Getum við plís lagt niður Fjölmiðlanefnd Daníel Hjörvar Guðmundsson skrifar 10. september 2026 12:18 Ein af stóru ástæðunum fyrir því að ég sóttist eftir framgangi í stjórnmálum er til að bæta nærumhverfið mitt. Ég elska landið mitt og vil að því vegni vel. Ég fer aldrei yfir á rauðu ljósi og ég reyni að borga skattana mína eftir fremsta megni. Það er samt eitt sem ég tel vera afar mikilvægt og vel til þess fallið að tryggja velsæld á Íslandi um ókomna tíð. Það er að leggja niður Fjölmiðlanefnd. Mér finnst fjölmiðlanefnd vera eiginlega algjörlega gagnslaust dæmi. Ég skil ekki af hverju við gerðum okkur þetta. Samkvæmt vefsíðu Fjölmiðlanefndar er hlutverk hennar þríþætt. Hlutverk númer 1. Að hafa eftirlit með Ríkisútvarpinu og löggjöf um fjölmiðla. Þannig stendur nefndin vörð um vernd barna (?), rétt almennings til upplýsinga, og fjölbreytni og fjölræði á fjölmiðlamarkaði. Í fyrsta lagi held ég að þau séu bara ekki neitt að pæla í því að hafa eftirlit með RÚV, það sjá það allir með augu að RÚV gerir bara nákvæmlega það sem RÚV sýnist. Í öðru lagi held ég að það sé önnur ríkisstofnun sem á að sjá um vernd barna, hún heitir það meira að segja. Í þriðja lagi er nefndin augljóslega að skreyta sig með stolnum fjöðrum ef hún ætlar að halda því fram að hún sé einhver faktor í því að réttur almennings til upplýsinga sé verndaður. Í fjórða lagi er fjölræði ekki alvöru orð. Hlutverk númer 2. Að sjá um styrkbeiðnir og úthlutun styrkja til handa einkarekinna fjölmiðla. Ein Pæling (😉), hvernig væri að leysa þetta vandamál í eitt skipti fyrir öll og taka RÚV af auglýsingamarkaði þannig einkareknir fjölmiðlar þurfi hreinlega ekki þessa styrki og skattpeningarnir mínir séu einhvern veginn ekki að ganga bæði til þeirra og RÚV eins og ég sé að tefla við sjálfan mig? Þá þarf Fjölmiðlanefnd ekki neitt lengur að sjá um þetta styrkjadæmi, og raunar þarf hún ekki neitt að vera til lengur. Hlutverk númer 3. Hér er tekið fram að þetta hlutverk sé jafnframt það umfangsmesta. Að halda úti Netvís, Netöryggismiðstöð Íslands sem sinnir bæði rannsóknum og fræðslu um allt land um félagslegt netöryggi og miðlalæsi. Þessa miðstöð hef ég aldrei heyrt um fyrr en nú og ég ætla að leyfa mér að áætla að hún hafi aldrei gert neitt fyrir mig nema að kosta peninga. Þar að auki er félagslegt netöryggi ekki alvöru orð. Hvað sem líður hinum auglýstu hlutverkum þá virðist vera að nefndin hafi mestan áhuga á því að hrella saklausa podkastara og þó ég sé enginn vinur þeirrar starfsstéttar og finnist þeir margir hverjir pirrandi þá skal ég fyrr dauður liggja en að leyfa hinu óveigjanlega ríkisvaldi knésetja einkaframtakið, þó það sé í sinni mest óþolandi mynd. Við sem sagt höfum búið okkur til þann veruleika að gagnslaus nefnd með órætt hlutverk fer um og fær að ráða hverjir eru fjölmiðlar og hverjir eru það ekki. Ef þú vogar þér að vera ósammála nefndinni færðu að bragða á dagsektum og ert nauðbeygður til að fá hagsmunum þínum borgið fyrir dómstólum með tilheyrandi kostnaði. Ég ætla ekki að gera starfs- og nefndarmönnum upp annarlegar hvatir en það gefur auga leið að það er ákveðinn freistnivandi á ferðinni þegar grundvöllur nefndarinnar er háður því að sem flestir teljist sem fjölmiðill. Fyrir hamrinum er allt nagli. Og ef podköst eru fjölmiðill er þá Instagram story hjá mér það ekki líka? Ef ég segi eitthvað upphátt í Kringlunni er það þá fjölmiðill? Bara af því ég er frægur? Ósanngjarnt. Kæru alþingismenn, ég á bráðum afmæli, ef þið gerið þetta fyrir mig þurfið þið ekki að gefa mér gjöf. Losið þjóðina undir oki Fjölmiðlanefndar. Lengi lifi podkastið. Höfundur er lögfræðingur og gaur sem á bráðum afmæli. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Fjölmiðlar Hlaðvörp Mest lesið Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson Skoðun Skoðun Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson skrifar Skoðun Gervigreindin sparar tíma og peninga Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Skoðun Landsvirkjun ætti að fjárfesta í íslensku reikniafli Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvar lendir sleggjan næst? Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Gaur! Vertu töffari! Sveinn Waage skrifar Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason skrifar Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Sameining lögregluumdæma – Tækifæri fyrir Búðardal Guðbrandur Tumi Gíslason skrifar Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Einkunnakerfi í öngstræti Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Ekki einu sinni Margrét Einarsdóttir getur fullyrt það Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ég gerði tilraun til lýðræðislegrar uppreisnar í VG Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Við getum í rauninni ekki tapað Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Skaðaminnkun í sautján ár – og þörfin enn mikil Sóley Kristín Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Verður Grensásvegur hjarta tónlistar í Reykjavík? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Aðför að ferðaþjónustunni Helgi Kjartansson skrifar Skoðun Farsæld barna verður ekki tryggð án fjármagns Jóhanna Erla Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson skrifar Skoðun Reykjavík beygir af Brynhildur Bolladóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar
Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar
Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar
Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar
Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar