Sport

„Ó­öruggir og við þurfum að laga það“

Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar
Ólafur Ingi, þjálfari Breiðabliks, segir handbremsu vera á liðinu á síðasta þriðjungi vallarins.
Ólafur Ingi, þjálfari Breiðabliks, segir handbremsu vera á liðinu á síðasta þriðjungi vallarins. Vísir / Diego

Breiðablik tapaði 0-2 gegn Stjörnunni í 21. umferð Bestu deildar karla í kvöld. Ólafur Ingi Skúlason, þjálfara Breiðabliks, taldi skortur á trú og sjálfsöryggi eiga sinn þátt í frammistöðu liðsins.

„Þetta er svolítið bara déjà vu frá síðasta leik hjá okkur,“ sagði Ólafur Ingi eftir leikinn.

„Við vorum meira með boltann í fyrri hálfleik án þess að skapa okkur nokkurn skapaðan hlut. Við vorum mikið inni á okkar eigin vallarhelming og komumst hvorki lönd né strönd. Við vorum passífir þegar við fundum ógnanir, litlir inni á síðasta þriðjung og lélegar fyrirgjafir. Það vantaði bara allan brodd í okkur á meðan Stjörnumenn voru miklu beinskeyttari fannst mér.“

Það var allt annað að sjá heimamenn sem komu öflugir inn í síðari hálfleik en  það gekk þó lítið upp á síðasta þriðjungi hjá liðinu.

„Heilt yfir fínasti síðari hálfleikur. En aftur erum við að grafa okkur holu sem er bara erfitt að komast upp úr og hérna, og það er áhyggjuefni.“

Ólafi fannst blanda af trú og sjálfsöryggi eiga sinn þátt í frammistöðu liðsins á síðasta þriðjungi vallarins.

„Mér finnst kannski blanda af svona trú og hún kemur auðvitað með meira sjálfsöryggi og sjálfstrausti. Það hefur gengið brösuglega hjá okkur að fá stig og frammistöðurnar hafa verið upp og niður, sérstaklega innan leikja. Við höfum átt mjög góða hálfleika og mjög slaka hálfleika og það er svona einhver hálfgerð handbremsa á okkur inn á síðasta þriðjung.“

„Við erum að hvetja menn bara til þess að láta ríða á vaðið og eins og ég segi, við erum bara á þannig stað í deildinni að við höfum í sjálfu sér engu að tapa akkúrat núna. Við þurfum bara að njóta þess að spila fótbolta og bara keyra svolítið á þetta , það eru bara okkar skilaboð. Inni í teigunum þá erum við pínu óöruggir og við þurfum að laga það.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×