Hull enn taplaust í deildinni Andri Broddason skrifar 12. september 2026 13:47 Hull City var í þriðja sæti deildarinnar fyrir leikinn. George Wood/Getty Images Lið Hull City hélt áfram að vera taplaust í ensku úrvalsdeildinni þegar liðið heimsótti Chelsea í fjórðu umferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag. Hull City lenti undir snemma leiks en liðið ætlaði ekki að gefast upp og endaði leikurinn á 2-2 jafntefli. Sókn Chelsea-liðsins hefur verið góð á þessu tímabili og hefur liðið ekki átt í vandræðum með að skora. Í sókn Chelsea eru Joao Pedro, Cole Palmer og Morgan Rogers sem spila stærstu hlutverkin en það var sá síðastnefndi sem kom Chelsea í forystu leiksins. Lið Hull var hálfpartinn sofandi á verðinum í byrjun leiks en liðið var ekki lengi að vakna eftir að hafa fengið á sig mark. Á 28. mínútu jafnaði Mohamed Belloumi metin fyrir Hull eftir vandræðagang í vörn Chelsea. Sagan hjá Chelsea virðist vera að vörn liðsins sé jafn léleg og sóknin er góð. Við markið fékk Belloumi blóð á tennurnar og kom Hull í forystuna sex mínútum síðar. Lið Hull hefur byrjað tímabilið í deildinni frábærlega og virðist það ætla engan endi að taka. Í seinni hálfleik náði Joao Pedro að jafna metin fyrir Chelsea eftir vel útfærða sókn hjá honum og Cole Palmer. Hann tók tvo varnarmenn á og gaf frábæra fyrirgjöf á Pedro sem gat ekki gert annað en að klára færið. Bæði lið reyndu að sækja jöfnunarmarkið undir lok leiks en hvorugt liðið náði því og enda liðin á því að deila stigum. Hull City situr því í þriðja sæti deildarinnar taplaust þegar liðið er búið að spila fjóra leiki. Chelsea liðið er með sjö stig og þar sem eina tap liðsins kom gegn Englandsmeisturunum Arsenal. Enski boltinn Chelsea FC Hull City AFC