Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar 26. ágúst 2026 13:32 Íslenskur landbúnaður verður ekki endurreistur á einni nóttu ef gæði og sérstaða afurða hverfa. Þekking, reynsla, sjálfbær nýting landgæða og samheldni samfélaga í sveitum byggjast upp á áratugum. Þess vegna á að fara varlega með ákvarðanir sem breyta starfsumhverfi greinarinnar til frambúðar. Laugardaginn 29. ágúst er kosið um hvort hefja skuli á ný viðræður um aðild að ESB. Það er jákvætt að þjóðin ákveði framhaldið. En tímasetningin er óheppileg og undirbúningurinn hefði þurft að vera miklu betri. Svo virðist sem stjórnvöld skorti virðingu fyrir tækifærum og mikilvægi íslenskrar matvælaframleiðslu. Óundirbúið ferli verður engum til góðs Matvælaframleiðsla byggist á langtímahugsun og jarðir tengjast fjölskyldum kynslóðum saman. Bændur og frumkvöðlar sem endurnýja tækjabúnað eða byggja fjós og vinnsluaðstöðu þurfa fyrirsjáanleika. Boðuð hafa verið uppfærð samningsmarkmið, kjósi þjóðin að hefja viðræðurnar að nýju. En fyrir löngu hefði þurft að liggja skýrt fyrir hvað Ísland ætlar að verja og hvaða áhrif hugsanleg aðild gæti haft á íslenska matvælaframleiðslu. Verði niðurstaðan „já“ er veruleg hætta á að viðræður hefjist án nægilega skýrra markmiða og fullnægjandi undirbúnings.“ Skýr markmið þurfa jafnframt að byggjast á raunsærri mynd af því hvað aðild felur í sér. Of oft er ESB rætt ýmist sem lausn á öllu eða ógn við allt íslenskt. Hvorugt er rétt. Evrópusamvinna er Íslandi lykilatriði. En samvinna og full aðild eru ekki sama málið. Við aðild yrði Ísland hluti af tollabandalagi ESB og íslenskur landbúnaður félli undir sameiginlega landbúnaðarstefnu sambandsins. Tollvernd gagnvart landbúnaðarvörum frá öðrum aðildarríkjum myndi því að meginstefnu falla niður og stuðningskerfið þyrfti að laga að reglum ESB. Það myndi gjörbreyta núverandi umgjörð íslensks landbúnaðar. Hvernig matvælaframleiðslu viljum við? Framleiðslan gæti í auknum mæli færst á færri og stærri bú, eins og þróunin hefur orðið víða erlendis. Er það landbúnaðurinn sem við viljum? Eða viljum við smærri fjölskyldubú, heilnæmar afurðir, dreifða framleiðslu og áframhaldandi byggð í sveitum landsins? Kjósum við hið síðara þarf að liggja fyrir hvernig það verði tryggt, hvort sem af aðild verður eða ekki. Gleymum ekki að landbúnaður hér starfar við allt aðrar aðstæður en víðast í Evrópu: heimamarkaðurinn er lítill, ræktunarskilyrði erfið og framleiðslukostnaður hár. En í sérstöðu okkar felast jafnframt mikil tækifæri. Töpum ekki verðmætum framtíðarinnar Okkur er tamt að horfa á kostnað dagsins og það er á margan hátt skiljanlegt. En kostnaður í dag kann að verða forsenda stóraukinna verðmæta síðar. Heilnæmi, lítil sýklalyfjanotkun, rekjanleiki og jákvæð ímynd Íslands eru samkeppnisforskot á heimsvísu. Verði Ísland aðili að ESB breytist umgjörðin og ekki verður auðvelt að snúa aftur. Þjóðin hefði þess vegna þurft miklu skýrari svör áður en lengra er haldið: Hvernig tryggjum við fæðuöryggi, sveitir í byggð og þau verðmæti sem framleiðslan getur skapað? Og hvernig leggjum við grunn að stórsókn í verðmætasköpun? Svara þarf þessum spurningum fyrst af öllu. En afstaða Framsóknar er skýr: aðild að ESB þjónar ekki hagsmunum Íslands. Höfundur er bóndi og alþingismaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þórarinn Ingi Pétursson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“ ? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson skrifar Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson skrifar Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Lágir vextir og lágt vöruverð? Reynir Zoëga skrifar Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar