Lögmaður kærasta Panettiere með yfirlýsingu um andlátið Atli Ísleifsson skrifar 21. ágúst 2026 07:50 Hayden Panettiere og Brian Hickerson í Los Angeles árið 2019. Getty Lögmaður Brian Hickerson, kærasta bandarísku leikkonunnar Hayden Panettiere, hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna andláts Panettiere. Þetta er í fyrsta sinn Hickerson eða lögmaður hans tjá sig opinberlega eftir að Panettiere fannst látin síðastliðinn sunnudag.
Erlendir fjölmiðlar segja að yfirlýsing Hickerson hafi verið send frá Sloan Ellis, lögmanni Hickerson. „Andlát Hayden er enn til rannsóknar og það er mikilvægt að rannsóknin fái að hafa sinn gang,“ segir Ellis að því er segir í frétt TMZ. Hickerson var staddur í íbúðinni í Greenville í Suður-Karólínu þegar hin 36 ára Panettiere fannst látin, að því er segir í lögregluskýrslum. „Eins og greint hefur verið frá opinberlega þá hefur lögregla staðfest að ekki sé grunur um að nokkuð saknæmt hafi átt sér stað,“ segir Ellis. Tjáir sig ekki frekar Lögmaðurinn vill að öðru leyti ekki tjá sig um málið. „Af virðingu við nánustu aðstandendur Hayden og yfirstandandi rannsókn verða ekki gefnar frekari yfirlýsingar að svo stöddu.“ Bandarískir fjölmiðlar hafa áður greint frá því að Brian Hickerson og bróðir hans Zach hafi verið staddir í íbúðinni þegar lögregla kom að Panettiere látinni. Þá á að hafa fundist poki með lyfjum sem Panettiere á að hafa neytt, en bandaríska fíkniefnalögreglan (DEA) kemur einnig að rannsókn málsins. Panettiere og Hickerson höfðu átt í stormasömu sambandi með hléum frá 2018. Sló í gegn sem barnastjarna Panettiere hóf leiklistarferil sinn ung að árum og kom fram í sápuóperum en varð svo þekktari í kjölfar hlutverks í Remember The Titans frá árinu 2000 með Denzel Washington. Þá ljáði hún Dot rödd sína í Pixar-myndinni A Bug's Life frá 1998. Panettiere varð síðar fræg fyrir að leika klappstýruna Claire Bennet í ofurhetjudramanu Heroes áður en hún fór með hlutverk kántrísöngkonunnar Juliette Barnes í sex þáttaröðum af Nashville. Hún hlaut tvær Golden Globe-tilnefningar fyrir bestu leikkonu í aukahlutverki í þáttunum. Meðal kvikmynda sem Panettiere hefur leikið í eru Bring It On: All Or Nothing frá 2006, Raising Helen og Scream 4 og Scream VI sem Kirby Reed.
Hollywood Bandaríkin Bíó og sjónvarp Andlát Hayden Panettiere Tengdar fréttir Barnastjörnurnar sem Hollywood brást Leikkonan Hayden Panettiere lést á sunnudaginn, aðeins 36 ára gömul, en hún er ein af mörgum barnastjörnum sem sködduðust við að alast upp í Hollywood og báru þess aldrei bætur. Börn sem frá unga aldri eru berskjölduð fyrir gráðugum og stjórnsömum foreldrum, bransafólki sem misnotar stöðu sína, stöðugu áreiti fjölmiðla og auðveldu aðgengi að vímuefnum. 21. ágúst 2026 07:02 Kærastinn var á staðnum Kærasti Hayden Panettiere og bróðir hans voru í íbúðinni þegar hún lét lífið um helgina. Þeir tóku á móti fyrstu lögregluþjónunum sem mættu á staðinn, en um er að ræða íbúð í eigu fjölskyldu þeirra í Greenville í Suður-Karólínu. Bræðurnir fylgdust með endurlífgunartilraunum sjúkraflutningamanna. 19. ágúst 2026 16:54 Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Vladimir Klitschko, barnsfaðir leikkonunnar Hayden Panettiere, segir fjölskylduna í mikilli sorg. Panettiere hafi yfirgefið þessa jörð allt of snemma og að þó svo að þau hafi ekki verið saman hafi hún verið mikilvægur hluti lífs hans og móðir dóttur þeirra, Kayu. Hann biður um frið til að glíma við sorgina og andlát hennar. 18. ágúst 2026 08:24 Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lögreglufulltrúar í Greenville í Suður-Karólínufylki í Bandaríkjunum voru sendir að fjölbýlishúsi þar sem leikkonan Hayden Panettiere dvaldi í gær eftir að þeim barst tilkynning um meðvitundarlausa konu. Ekki liggur fyrir hvað dró hina 36 ára gömlu Panettiere til dauða en það virðist á öllu sem andlátið hafi ekki borið að með saknæmum hætti. Hún var úrskurðuð látin á vettvangi. 17. ágúst 2026 20:55 Leikkonan Hayden Panettiere er látin Leikkonan Hayden Panettiere er látin. Hún var 36 ára gömul. Panettiere var þekktust fyrir hlutverk sín í sjónvarpsþáttunum Heroes og Nashville og fyrir kvikmyndirnar Scream 4 og Scream 6. 17. ágúst 2026 06:27 Mest lesið Steinn Ármann er látinn Lífið Davíð Þór um fráfall Steins Ármanns: „Engin orð. Bara sorg“ Lífið Kjóllinn brann korter í brúðkaup Lífið Fór létt með tíu kílómetra: „Við sjáumst bara í markinu gamla mín“ Lífið „Ég er bara einhver skel af sjálfri mér núna“ Lífið Krakkatía vikunnar: Svampur Sveinsson og Sesarsalatið Lífið Leikkonan Bunny Levine er látin Lífið „Maður veit aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér“ Lífið Úlfadrengurinn í Sierra Morena allur Lífið Fréttatía vikunnar: Eiður Smári, Harry og frelsissvipting Lífið Fleiri fréttir Margir minnast Steins Ármanns: „Gaf okkur stærstu gjöf sem hægt er að gefa“ „Ég er bara einhver skel af sjálfri mér núna“ Leikkonan Bunny Levine er látin Davíð Þór um fráfall Steins Ármanns: „Engin orð. Bara sorg“ Steinn Ármann er látinn Kjóllinn brann korter í brúðkaup Krakkatía vikunnar: Svampur Sveinsson og Sesarsalatið Fór létt með tíu kílómetra: „Við sjáumst bara í markinu gamla mín“ Úlfadrengurinn í Sierra Morena allur „Maður veit aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér“ Fréttatía vikunnar: Eiður Smári, Harry og frelsissvipting Missti allan mátt fyrir neðan bringu: Dreymir um að geta spilað golf á ný Fyrsta kvennalandsliðið í kotru býður á opna æfingu Svona voru afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningarnótt Þessi hafa safnað mestu fyrir Reykjavíkumaraþonið Lögmaður kærasta Panettiere með yfirlýsingu um andlátið Barnastjörnurnar sem Hollywood brást Hvað veistu um... Köngulóarmanninn? Ekkert annað í stöðunni en að fara á brókinni í ísbúðina Guðmundur Felix frumsýnir nýja nefið Týndi farangrinum og klæddist íslensku merki frá toppi til táar Hlutir sem þú ættir aldrei að deila með maka þínum Svona verður dagskráin á Menningarnótt Harry og Meghan ætla að flytja aftur til Bretlands Þorsteinn Leó orðinn pabbi Versluðu sígarettur af rússneskum sjómönnum: „Þetta var bara eins og gull“ Jinny Lu er ljótasti hundur í heimi 2026 „Hver á eftir að vilja konu sem kúkar í poka?“ Jóhann Kristófer og Nadía Áróra slá sér upp Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Sjá meira
Barnastjörnurnar sem Hollywood brást Leikkonan Hayden Panettiere lést á sunnudaginn, aðeins 36 ára gömul, en hún er ein af mörgum barnastjörnum sem sködduðust við að alast upp í Hollywood og báru þess aldrei bætur. Börn sem frá unga aldri eru berskjölduð fyrir gráðugum og stjórnsömum foreldrum, bransafólki sem misnotar stöðu sína, stöðugu áreiti fjölmiðla og auðveldu aðgengi að vímuefnum. 21. ágúst 2026 07:02
Kærastinn var á staðnum Kærasti Hayden Panettiere og bróðir hans voru í íbúðinni þegar hún lét lífið um helgina. Þeir tóku á móti fyrstu lögregluþjónunum sem mættu á staðinn, en um er að ræða íbúð í eigu fjölskyldu þeirra í Greenville í Suður-Karólínu. Bræðurnir fylgdust með endurlífgunartilraunum sjúkraflutningamanna. 19. ágúst 2026 16:54
Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Vladimir Klitschko, barnsfaðir leikkonunnar Hayden Panettiere, segir fjölskylduna í mikilli sorg. Panettiere hafi yfirgefið þessa jörð allt of snemma og að þó svo að þau hafi ekki verið saman hafi hún verið mikilvægur hluti lífs hans og móðir dóttur þeirra, Kayu. Hann biður um frið til að glíma við sorgina og andlát hennar. 18. ágúst 2026 08:24
Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lögreglufulltrúar í Greenville í Suður-Karólínufylki í Bandaríkjunum voru sendir að fjölbýlishúsi þar sem leikkonan Hayden Panettiere dvaldi í gær eftir að þeim barst tilkynning um meðvitundarlausa konu. Ekki liggur fyrir hvað dró hina 36 ára gömlu Panettiere til dauða en það virðist á öllu sem andlátið hafi ekki borið að með saknæmum hætti. Hún var úrskurðuð látin á vettvangi. 17. ágúst 2026 20:55
Leikkonan Hayden Panettiere er látin Leikkonan Hayden Panettiere er látin. Hún var 36 ára gömul. Panettiere var þekktust fyrir hlutverk sín í sjónvarpsþáttunum Heroes og Nashville og fyrir kvikmyndirnar Scream 4 og Scream 6. 17. ágúst 2026 06:27