Erlent

Stjórn­völd í Íran hyggjast banna sam­skipti við er­lenda miðla

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Fyrirhuguð löggjöf er sögð munu skera á samskipti Írana við umheiminn.
Fyrirhuguð löggjöf er sögð munu skera á samskipti Írana við umheiminn. Getty/Morteza NIkobazl

Stjórnvöld í Íran hafa í hyggju að koma á lögum sem banna íbúum landsins að eiga samskipti við erlenda fjölmiðla. Bannið mun meðal annars hafa áhrif á íranska blaða- og fræðimenn og þá verður mögulega ólöglegt að tjá sig á samfélagsmiðlum á borð við Instragram og X.

Lögmaðurinn Moein Khazaeli, sem ráðleggur írönskum aðgerðasinnum, segir íbúa ekki munu mega eiga í nokkrum samskiptum við erlenda miðla; ekki veita viðtöl og ekki mega senda þeim myndir, svo dæmi séu tekin. Hafi þeir ekki fengið leyfi áður hjá yfirvöldum muni þeir eiga yfir höfði sér að vera sendir í fangelsi.

Stjórnvöld hafa löngum viðhaft ritskoðun og blaðamenn verið dæmdir á vafasömum forsendum en Khazaeli segir um að ræða töluverða stigmögnun, sem muni færa Íran í átt að Norður-Kóreu.

Bahar Ghandehari, framkvæmdastjóri hjá Center for Human Rights in Iran, segir fyrirhugaða löggjöf munu gera Íran að „svartholi“. Lögin séu tilraun til að skera á tengsl almennings í Íran við umheiminn.

BBC greindi frá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×