Fékk símtal frá Þorsteini í þetta sinn en er óviss um landsliðið Sindri Sverrisson skrifar 15. september 2026 12:01 Dagný Brynjarsdóttir og frænka hennar Sveindís Jane Jónsdóttir deila vatnsbrúsa á Evrópumótinu í Sviss í fyrrasumar. Ætli Dagný hafi spilað þar sína síðustu landsleiki? Getty/Florencia Tan Jun Dagný Brynjarsdóttir er næstmarkahæsta landsliðskona Íslands frá upphafi, með 38 mörk í 122 A-landsleikjum. Eftir að hafa eignast sinn þriðja son í vor kveðst hún hins vegar ekkert vita um það hvort hún hafi nú þegar spilað sinn síðasta landsleik.
Dagný, sem er nýorðin 35 ára gömul, kom sér fljótt af stað eftir barnsburð og náði lokum tímabilsins í Lengjudeildinni með Selfossi nú í sumar. Hún útilokar ekkert varðandi framhaldið á næsta ári. Dagný hefur farið á fjögur Evrópumót með íslenska landsliðinu og skoraði til að mynda sigurmark gegn Hollandi 2013 í eina sigurleik Íslands á stórmóti. Leikirnir á EM í Sviss í fyrrasumar, þar sem Dagný var í minna hlutverki en hún hafði vonast til, gætu þó hafa verið hennar síðustu landsleikir á ferlinum. „Eins og staðan er núna veit ég það eiginlega bara ekki,“ segir Dagný í spilaranum hér að neðan. Klippa: Dagný búin að spila sinn síðasta landsleik? Hún lýsti yfir óánægju sinni með afskiptaleysi Þorsteins Halldórssonar landsliðsþjálfara, í viðtali við The Athletic árið 2024, þegar hún hafði fætt sinn annan son og var byrjuð að spila aftur með West Ham. Þegar þriðji sonurinn kom í heiminn síðasta vor hafði Þorsteinn hins vegar fljótt samband: „Steini hringdi í mig og óskaði mér til hamingju. Hann spurði hvað ég ætlaði að gera og ég sagðist bara ekki hafa hugmynd um það. Mér finnst þetta öðruvísi en með hina tvo syni mína. Ég vissi alveg framhaldið þá. Ég var samningsbundin félagi þegar ég eignaðist annan son minn en núna var ég ekki samningsbundin. Ég held ég þurfi bara að skoða hvað hentar fjölskyldunni og mér sem móður,“ segir Dagný. Fannst hún bara kölluð til vegna meiðsla Ísland spilar í haust afar mikilvæga leiki um að komast á HM í fyrsta sinn, í Brasilíu næsta sumar, og eflaust freistar það mót Dagnýjar. Hún er hins vegar rétt að komast af stað eftir fæðingu þriðja sonarins og fannst staða sín í landsliðinu auk þess ekki sterk áður en hún varð ólétt að honum. Dagný Brynjarsdóttir hóf að spila með landsliðinu árið 2010 en er hér á ferðinni gegn Sviss á EM 2025, sínu fjórða stórmóti.Getty/Aitor Alcalde „Ég upplifði ekki eins og það væri eitthvað verið að sækjast eftir mér þegar ég spilaði fyrir West Ham, eftir að hafa eignast annan son minn. Að mörgu leyti var ég bara kölluð aftur inn í landsliðið af því að það var mikið af meiðslum hjá miðjumönnum og þannig nýtti ég tækifærið. Á þeim tíma var ég að spila í einni bestu deild í heimi en var ekki eftirsóknarverð fyrir landsliðið þannig að ég er ekki alveg að sjá það núna, þegar ég er að spila með Selfossi í Lengjudeildinni, að það sé verið að sækja eftir mér sem ég skil alveg. Það er ekki skref sem ætti að hjálpa mér að fara í landsliðið. Ég er í öðruvísi stöðu núna en þegar ég spilaði fyrir West Ham þá var ég ósátt við að vera ekki valin í landsliðið af því ég var að spila á það háu leveli, með það góðum leikmönnum. En núna get ég ekkert kvartað að vera ekki valin í landsliðið af því ég er ekki að spila á háu leveli.