Fótbolti

Róbert Frosti og Daníel Tristan á skotskónum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Róbert Frosti í leik með GAIS. Hann gerði tvennu í dag. 
Róbert Frosti í leik með GAIS. Hann gerði tvennu í dag.  Mynd: GAIS

Róbert Frosti Þorkelsson skoraði tvö mörk fyrir GAIS í sænska bikarnum í dag.

Liðið slátraði Husqvarna 7-0. Róbert gerði fyrsta mark leiksins strax á sjöttu mínútu og gerði hann síðan fjórða mark liðsins á 58. mínútu.

Þá skoraði Daníel Tristan Guðjohnsen fyrir Malmö sem vann þægilegan sigur á á Lindo 5-1. Daníel skoraði þriðja mark Malmö í leiknum og það í uppbótartíma.

Liðin fóru því bæði þægilega áfram.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×