Innlent

Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Bíll við bíl á Suðurlandi.
Bíll við bíl á Suðurlandi. Aðsend

Þriggja bíla árekstur varð rétt austan við Sólheimajökul á sjöunda tímanum í kvöld. Fjórir voru fluttir á Landspítalann með þyrlu Landhelgisgæslunnar til aðhlynningar vegna slyssins. Þar af voru tveir alvarlega slasaðir. Langar bílaraðir hafa myndast þar sem veginum hefur verið lokað meðan á vinnu á vettvangi stendur. 

Ásgeir Erlendsson upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar segir þyrluna hafa verið kallaða út að beiðni lögreglu.

Að sögn Írisar Eddu Heimisdóttur, aðalvarðstjóra hjá Lögreglunni á Suðurlandi, voru samtals átta farþegar í bílunum þremur sem lentu í slysinu. 

Fjórir þeirra voru fluttir til aðhlynningar með þyrlu Gæslunnar til Reykjavíkur. Tveir þeirra voru alvarlega slasaðir, segir í Facebook-færslu Lögreglunnar á Suðurlandi. Tveir voru fluttir með sjúkrabíl á Heilbrigðisstofnun Suðurlands til aðhlynningar.

Lokað er fyrir umferð í báðar áttir á Suðurlandsvegi austan við Sólheimajökul meðan á vinnu á vettvangi stendur. Íris segir umferðarþunga vera á svæðinu en lögregla á vettvangi reyni að finna hjáleið sem hægt er að beina umferð annað. 

Rannsóknardeild lögreglunnar á Suðurlandi vinnur nú að vettvangsvinnu sem gæti dregist fram á kvöld, segir í færslu lögreglu. Hún biðlar til vegfarenda að sýna tillitssemi á meðan vettvangsvinnu stendur.

Á vef Vegagerðarinnar segir að búast megi við umferðartöfum á Hringvegi undan Sólheimajökli. Búist sé við því að vegurinn verði opnaður kl 21:30 að nýju.

Íris segir að nú um tíuleytið hafi verið opnað fyrir umferð aftur til vesturs en enn sé lokað til austurs. Ákveðinn tíma þurfi til þess að rannsaka tildrög slyssins. Umferðin sé nokkuð þung og langar bílaraðir hafi myndast.

Að sögn eins vegfaranda hafa sumir beðið í bílaröð í núna um tvær og hálfa klukkustund á þjóðvegi eitt á Suðurlandi.

Fréttin hefur verið uppfærð. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×