„Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 10. september 2026 12:03 María Heimisdóttir landlæknir. Vísir/Anton Brink Landlæknir lítur átök innan SÁÁ mjög alvarlegum augum en starfsemi samtakanna er nú undir skoðun embættisins. Mikilvægast sé að tryggja öryggi og gæði þjónustu að mati landlæknis sem telur uppsagnir áhyggjuefni. „
Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega. Við erum í samskiptum við stjórnendur þarna daglega og fylgjumst grannt með og bendum á hvað betur megi fara. Það er okkur, eins og mjög mörgum öðrum, kappsmál að þessi þjónusta sé í sem öruggustum farvegi.“ Þetta segir María Heimisdóttir landlæknir í samtali við fréttastofu. Greint hefur verið frá átökum innan SÁÁ síðustu vikur og hafa ýmsir lýst áhyggjum af faglegu starfi samtakanna. Félagið Rótin skoraði til að mynda á heilbrigðisyfirvöld að taka stjórnskipun SÁÁ til sérstakrar skoðunar. Ýmsir stjórnendur SÁÁ hafa sagt starfi sínu lausu. Forstjóri samtakanna og fagstjóri Víkur sögðu upp í störfum í ágúst. Í kjölfarið fylgdi Valgerður Rúnarsdóttir, framkvæmdastjóri lækninga, sem sakaði stjórn SÁÁ um afskipti af faglegu starfi. Sjúkratryggingar og SÁÁ undirrituðu nýjan heildarsamning í desember sem tryggir félaginu tvo milljarða frá ríkinu til næstu fjögurra ára. María Heimisdóttir landlæknir segir embættið vera með starfsemi SÁÁ til skoðunar. „Við höfum verið að kanna fyrst og fremst öryggi sjúklinga og gæði þjónustu frá því að við fréttum fyrst af þessum atburði eða þessum breytingum þarna innan frá. Við fórum strax daginn eftir og byrjuðum að skoða þetta og erum enn þá að því og erum í daglegum samskiptum við stjórnendur þarna.“ Þóra Björk Ingólfsdóttir, fráfarandi fagstjóri á Vík, steig fram í viðtali á Vísi og sagði það fullreynt að heilbrigðisþjónusta sem þessi sé á forræði félagasamtaka. „Við kannski horfum nú ekki á þetta stjórnskipulega en kannski fyrst og fremst á gæði og öryggi. Ef það er til staðar eitthvert það fyrirkomulag sem að tryggir ekki gæði og öryggi þá hlýtur að þurfa að endurskoða það,“ segir María innt eftir viðbrögðum við þessu. Uppsagnir stjórnenda séu áhyggjuefni og lítur landlæknir málið alvarlegum augum. „Þessi skoðun er komin til vegna þessara uppsagna. Það verður niðurstaða úr þessu en ég get ekki á þessum tíma sagt til um nákvæmlega hvenær við lokum þessu máli.“
SÁÁ Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Fleiri fréttir Ekki í fyrsta sinn sem Trump stingur upp á Ísland yrði hluti af Bandaríkjunum „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft „Við erum að laga Ísland“ Sjá meira