Margir minnast Steins Ármanns: „Gaf okkur stærstu gjöf sem hægt er að gefa“ Jón Þór Stefánsson skrifar 23. ágúst 2026 15:11 Margir hafa skrifað færslur á samfélagsmiðlum til að minnast Steins Ármanns. Fjöldi fólks hefur ritað fallegar færslur á samfélagsmiðlum eftir að greint var frá andláti Steins Ármanns Magnússonar, leikara og grínista, sem andaðist á heimili sínu á föstudag. Í þessum færslum eru margir mannkostir Steins Ármanns taldir upp, einn þeirra er þó tekinn fram oftar en aðrir: Það er hvað hann var fyndinn.
Hér að neðan verður farið yfir nokkrar af þessum færslum. Þá má þess geta að Vísir hefur þegar í dag fjallað um færslu séra Davíðs Þór Jónssonar, sem, eins og alþjóð veit, myndaði Radíusbræður með Steini Ármanni. Ásta Hrafnhildur Gunnarsdóttir, sem stýrði Stundinni okkar um árabil meðan Steinn Ármann láði kettinum Kela rödd sína, skrifar færslu um fyrstu kynni þeirra og samstarfið í Stundinni. „Það var á Hressó fyrir að verða 40 árum að hann vatt sér að mér og spurði; „Veistu ekki hver ég er?“ Ég pírði gleraugnalaus og undrandi á rauðbirkinn mann sem glotti með augunum og hann svaraði um hæl „Ég er Flórídanamaðurinn“. Ég var engu nær og hann bætti við ... „þú ert miklu fríðari með gleraugu en án þeirra“. Þannig hófst vinskapur okkar Steins Ármanns. Þegar ég fékk það verkefni, nokkrum árum síðar, að stýra Stundinni okkar kom ekki annað til greina en að fá vin minn Stein Ármann til að ljá kettinum Kela rödd sína. Við áttum frábært samstarf og þurftum sjaldan að flækja málin - við höfðum svipaðan húmor og mest var án orða sagt. Hann ráðlagði mér vel þegar ég hóf störf á RÚV - „þið sjónvarpsstjörnur komið og farið - fólkið sem stjórnar RÚV eru Ragna Fossberg og húsverðirnir - hlustaðu á það!“ Og hann hafði rétt fyrir sér “ skrifar Ásta Hrafnhildur. „Okkar síðasta „að því bara“ samtal var í fyrrahaust - við heyrðumst óreglulega til að taka stöðuna á tilverunni - rétt aðeins að ræða málin - allt nema það að öðru okkar skyldi taka upp á því að deyja - það er bara gamalt fólk sem deyr - ekki við. Hvernig kveður maður fólk sem er svo samofið öllu? Kannski best að segja - bless bless og takk fyrir stundirnar okkar.“ Ásgrímur Sverrisson, kvikmyndagerðarmaður, var skólabróðir Steins Ármanns í Flensborg, og saman áttu þeir eftir að vinna saman í hljómsveitinni Kátir piltar, og að kvikmyndinni Hinir ómótstæðilegu, sem kom út árið 1988. Hann birtir mynd af aðstandendum myndarinnar. „Steinn Ármann er allur. Innilegar samúðarkveðjur til fjölskyldu hans og vina. Við Steinn vorum skólabræður í Flensborg og tilheyrðum sama vinahópi í tæpa hálfa öld. Þessa ljósmynd tók Björgvin Pálsson við tökur á kvikmyndinni Hinir ómótstæðilegu, sem gerð var fyrir RÚV 1988. Þar létu fjöllistamennirnir í hljómsveitinni Kátum piltum ljós sitt skína. Steinn er fremstur á myndinni. Aðrir í fremri röð eru Marteinn Thorsson, Jakob Bjarnar Gretarsson og Davíð Þór Jónsson. Aftari röð: Þóra Kristinsdóttir sminka, ég, Orn Almarsson, Hallur Helgason, Vilhjálmur Þór Guðmundsson kvikmyndatökumaður, Atli Geir Grétarsson, Agnar Einarsson hljóðmeistari heitinn og Hjörtur Howser heitinn. Fjarverandi er enn einn úr hópnum, Úlfur Grönvold, sem þarna sá um leikmuni og bar verkið á herðum sér.“ Helga Braga Jónsdóttir leikkona starfaði mikið með Steini. Hún segist í áfalli yfir tíðindunum, og segir hug sinn hjá fjölskyldu hans. „Elsku besti tvíburabróðir minn!!! Ég er algjöru áfalli og djúpri sorg. Hugur minn er hjà fjölskyldu Steins Ármanns, ég sendi þeim allt mitt ljós og innilegustu samúðarkveðjur!!! “Stop ALL The Clocks”…. “ Karl Ágúst Úlfsson leikari birtir gamla mynd af sér og Steini Ármanni frá því þegar þeir léku í söngleiknum Örfá sæti laus. Hann lætur nokkur falleg orð fylgja: „Þarna erum við saman á sviðinu, ég og þú. Þetta var fyrsta hlutverkið þitt eftir útskrift úr Leiklistarskólanum, í söngleiknum Örfá sæti laus í Þjóðleikhúsinu. Við áttum óheyriliega skemmtileg samtöl og háværa hlátra á þessum tíma. Og oft eftir það. Hjartans þakkir fyrir allar þær góðu og skemmtilegu minningar sem ég á um þig, elsku Steinn Ármann. Góða ferð og bestu kveðjur til allra. Halldór Halldórsson, einnig þekktur sem Dóri DNA, skrifar færslu á X um fráfall Steins Ármanns. „Grínisti dó í nótt. Steinn Ármann Magnússon gaf okkur stærstu gjöf sem hægt er að gefa - hann kom okkur til að hlæja. Blessuð sé minning þessa einstaka manns.