Sport

„Stemning í hópnum og við reynum að láta verkin tala“

Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar
Guðmundur Kristjánsson, fyrirliði Stjörnunnar, vildi sem minnst segja um þjálfarafíaskóið sem hefur verið í kringum félagið undanfarnar vikur.
Guðmundur Kristjánsson, fyrirliði Stjörnunnar, vildi sem minnst segja um þjálfarafíaskóið sem hefur verið í kringum félagið undanfarnar vikur. VÍSIR/HULDA MARGRÉT

Stjarnan sótti þrjú mikilvæg stig með 2-0 sigri á Breiðablik í 21. umferð Bestu deildar karla. Félagið hefur mikið verið á milli tannanna á fólki undanfarnar vikur en Guðmundur Kristjánsson, fyrirliði liðsins, sagði stemninguna í hópnum vera góða og að leikmenn láti verkin tala núna.

„Mér fannst við alveg töluvert sterkari aðilinn í fyrri hálfleik. Ég held að þeir hafi verið með meiri possession en mér fannst við alltaf skapa eitthvað, vorum hættulegir og sköpuðum góð færi,“ sagði Guðmudnur, fyrirliði Stjörnunnar, eftir leik.

„Við vorum kannski á tímabili full aftarlega og full lítið að halda boltanum. En þá kannski kemur í ljós að liðið okkar líður þokkalega vel í svona stöðu núna, sem var ekkert endilega alltaf áður og það var þægileg tilfinning.“

„Við erum með hættulega menn fram á við, sem eru góðir einn á einn og fljótir. Það getur hentað stundum að fá liðin aðeins framar, þá fáum við svæði til að sækja í, þannig að þetta fer okkur bara þokkalega vel og mér finnst við svona bara gera þetta þokkalega í dag.“

Það hefur mikið verið rætt um félagið og stjórnina undanfarnar vikur en það virðist ekki hafa haft mikið áhrif á liðið.

„Já, ég meina, við látum verkin tala. Það var einn sem mætti hérna með striga í viðtal og málaði upp einhverja mynd sem ekkert endilega allir könnuðust við. Ég vil bara hafa sem fæst orð um það en það er frábær stemning í hópnum og við reynum að láta verkin tala núna. Við erum að spila fínt, góðir sigrar og búnir að skora mörk og svo höldum við hreinu í dag.“

„Þannig að fyrir okkar leyti þá líður okkur helvíti vel og erum bara ánægðir með lífið,“ sagði Guðmundur að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×