KR - Víkingur 1-1| Hjartahnoð Arnórs Ingva á síðustu stundu Sindri Sverrisson skrifar 1. september 2026 19:35 Gylfi Þór Sigurðsson og Aron Sigurðarson tókust vel á í kvöld. vísir/Hulda Margrét KR og ríkjandi Íslandsmeistarar Víkings Reykjavíkur gerðu 1-1 jafntefli í mögnuðum leik í Bestu deildinni þar sem að dramatíkin var allsráðandi undir lokin. Spenna er enn í titilbaráttunni eftir mark á síðustu sekúndu. Ármann Ingi Finnbogason virtist hafa tryggt Víkingum dýrmætan sigur með stórkostlegu skoti í uppbótartíma en mark frá Arnóri Ingva Traustasyni á lokasekúndu leiksins tryggði KR eitt stig. Enn munar átta stigum á milli liðanna á toppi deildarinnar og eru KR-ingar í 2. sæti, fyrir ofan Fram á markatölu, þegar sex umferðir eru eftir. Baráttunni virtist lokið en Arnór hnoðaði lífi í hana. Alls fylgdust 4.337 áhorfendur með á Meistaravöllum í rjómablíðu í kvöld og fólkið fékk helling fyrir peninginn allan leikinn, þó mörkin hafi komið í blálokin. Arnór Ingvi Traustason græjaði stig fyrir KR í lokin og fagnaði því með stuðningsmönnum.vísir/Hulda Margrét Fyrri hálfleikurinn var sérstaklega stórkostleg skemmtun þar sem liðin sóttu nánast án afláts. Galdur Guðmundsson var kominn í dauðafæri fyrir KR eftir tvær mínútur og strax í kjölfarið vildu Víkingar fá vítaspyrnu þegar það virtist brotið á Hrannari Snæ Magnússyni. Oliver Ekroth tekur í Luke Rae.vísir/Hulda Margrét KR-ingar voru ákafir í að vinna leikinn og minnka forskot KR niður í fimm stig, enda lágu Víkingar vel við höggi eftir afar stífa leikjadagskrá undanfarið og vonbrigði við að falla út úr Evrópukeppni. Þeir náðu frábærum kafla um miðjan fyrri hálfleik og þrýstu verulega á Víkinga en Oliver Ekroth og Sveinn Gísli Þorkelsson, mættur inn í stað Gunnars Vatnhamars, vörðust vel eins og allt Víkingsliðið. Víkingar virtust svo hafa komist yfir þegar Stígur Diljan Þórðarson skoraði á 37. mínútu en markið var dæmt af vegna rangstöðu. Stígur lagði svo upp algjört dauðafæri fyrir Valdimar Þór Ingimundarson í kjölfarið en skot Valdimars fór rétt framhjá. Karl Friðleifur Gunnarsson sækir að Eiði Gauta Sæbjörnssyni.vísir/Hulda Margrét Mun fleiri færi mætti nefna úr fyrri hálfleiknum en í seinni hálfleik róaðist leikurinn, þrátt fyrir að áhorfendur létu áfram vel í sér heyra. Lítið var um færi þar til að Orri Hrafn Kjartansson þrumaði svo boltanum í þverslána á marki Víkings. Víkingar urðu fyrir áfalli skömmu fyrir lok venjulegs leiktíma þegar Sveinn Gísli fór upp í skallaeinvígi, datt illa á jörðina og handleggsbrotnaði. Það voru samt Víkingar sem komust yfir þegar varamaðurinn Ármann Ingi Finnbogason skoraði á annarri mínútu uppbótartíma með marki úr efstu hillu. Aron Sigurðarson bætti ekki markametið í kvöld en það styttist eflaust í það.vísir/Hulda Margrét Tíu stiga forskot blasti við Víkingum á toppi deildarinnar en sóknargleði KR-inga bar ávöxt á síðustu sekúndu þegar Arnór Ingvi skoraði jöfnunarmarkið. Hann hljóp og náði í boltann í netið en enginn tími gafst fyrir sigurmark. Atvik leiksins Það kom á síðustu sekúndu þegar Arnór Ingvi bjargaði Íslandsmótinu. Auðvitað er forskot Víkinga verulega gott en það er þó alla vega enn möguleiki á að KR eða Fram taki af þeim