Sport

Hátt hlut­fall heila­skaða hjá látnum leik­mönnum

Siggeir Ævarsson skrifar
Þrátt fyrir hjálma og hlífðarbúnað eru höfuðmeiðsli þrálát í NFL deildinni.
Þrátt fyrir hjálma og hlífðarbúnað eru höfuðmeiðsli þrálát í NFL deildinni. vísir/Getty

Ný rannsókn hefur varpað ljósi á hversu gríðarlega algengur heilaskaði er meðal fyrrum leikmanna í NFL deildinni. Lengi hefur verið vitað um áhættuna en svona háar tölur hafa ekki áður verið staðfestar með læknisfræðilegum aðferðum.

Á árunum 2016-2021 létust alls 878 fyrrum leikmenn deildarinnar og 235 þeirra höfðu samþykkt að læknar mættu rannsaka heila þeirra að þeim látnum. Kom í ljós að 215 þeirra voru með einkenni heilasjúkdómsins CTE (e. chronic traumatic encephalopathy).

Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að það er um fjórum sinnum líklegra að leikmenn NFL látist af heilaskaða en meðalmaður. Vandamálið er þó ekki eingöngu bundið við NFL deildina en ljóst þykir að fjölmargir leikmenn verða fyrir heilaskaða eftir endurtekin höfuðhögg í framhalds- og háskóla sem og í yngri flokkum.

NFL deildin hefur stigið skref í áttina til þess að minnka áhættuna fyrir leikmenn en árið 2011 var samið um að takmarka fjölda æfinga þar sem snertingar eru leyfðar.

Þá samdi deildin árið 2016 um að greiða alls einn milljarð í bætur til yfir 5.000 leikmanna sem höfðu staðið í fjöldamálsókn gegn deildinni.

Nánar má lesa um rannsóknina á vef BBC.

NFL

Tengdar fréttir

Höfuðhöggin á ferlinum valdi heilabilun

Ruðningskappinn fyrrverandi Roger Craig vakti athygli á áhrifum höfuðhögga í NFL-deildinni í ræðu vegna inntöku hans í frægðarhöll deildarinnar. Hann greindi frá greiningu sinni á heilabilun og kennir höfuðhöggum um.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×