bestu deildar karla, þeirri fyrstu eftir skiptingu deildarinnar. Daníel Hafsteinsson kom Víkingum yfir áður en Róbert Orri Þorkelsson og Stígur Diljan Þórðarson bættu við mörkum fyrir hlé. Stígur skoraði svo sitt annað mark strax í upphafi síðari hálfleiks áður en Muhamed Alghoul minnkaði muninn fyrir Keflavík.

Þrjú mörk á ellefu mínútum

Víkingar brutu ísinn á 21. mínútu. Sveinn Margeir átti þá góða stoðsendingu á Daníel Hafsteinsson sem kláraði færið innan vítateigs með hægri fæti niður í hægra hornið.

Sjö mínútum síðar kom mark leiksins. Víkingar tóku hornspyrnu stutt, Helgi Guðjóns sendi boltann með jörðinni inn á vítateig þar sem Róbert Orri Þorkelsson smellhitti hann í fyrstu snertingu með vinstri fæti. Boltinn fór í slána og inn og Víkingar komnir í 2-0.

Heimamenn voru hvergi nærri hættir. Á 32. mínútu kom þriðja markið þegar Stígur Diljan Þórðarson renndi sér í boltann við fjærstöngina eftir sendingu eða skot frá Valdimari hægra megin úr vítateignum.

Víkingar höfðu þar með skorað þrjú mörk á aðeins ellefu mínútum og fóru með 3-0 forystu til hálfleiks.

Stígur tvöfaldaði sitt og Víkingar kláruðu verkið

Víkingar þurftu aðeins tvær mínútur í síðari hálfleik til að bæta við fjórða markinu. Valdimar Þór sendi þá boltann fyrir og Stígur Diljan kláraði af stuttu færi af yfirvegun.

Keflvíkingar minnkuðu muninn á 58. mínútu. Víkingar voru þá kærulausir í uppspilinu aftast og Muhamed Alghoul komst inn í slaka sendingu frá Aroni Snæ. Hann lét vaða á nærstöngina og boltinn lak í netið.

Þar við sat og Víkingur tryggði sér öruggan 4-1 sigur á heimavelli.

Atvik leiksins

Mark Róberts Orra, annað mark leiksins, var stórglæsilegt og kom eftir fast leikatriði sem greinilega hafði verið teiknað upp á æfingasvæðinu. Hornspyrnan var tekin stutt, Helgi Guðjóns renndi boltanum niðri með jörðinni inn á vítateiginn þar sem Róbert Orri smellhitti hann með vinstri fæti og negldi boltanum í slána og inn.

Stjörnur og skúrkar

Róbert Orri var frábær í þessum leik, skoraði gott mark og boltinn flæddi vel í gegnum hann í öftustu línu. Daníel Hafsteins var öflugur á miðsvæðinu, skoraði gott mark og tók mikið til sín og var óhræddur við að reyna skot langt utan af velli ef svo bar undir. Valdimar með tvær stoðsendingar, hann og Aron Elís voru sömuleiðis traustir og vinnusamir að venju.

Hjá Keflavík var Ásgeir Orri í markinu fínn heilt yfir, mætti mikið á honum og kannski ekki mikið við hann að sakast í mörkunum sem dæmi. Muhamed Alghoul skoraði fínt mark en það var vitanlega of lítið og of seint.

Annars var enginn augljós skúrkur þannig séð; Keflvíkingar mættu einfaldlega ofjarli sínum hér í kvöld.

Dómarinn

Pétur Guðmundsson og hans teymi voru faglegir og flottir heilt yfir. Leikurinn fékk að fljóta ágætlega. Engin umdeild atvik að ráði og þessu var siglt örugglega í höfn. Einkunn: 8,5.

Stemning og umgjörð

Það var góð kvöldstund í Fossvoginum og fínasta umgjörð á Víkingsvelli. Áhorfendur létu vel í sér heyra og stemningin var ágæt allan leikinn. Víkingar kunna sitt fag þegar kemur að umgjörð heimaleikja og þar var lítið slegið af – þrátt fyrir smá reyklykt yfir vellinum eftir brunann sem átti sér stað steinsnar frá í Elliðaárdalnum skömmu fyrir leik.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira