Nýr Nissan LEAF er á leiðinni BL 27. ágúst 2026 08:03 Frumsýning verður á laugardaginn 29. ágúst, milli kl. 12 og 16 hjá BL, Sævarhöfða 2. Einn vinsælasti rafbíll heims snýr aftur í glæsilegri nýrri útgáfu sem byggir á yfir 15 ára reynslu Nissan af rafbílum. Frumsýning verður á laugardaginn 29. ágúst, milli kl. 12 og 16 hjá BL, Sævarhöfða 2.
LEAF átti stóran þátt í að gera rafbíla að raunhæfum valkosti í daglegu lífi og er nú tilbúinn fyrir næsta kafla rafbílasögunnar. Nýr LEAF sameinar fallega hönnun, rúmgott innra rými, snjalla tækni og er með enn meiri drægni en áður. Hann er 100% rafknúinn, hagkvæmur í rekstri og fáanlegur á frábæru verði; 5.490.000 kr. að teknu tilliti til styrks frá Orkusjóði. Rafbíllinn sem ruddi brautina er kominn í nýjan búning Þegar Nissan LEAF kom á markað árið 2010 voru rafbílar enn langt frá því að vera almennur valkostur fyrir heimili. Nissan LEAF var fyrsti fjöldaframleiddi 100% rafbíllinn fyrir almennan markað og átti stóran þátt í að gera rafbíla að raunhæfum valkosti í daglegu lífi. Nú snýr hann aftur í nýjum búningi, með nýrri tækni sem byggir meðal annars á 15 ára reynslu LEAF-eigenda um allan heim. Nýr LEAF er þróaður með hliðsjón af raunverulegri reynslu fyrri kynslóða bílsins. Sú þekking hefur mótað hann frá grunni og er útkoman bíll sem er enn betur sniðinn að daglegu lífi. „LEAF er einn þekktasti rafbíll heims. Um 700.000 LEAF-bílar hafa verið seldir á heimsvísu og reynslan sem hefur safnast frá hundruðum þúsunda eigenda og af um 12 milljörðum ekinna kílómetra hefur nýst Nissan við þróun nýju kynslóðarinnar.“ Falleg hönnun, fullkomnari tækni og meiri drægni Fyrri kynslóðir LEAF voru þekktar fyrir skynsemi og hagkvæmni. Nýi bíllinn heldur í skynsemina og bætir í hagkvæmnina en er nú mun sportlegri en áður! Hönnunin einkennist af aflíðandi, straumlínulöguðu yfirbragði sem sækir innblástur í japönsk katana-sverð. Sléttur undirvagn bætir loftflæði, dregur úr loftmótstöðu og stuðlar að aukinni orkunýtni. Nýr Nissan LEAF verður fáanlegur með tveimur rafhlöðustærðum, 52 kWh og 75 kWh, þannig að kaupendur geta valið á milli hagkvæmrar útgáfu fyrir daglegan akstur og langdrægari útgáfu fyrir meiri sveigjanleika. Með stærri rafhlöðunni er drægnin allt að 622 km WLTP-drægni. Verðlaunaður áður en hann kemur í sýningarsal Nýr Nissan LEAF hefur þegar vakið mikla athygli og hlotið fjölda viðurkenninga frá alþjóðlegum bílasérfræðingum. Bíllinn var meðal annars valinn „Bíll ársins“ af Women's Worldwide Car of the Year, sem undirstrikar sterka stöðu hans meðal nýrra rafbíla á markaðnum. Nýr LEAF vann jafnframt til þrennra verðlauna á Buzz Awards, þar sem hann var útnefndur „Bíll ársins 2026“, „Besti rafbíllinn“ og „Besti hagkvæmi bíllinn“. Þessar viðurkenningar endurspegla áherslu Nissan á að sameina hagkvæmni, notagildi og rafdrifna tækni í bíl sem hentar fjölbreyttum þörfum ökumanna. Viðurkenningarnar létu ekki þar við sitja því Nissan LEAF hlaut einnig „Val ritstjóra“ á Autotrader Drivers’ Choice verðlaunahátíðinni 2026. Saman sýna þessi verðlaun að ný kynslóð LEAF hefur fengið jákvæðar viðtökur fyrir heildstæða nálgun sína á rafakstri, þar sem áhersla er lögð á bæði daglegt notagildi og hagkvæman rekstur. Frá innanbæjarsnattinu, í helgarferðina Með allt að 622 km drægni tekur nýr LEAF stórt skref fram á við sem fjölhæfur aðalbíll heimilisins, hvort sem um er að ræða daglegar ferðir í vinnu og skóla eða lengri ferðalög um helgar og í fríum. „Það er ánægjulegt að sjá nýjan LEAF snúa aftur í þessari mynd. Bíllinn sem ruddi brautina fyrir rafbíla er nú orðinn nákvæmlega sá rafbíll sem fólk gerir kröfur um í dag. Langdrægur, tæknivæddur, rúmgóður og á mjög samkeppnishæfu verði.“ Fyrir fjölskyldur skiptir plássið ekki síður máli. 437 lítra farangursrými gefur gott svigrúm fyrir allt frá barnavagni og íþróttatöskum yfir í innkaup, ferðafarangur og útivistarbúnað. Nálgun Nissan við hönnun á nýjum LEAF var skýr, rafbíllinn á ekki að þurfa að vera aukabíll heimilisins heldur geta sinnt fjölbreyttum þörfum fjölskyldunnar allt árið um kring. Hagkvæmnin styður enn frekar við þá hugsun. Uppgefin raforkunotkun er 13,4-15,8 kWh á hverja 100 km, sem gerir LEAF kleift að sameina langa drægni og hóflega orkunotkun. Það getur skipt verulegu máli þegar horft er til heildarkostnaðar við rekstur bílsins til lengri tíma, fremur en eingöngu kaupverðsins. Hugsað fyrir kuldanum Allt að 622 km er WLTP-drægni og eins og hjá öllum rafbílum hefur veður, hitastig, vindur, færð og aksturshraði áhrif á raunverulega drægni. Það skiptir sérstaklega miklu máli á Íslandi. Nýr LEAF er búinn virkri hitastýringu rafhlöðunnar og getur undirbúið rafhlöðuna fyrir hraðhleðslu þegar hleðslustöð er valin í leiðarkerfi bílsins. Rétt hitastig rafhlöðunnar getur skipt verulegu máli þegar komið er að hraðhleðslustöð í köldum aðstæðum og er þetta því veigamikil framför frá eldri kynslóðum LEAF.
Bílar Vistvænir bílar Mest lesið Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Viðskipti innlent Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Viðskipti innlent Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Viðskipti innlent Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Auknar tekjur og minni kostnaður Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Viðskipti innlent Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Viðskipti innlent Vara við skordýrum í chia-fræjum Neytendur Meta kaupir sig frá málaferlum vegna barnavelferðar Viðskipti erlent Fleiri fréttir Gluggi er ekki bara gluggi Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Nýr og ódýrari valkostur fyrir fyrirtæki sem þurfa að losa úrgang JYSK opnar nýtt og glæsilegt vöruhús í Mosfellsbæ „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Tryggðu þér betri sýnileika í gervigreindarleit og hefðbundinni leit Sex lausnir sem geta lokað stærstu öryggisgötum fyrirtækisins Drægnitölurnar komu út í plús Greiðsluáskorun Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Epli opnar nýja og glæsilega verslun í Smáralind Bylgjan slær enn met í hlustun Á bak við stórar framkvæmdir eru stórar vélar Sjá meira