Viðskipti erlent

Flytja gull frá Banda­ríkjunum og Kanada af öryggis­á­stæðum

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Flest lönd búa yfir einhverskonar gullforða.
Flest lönd búa yfir einhverskonar gullforða. Vísir/Getty

Seðlabanki Hollands hefur flutt 86 tonn af gullforða sínum frá Bandaríkjunum og Kanada til London í Bretlandi, vegna vaxandi ólgu í alþjóðamálum. Auðveldara verði að selja gullforðann komi til neyðarástands í Bretlandi heldur en í Bandaríkjunum eða Kanada.

„Með þessu skrefi höfum við bætt nýtingarmöguleika gullforðans. Við gerum ráð fyrir að við þurfum aldrei að nýta gullið, en það er engu að síður nauðsynlegt að styrkja seiglu okkar og viðbúnað,“ hefur breski miðillinn Guardian eftir Olaf Sleijpen, seðlabankastjóra hollenska bankans. Fyrir flutninginn geymdi hollenski bankinn 31,3 prósent af gullforða sínum í New York og 19,7 prósent í Ottawa en eftir flutninginn er hlutfallið í hvoru landi fyrir sig nú 18,5 prósent af hollenska gullforðanum.

Hlutfall gulls í eigu hollenskra stjórnvalda sem geymt er í London jókst úr 18,1 prósentum í 32,1 prósent. Bankinn geymir enn 30,8 prósent af gulli sínu í Hollandi. Flutningurinn á gullinu átti sér stað milli mars og ágústmánaða á þessu ári. Guardian hefur eftir John Plassard, sérfræðingi að aðgerðir Hollendinga séu ætlaðar til þess að tryggja skjótara aðgengi ef komi til kreppu.

Fram kemur í máli Plassard að aðrir bankar hafi viðrað áhyggjur af gullforða sínum í Bandaríkjunum vegna stöðu heimsmála. Þannig hafi ráðamenn í þýska seðlabankanum viðrað áhyggjur sínar af gullforða þýska bankans í Bandaríkjunum. Þeir hafi þó ekki tekið neina ákvörðun um að flytja gullforða frá seðlabankanum í New York.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×