Innlent

Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman

Árni Sæberg skrifar
Héraðsdómi Reykjaness hefur verið gert að taka má Skúla Tómasar til efnismeðferðar.
Héraðsdómi Reykjaness hefur verið gert að taka má Skúla Tómasar til efnismeðferðar. Vísir

Landsréttur hefur ógilt frávísunarúrskurð Héraðsdóms Reykjaness í máli læknisins Skúla Tómasar Gunnlaugssonar. Ákæra á hendur honum fyrir manndráp fær því efnismeðferð.

Skúli Tómas var ákærður fyrir manndráp og brot á lögum um heilbrigðisstarfsmenn vegna andláts konu sem lést í umönnun hans á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja árið 2019. Embætti landlæknis svipti hann lækningaleyfi árið 2021 þegar hann hafði stöðu grunaðs í fleiri andlátum á stofnuninni. Að endingu var aðeins ákært í einu máli.

Héraðsdómur vísaði ákærunni frá dómi í júlí á þeim forsendum að Skúla Tómasi hefði þegar verið refsað fyrir meint brot með því að Landlæknir svipti hann lækningaleyfi. Þannig taldi dómurinn að það myndi brjóta í bága við bann við tvöfaldri málsmeðferð að refsa honum í sakamáli.

Héraðssaksóknari kærði úrskurð héraðsdóms til Landsréttar en Skúli Tómas sneri aftur til vinnu á Landspítala í skugga kærunnar. Það þótti eðlilegt með hliðsjón af niðurstöðu héraðsdóms.

Landsréttur kvað upp úrskurð í kærumálinu þann 27. ágúst síðastliðinn. Niðurstaða réttarins var að svipting starfsleyfis Skúla Tómasar væri hvorki refsing né refsikennd viðurlög og málið hjá Landlækni væri því ekki sakamál í eðli. Því bryti það ekki í bága við bann við tvöfaldri málsmeðferð að halda sakamáli á hendur Skúla Tómasi til streitu


Tengdar fréttir

„Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“

Dóttir konu sem lést í umsjá Skúla Tómasar Gunnlaugssonar hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja segir frávísun málsins í héraðsdómi mikil vonbrigði. Hún bindur vonir við að málinu verði snúið við í Landsrétti og segir það þurfa að hafa afleiðingar að bana einhverjum. 

Skúli fagnar með „sannleikann að vopni“

Héraðsdómur Reykjaness vísaði í morgun frá máli héraðssaksóknara gegn Skúla Tómasi Gunnlaugssyni hjartalækni sem var ákærður fyrir manndráp og brot gegn lögum um heilbrigðisstarfsmenn. Héraðsdómur telur Skúla þegar hafa verið refsað vegna málsins þegar landlæknir svipti hann lækningaleyfi árið 2021.

Landlæknir hafi í raun sakfellt Skúla Tómas

Í ákvörðun Landlæknis um að svipta Skúla Tómas Gunnlaugsson starfsleyfi vegna alvarlegs brots í starfi fólst refsing að mati Héraðsdóms Reykjaness. Ekki má refsa mönnum tvisvar fyrir sama brot, og því var manndrápsákæru á hendur Skúla Tómasi vísað frá dómi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×