Gervigreindin alls staðar Gauti Kristmannsson skrifar 9. september 2026 16:02 Gervigreindarþýðingar hafa verið í fréttum í þessari viku, Síminn kveðst ætla að nota gervigreind til að þýða erlent efni sitt og síðan fer menntamálaráðherra mikinn um að hægt sé að þýða erlent námsefni með gervigreind eins og það kosti ekki neitt. Við þetta er ýmislegt að athuga. Gervigreindarþýðingar eru ekki orðnar það góðar að þær standi undir lágmarkskröfum sem gerðar eru til þýðinga sem birta á opinberlega. Þær búa heldur ekki yfir skapandi mætti mannsheilans, þær byggja einungis á því sem áður hefur verið gert og giska því bara á eitthvað þegar þær lenda í vandræðum. Þetta er vitað og einnig að tungumálið verður almennt flatara og blæbrigðaminna en hjá mennskum þýðendum. Gæði þýðinganna eru því miklu minni og það hefur áhrif á málheim neytendanna, ekki síst þeirra yngstu. Sjónvarpsþýðingar eru sérgrein þýðinga og þær kalla ekki einungis á miðlun merkingar þess sem sagt er, heldur einnig að stytt sé á réttan hátt því að það þarf alltaf að gera til að unnt sé að lesa textana. Innlendum streymisveitum er vissulega vorkunn í samkeppni við erlendar sem ekki hafa verið skyldaðar til að vera með íslenskan texta, en stjórnvöld hafa heldur ekkert gert í því að krefjast þess af þessum fyrirtækjum sem annars bjóða upp á þýðingar á fjölda tungumála. Íslensk stjórnvöld geta vel gert þá kröfu á erlendu fyrirtækin, enda áttu þau von á því á sínum tíma, því margir þýðendur fengu fyrirspurnir frá þeim og hjá Viaplay er stundum boðið upp á íslenskan texta. Eina tilfellið sem ég veit til að gerð hafi verið krafa um íslensku var þegar Lilja Alfreðsdóttir kom að máli við Disney og eitthvað hefur verið brugðist við því af hálfu fyrirtækisins. En betur má ef duga skal. Hugmyndir Ingu Sæland um stórfelldar gervigreindarþýðingar á erlendu námsefni eru hins vegar afar einkennilegar, ekki aðeins út frá ofangreindum ágöllum á gæðum þeirra, heldur einnig þess að þetta námsefni er ekkert ókeypis og það er ekki einfaldlega hægt að taka það og láta gervigreindina þýða það á íslensku. Erlent námsefni er auðvitað höfundaréttarvarið og mér er til efs að lögmætir eigendur þess leyfi að það sé sett inn í gagnagrunna gervigreindarfyrirtækja til að þýða það á vélíslensku. Gervigreindin er vissulega alls staðar, en það er sífellt blaðrað um hana í tengslum við þýðingar; það mætti alveg eins spyrja sig hvort hún leysi ekki af öll þau störf sem byggjast á reikningi og raunvísindum, þarf manneskja að reikna út burðarþol bygginga, eða halda utan um bókhald fyrirtækja? Ég held að svarið sé já, jafnvel þótt þær manneskjur noti gervigreind til að styðja við vinnu sína. Sama á við um þýðendur sem nú þegar nota gervigreind til að styðja við sína vinnu. Gervigreindin breytir öllum störfum sem unnin eru með tölvum, en ég held að hún sé ekki fær um að koma í stað manneskjunnar sem þarf alltaf að hafa yfirumsjón með afurðinni, hver sem hún er. Höfundur er prófessor í þýðingafræði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Gauti Kristmannsson Mest lesið Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson Skoðun Skoðun Skoðun Grein sálfræðings um að læra að opna sig Dávur í Dali skrifar Skoðun Seðlabankastjóri kominn í bakkgírinn Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson skrifar Skoðun Gervigreindin sparar tíma og peninga Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Skoðun Landsvirkjun ætti að fjárfesta í íslensku reikniafli Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvar lendir sleggjan næst? Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Gaur! Vertu töffari! Sveinn Waage skrifar Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason skrifar Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Sameining lögregluumdæma – Tækifæri fyrir Búðardal Guðbrandur Tumi Gíslason skrifar Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Einkunnakerfi í öngstræti Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Ekki einu sinni Margrét Einarsdóttir getur fullyrt það Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ég gerði tilraun til lýðræðislegrar uppreisnar í VG Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Við getum í rauninni ekki tapað Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Skaðaminnkun í sautján ár – og þörfin enn mikil Sóley Kristín Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Verður Grensásvegur hjarta tónlistar í Reykjavík? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Aðför að ferðaþjónustunni Helgi Kjartansson skrifar Skoðun Farsæld barna verður ekki tryggð án fjármagns Jóhanna Erla Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar
Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar
Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar
Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar
Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar