Gjafir Inter urðu þeim að falli gegn Real Madrid

Aron Guðmundsson skrifar
Real Madrid snýr aftur í Meistaradeild Evrópu.
Real Madrid snýr aftur í Meistaradeild Evrópu. EPA/CHEMA MOYA

Real Madrid hóf deildarkeppni Meistaradeildar Evrópu á 2-1 sigri gegn Inter þegar liðin mættust á Santiago Bernabeu í kvöld. Bæði mörk Madrídinga skrifast á mistök leikmanna Inter.

Kylian Mbappé var fyrstu til þess að nýta sér mistök Inter á eigin vallarhelmingi Ítalana á 14. mínútu leiksins er hann skoraði fyrsta mark leiksins. 

Skömmu seinna reyndi Josep Martínez, markvörður Inter að leika listir sínar með boltann í eigin markteig en það fór ekki betur en svo að Federico Valverde náði af honum knettinum og tvöfaldaði í kjölfarið forystu Madrídinga. Leikar stóðu 2-0 í hálfleik Real Madrid í vil.

Martínez til varnar þá bjargaði hann sínu liði trekk í trekk í seinni hálfleik með frábærum markvörslum.

Það var síðan á 77. mínútu sem Carlos Augusto tókst að klóra í bakkann fyrir Inter með fyrsta marki liðsins. 2-1 stóðu leikar þá en Inter komst ekki nær því að vinna upp forskot Madrídinga.

Lokatölur urðu 2-1 sigur Real Madrid. José Mourinho, þjálfari Madrídinga, hafði betur gegn sínu gamla liði frá Ítalíu.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira