Hvers eiga fatlaðir og foreldrar þeirra að gjalda? Margrét Össurardóttir skrifar 10. september 2026 13:15 Að eiga barn er Guðs gjöf og ekki eru allir svo heppnir að eignast barn. Að eiga fatlað barn er einnig Guðs gjöf, er einhver munur? Já, mikill munur, fatlaða barnið þarf meiri þjónustu og umönnun en það „heilbrigða“ oft á tíðum. Við sem búum á Íslandi erum svo heppin að kalla þjóðfélagið okkar „Velferðar samfélag“, allir eru jafnir fyrir lögum og reglum. Alþingi Íslands lögfesti Samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks árið 2025 sem var mikið réttindamál fyrir fatlað fólk. En voru samt búnir að draga lappirnar í mörg ár áður en hann var lögfestur. Við foreldrar fatlaðra barna stöndum vaktina fyrir börn okkar, og hef ég staðið vaktina með minni dóttur s.l. 21 ár. Þurft að berjast fyrir ansi mörgum réttindum sem hún hefur átt rétt á. Oft á tíðum bregst hið opinbera við á neikvæðan hátt eða dregur lappirnar líkt og Alþingi gerir af og til. Núna t.d. er þolinmæði mín á þrotum er kemur að Hafnarfjarðarbæ, þar sem við búum. Barn mitt hefur haft Liðveitendur/Liðveislur síðan hún var 6-7 ára gömul og hef ég notað liðveislurnar til að létta mér sporin og álag, má s.s. illa við að liðveislan detta út við daglegt amstur. Okkur til happs, þá hefur það ekki verið neitt vandamál að finna liðveislur þegar við þurfum þær, en eins og með þær, þá breytist lífið oft og þær þurfa að hætta af ákveðnum orsökum. Á þessu ári erum við að skipta um liðveislu í annað sinn, í fyrra skiptið, tók það bæinn 7 vikur að kalla inn þann einstakling sem við vildum fá sem liðveislu fyrir dóttur mína frá því að bærinn fékk umsóknina inn á borð til sín, 7 VIKUR! Ekki nóg með það, viðkomandi var þá þegar í starfi fyrir bæinn að vinna með fötluðum. Að sögn starfsmanns Hafnarfjarðarbæjar fyrir þessum drætti væri að það yrði að taka umsóknir í röð eftir því sem þær bærust inn í gegnum net til bæjarins. Ath. Það tekur styttri tíma að afgreiða umsóknir sem skólum berst. Í kjölfarið var mér sagt að búið væri að einfalda ferilinn. Núna erum við að skipta um liðveislu í annað sinn (dóttir mín er með tvær). Ég sendi tölvupóst á bæinn 21. júlí s.l. með tilkynningu um að ein liðveislan þyrfti að hætta en ég væri búin að finna aðra og upplýsingar um hana, jafnframt væri hún að starfa með fötluðum hjá bænum. Ég fékk svar 6. Ágúst að málið yrði sett í forgang, hún kölluð inn og látin skrifa undir samning. Núna eru komnar rúmar 7 vikur. Ekki hefur heyrst, hvorki hósti né stuna frá bænum. Mér fallast hendur! Hvergi sést í þá einföldun kerfisins sem mér var tjáð. Ég áfellist ekki starfsmenn bæjarins, en það kemur þó fyrir sú hugsun upp í hugann, hvort verið sé að sinna vinnunni sinni. Það er greinilegt að kerfið er ekki að vinna fyrir fólkið sem þarfnast þess. Fyrir mér sem notanda, þá eru hlutirnir ekki í lagi, í stórkostlegu ólagi! Höfundur er móðir fatlaðs einstaklings. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Málefni fatlaðs fólks Hafnarfjörður Mest lesið Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreind kallar á nýja hugsun í rekstri Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun Grein sálfræðings um að læra að opna sig Dávur í Dali skrifar Skoðun Seðlabankastjóri kominn í bakkgírinn Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson skrifar Skoðun Gervigreindin sparar tíma og peninga Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Skoðun Landsvirkjun ætti að fjárfesta í íslensku reikniafli Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvar lendir sleggjan næst? Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Gaur! Vertu töffari! Sveinn Waage skrifar Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason skrifar Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Sameining lögregluumdæma – Tækifæri fyrir Búðardal Guðbrandur Tumi Gíslason skrifar Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Einkunnakerfi í öngstræti Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Ekki einu sinni Margrét Einarsdóttir getur fullyrt það Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ég gerði tilraun til lýðræðislegrar uppreisnar í VG Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Við getum í rauninni ekki tapað Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Skaðaminnkun í sautján ár – og þörfin enn mikil Sóley Kristín Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Verður Grensásvegur hjarta tónlistar í Reykjavík? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Aðför að ferðaþjónustunni Helgi Kjartansson skrifar Skoðun Farsæld barna verður ekki tryggð án fjármagns Jóhanna Erla Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar Sjá meira
Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar
Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar
Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar
Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar