Innlent

Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjör­borðinu

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar
Hæg breytileg átt eða hafgola á landinu í dag.
Hæg breytileg átt eða hafgola á landinu í dag. vísir/vilhelm

Bjart er með köflum og þurrt suðvestanlands þegar landsmenn ganga til atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið.

Hæg breytileg átt eða hafgola á landinu í dag. Stöku skúrir, einkum norðvestantil og á Suðurlandi en bjart með köflum og þurrt vestanlands. Hiti á bilinu sex til þrettán stig, hlýjast sunnanlands en víða líkur á næturfrosti.

Víða skúrir á morgun, einkum síðdegis en rigning austast á landinu. Hiti verður á bilinu sjö til fjórtán stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×