“ Heldur Dagný þá að hún eigi eftir að spila fleiri landsleiki? „Ég veit það ekki. Mér fannst fínt að taka núna fyrsta skrefið með Selfossi í Lengjudeildinni. Það eru náttúrulega bara fimm mánuðir síðan ég átti barn svo þetta er getustig sem hentar fínt á þessum tímapunkti. En ef ég er alveg hreinskilin þá veit ég ekkert með framhaldið. Ég hef ekkert verið að spá í það og ætlaði ekki endilega að taka slaginn með Selfossi núna í sumar. Félagsskiptin fóru í gegn rétt fyrir miðnætti og við vorum ekki einu sinni búin að semja. Þetta skeði einhvern veginn allt á seinustu stundu.“
Landslið kvenna í fótbolta Tengdar fréttir „Sýnir hvað þau eru þakklát fyrir það sem ég gaf klúbbnum“ „Þetta er bara ótrúlega mikill heiður, skemmtilegt og spennandi,“ segir Dagný Brynjarsdóttir sem á dögunum var gerð að sendiherra enska knattspyrnufélagsins West Ham, fyrst kvenna utan Engalnds. 14. september 2026 15:00 Mest lesið „Þróunin á Íslandi sorgleg síðan ég var hér síðast“ Íslenski boltinn Ögrandi herferð Sweeney gagnrýnd: „Get ekki lýst því hvað ég er reið“ Sport Fékk símtal frá Þorsteini í þetta sinn en er óviss um landsliðið Fótbolti Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Körfubolti Milner aftur til Liverpool Enski boltinn Fúlir foreldrar fá svarta spjaldið Fótbolti „Hann er betri útgáfa af Gerrard“ Enski boltinn Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Enski boltinn VAR dómararnir í bann eftir mistök helgarinnar Enski boltinn Dagskráin: Stórleikur á Englandi og bikarmeistarar í dalnum Sport Fleiri fréttir „Blikarnir geta sleppt sér lausum“ Fékk símtal frá Þorsteini í þetta sinn en er óviss um landsliðið Sjáðu veislu Leeds og markið sem gerði framherjann brjálaðan „Hann er betri útgáfa af Gerrard“ Sjáðu mörkin: Bomba í slá og inn beint af æfingasvæðinu Fúlir foreldrar fá svarta spjaldið „Þróunin á Íslandi sorgleg síðan ég var hér síðast“ Richarlison sorgmæddur: „Af hverju?“ Milner aftur til Liverpool Coutinho og Neymar sameinaðir á ný „Get ekki beðið eftir leiknum í Frostaskjóli“ Uppgjörið: Víkingur - Keflavík 4-1 | Annað skref í átt að titlinum Leedsarar léku sér að Newcastle Magnaður Malen og Inter kom til baka VAR dómararnir í bann eftir mistök helgarinnar Stefnir í spennandi toppbaráttu Íslendinganna Enn með fullt hús og spilað 46 leiki án taps Goðsögn hjá West Ham fallin frá „Sýnir hvað þau eru þakklát fyrir það sem ég gaf klúbbnum“ „Eins og þeir séu hræddir við að vinna“ Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Sjáðu sturlað mark Tómasar, rassamark Vals og tvennur Galdurs og Benedikts Rio betri en Barcola: „Ekki þess virði sem þeir keyptu hann á“ Slagsmál á æfingu trufluðu ekki: „Litlar stimpingar með stórum afleiðingum“ Guðný fagnaði sigri með fimm mánaða dóttur og fékk kórónuna Sjáðu ólöglega sigurmarkið og rauðu spjöldin Fámáll um orðrómana Sjokk fyrir Róbert: „Heyrist hátt brak og maður varð hræddur“ „Markið hefði ekki átt að standa“ „Þetta er bara svo ógeðslega dýrt“ Sjá meira
„Sýnir hvað þau eru þakklát fyrir það sem ég gaf klúbbnum“ „Þetta er bara ótrúlega mikill heiður, skemmtilegt og spennandi,“ segir Dagný Brynjarsdóttir sem á dögunum var gerð að sendiherra enska knattspyrnufélagsins West Ham, fyrst kvenna utan Engalnds. 14. september 2026 15:00