“ Stefán Pálsson sagnfræðingur rifjar upp þegar Radíus byrjuðu í útvarpinu. Hann segir frasana sem urðu til þar hafa orðið vinsæla, og að sumir þeirra lifi enn góðu lífi í dag. „Sumarið 1992 fór að kvisast út að það væri útvarpsþáttur á Aðalstöðinni eftir hádegi á laugardögum sem vert væri að hlusta á. Radíus gaf sig út fyrir að vera eini útvarpsþátturinn sem spilaði bara Elvis og á milli laga var alls konar skemmtiefni og stuttir sketsar. Þeir Steinn Ármann og Davíð Þór breyttu íslensku gríni, sem fram að þessu hafði gengið út á að herma eftir stjórnmálamönnum eða stela efni úr bresku sjónvarpi. Fljótlega var annar hver maður farinn að slá um sig með frösum frá Radíusbræðrum. (Ég tala enn um að „vera til útvarps“ eða að einhver þykist vera góður en sé svo bara vondur!)“ Þá fjallar Stefán einnig um kynni sín af Steini Ármanni. „Löngu seinna lágu leiðir okkar Steins Ármanns saman þar sem hann var kominn á bólakaf í hjólaleiðsögumennskuna. Bandarísk ferðaskrifstofa sendi hópa í hjólatúra um Reykjavík með Steini en fljótlega kom í ljós að meðalaldurinn var svo hár og margir í hópnum ekki stigið upp á hjólhest í áraraðir að ég var fenginn til að bjóða upp á gönguvalkost. Hjólafyrirtækið áformaði að vera með hjólaleigu í Viðey og bjóða upp á hjólatúra þar með leiðsögn, sem við Steinn unnum saman að því að undirbúa. Það er því sérkennileg tilfinning að vera á leiðinni út í eyju í dag, eftir að hafa heyrt þær sorgarfregnir að Steinn Ármann sé dáinn langt fyrir aldur fram.“ Sigurjón Kjartansson, kvikmyndagerðarmaður og grínisti, birtir stutta færslu um Stein Ármann á Facebook. „Brautryðjandi fallinn. Mikill talent. Stórt hjarta.“
Andlát Einu sinni var... Bíó og sjónvarp Grín og gaman Mest lesið Steinn Ármann er látinn Lífið Davíð Þór um fráfall Steins Ármanns: „Engin orð. Bara sorg“ Lífið Kjóllinn brann korter í brúðkaup Lífið „Ég er bara einhver skel af sjálfri mér núna“ Lífið Margir minnast Steins Ármanns: „Gaf okkur stærstu gjöf sem hægt er að gefa“ Lífið Fór létt með tíu kílómetra: „Við sjáumst bara í markinu gamla mín“ Lífið „Maður veit aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér“ Lífið Leikkonan Bunny Levine er látin Lífið Krakkatía vikunnar: Svampur Sveinsson og Sesarsalatið Lífið Úlfadrengurinn í Sierra Morena allur Lífið Fleiri fréttir Myndaveisla: Litagleði og lögregla á Tónaflóði á Arnarhóli Margir minnast Steins Ármanns: „Gaf okkur stærstu gjöf sem hægt er að gefa“ „Ég er bara einhver skel af sjálfri mér núna“ Leikkonan Bunny Levine er látin Davíð Þór um fráfall Steins Ármanns: „Engin orð. Bara sorg“ Steinn Ármann er látinn Kjóllinn brann korter í brúðkaup Krakkatía vikunnar: Svampur Sveinsson og Sesarsalatið Fór létt með tíu kílómetra: „Við sjáumst bara í markinu gamla mín“ Úlfadrengurinn í Sierra Morena allur „Maður veit aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér“ Fréttatía vikunnar: Eiður Smári, Harry og frelsissvipting Missti allan mátt fyrir neðan bringu: Dreymir um að geta spilað golf á ný Fyrsta kvennalandsliðið í kotru býður á opna æfingu Svona voru afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningarnótt Þessi hafa safnað mestu fyrir Reykjavíkumaraþonið Lögmaður kærasta Panettiere með yfirlýsingu um andlátið Barnastjörnurnar sem Hollywood brást Hvað veistu um... Köngulóarmanninn? Ekkert annað í stöðunni en að fara á brókinni í ísbúðina Guðmundur Felix frumsýnir nýja nefið Týndi farangrinum og klæddist íslensku merki frá toppi til táar Hlutir sem þú ættir aldrei að deila með maka þínum Svona verður dagskráin á Menningarnótt Harry og Meghan ætla að flytja aftur til Bretlands Þorsteinn Leó orðinn pabbi Versluðu sígarettur af rússneskum sjómönnum: „Þetta var bara eins og gull“ Jinny Lu er ljótasti hundur í heimi 2026 „Hver á eftir að vilja konu sem kúkar í poka?“ Jóhann Kristófer og Nadía Áróra slá sér upp Sjá meira