toppsætið. Næsti leikur Víkings er við Framara og svo taka við afar erfiðir leikir eftir að deildinni verður skipt í tvennt og spurning hve mikil orka er eftir á tanknum hjá Víkingsliðinu. Leikmenn og dómarar mættu í uppháhaldstreyjum vegna Treyjudagsins sem er á föstudaginn.Vísir/Hulda Margrét Stjörnur og skúrkar Verulega jafn og spennandi leikur en á engan hallað að nefna Finn Tómas Pálmason sem var stórkostlegur í miðri vörn KR og virtist alltaf geta lesið leikinn þannig að hann næði að slíta í sundur sóknir gestanna. Að sama skapi gekk Oliver Ekroth afar vasklega fram í vörn Víkings, of vasklega að sumra mati, og Sveinn Gísli var sömuleiðis sterkur. Fram á við áttu margir góða spretti en erfitt að pikka einhverja sérstaklega út. Ármann Ingi Finnbogason fagnar markinu sem margir héldu að yrði sigurmark leiksins.vísir/Hulda Margrét Halldór Snær Georgsson, markvörður KR, sofnar líklega svolítið seint eftir að misheppnuð sending hans endaði með marki Víkings en hann átti annars góðan leik. Dómarinn Ívar Orri Kristjánsson og hans aðstoðarmenn komust afar vel frá leik með ógnarháu spennustigi innan sem utan vallar. Gat ekki betur séð en að þeir næðu stóru ákvörðununum réttum, til dæmis að dæma ekki víti á Gabríel Hrannar snemma leiks og að dæma rangstöðu þegar Stígur Diljan skoraði um miðjan fyrri hálfleik. Hins vegar nokkrar minni ákvarðanir sem virtust rangar. Stemning og umgjörð Þriðjudagur klukkan hálfsex hljómar kannski ekki sexí en maður minn hvað það var góð stemning í Vesturbænum í kvöld. Veðrið algjörlega upp á tíu en Miðjan líka sjaldan betri og hún yfirgnæfði vissulega hina öflugu stuðningsmenn Víkings að þessu sinni. Hingað voru allir sem eru eitthvað mættir og fengu einhverja allra bestu skemmtun sem í boði er hér á landi, þvert á íþróttir og listgreinar. Aron: Þeir eru bensínlausir með besta lið landsins á hælunum „Við eigum að vinna þennan leik. Maður er svekktur núna. Við spiluðum vel og áttum að fá meira út úr leiknum,“ sagði Aron Sigurðarson, fyrirliði KR, kokhraustur eftir leik. „Við erum bara betra lið. Þeir eru bensínlausir. Haltrandi. Ef þeir ná að haltra í átt að þessum titli þá bara „fair play“ en þeir eru með besta lið landsins á hælum sér. Við munum gera okkar og sjáum hverju það skilar fyrir lokaleikinn í Víkinni. En það sjá allir að við erum besta liðið á landinu í dag,“ sagði Aron. Hann vildi ekki staldra neitt við misheppnaða sendingu Halldórs Snæs sem leiddi til marks Víkinga: „Þetta er bara fylgifiskur þess hvernig við spilum. Áfram gakk og við förum ekki að væla yfir þessu. Það eru allir að fara að klikka á sendingum í liðinu okkar. Síðan gerðu þeir bara fáránlega vel úr þessu. Svona er þetta.“ KR náði að jafna á síðustu sekúndu en fékk ekki tækifæri til að sækja sigurmark og er átta stigum á eftir Víkingum. „Auðvitað þurftum við að vinna þennan leik. Flautað af á 95. mínútu. Tvö mörk skoruð í uppbótartíma og kannski hefði mátt gefa þessu 30 sekúndur í viðbót. Gefa aðdáendunum aðeins meira. En það eru sex leikir eftir, við gerum okkar og sjáum hverju það skilar. Það er allt opið í þessu og ég sé þá alveg tapa fullt af stigum.“ KR Víkingur Reykjavík Besta deild karla Íslenski boltinn