Upp­gjörið: KA - KR 3-5 | Aron með þrennu fyrir norðan

Árni Gísli Magnússon skrifar
Aron Sigurðarson hefur skorað tuttugu mörk í tuttugu leikjum í Bestu deild karla í sumar.
Aron Sigurðarson hefur skorað tuttugu mörk í tuttugu leikjum í Bestu deild karla í sumar. vísir/guðmundur

KR vann öruggan 5-3 sigur á KA á Greifavellinum á Akureyri í 20. umferð Bestu deildar karla. Leikurinn var hin mesta skemmtun en staðan var 4-2 í hálfleik.

KR er áfram í öðru sæti deildarinnar á meðan KA er áfram í næstneðsta sæti í fallbaráttu.

Eiður Smári Guðjohnsen sneri aftur á hliðarlínuna og stýrði sínum fyrsta leik með KA með Hallgrími Jónassyni.

Leikurinn byrjaði af fullum krafti strax frá fyrstu mínútu og nokkuð ljóst að um fjörugan leik yrði að ræða.

Hrafn Tómasson átti fast skot utan af velli á þriðju mínútu en boltinn hafnaði í þversláni og hrökk niður á marklínuna.

KR komst í forystu aðeins mínútu seinna þegar Aron Sigurðarson skoraði beint úr aukaspyrnu. Lyfti boltanum fast yfir vegginn og upp í hornið.

Aðeins fimm mínútum síðar var Aron aftur á ferðinni þegar hann stangaði boltann í netið á fjærstönginni eftir hornspyrnu frá Sigurði Breka Kárasyni.

KA menn bitu frá sér og Hallgrímur Mar Steingrímsson minnkaði muninn eftir tæpan stundarfjórðung en hann fékk boltann á milli vítateigs og miðju og sá Halldór Snæ Georgsson framarlega í markinu og lyfti boltanum skemmtilega yfir hann.

Áfram héldu KA menn og André Römer jafnaði leikinn með skalla á 20. mínútu. Samuel Karl Kroon tók hornspyrnu frá hægri og Römer skallaði boltann yfir Halldór á fjærstönginni.

KA menn voru nálægt því að komast í forystu á 28. mínútu en Halldór varði þá vel frá Hallgrími áður en Jakob Snær skaut yfir. KR-ingar snéru vörn í sókn og á sömu mínútu fullkomnaði Aron þrennuna. Hann fékk boltann á eigin vallarhelmingi og fór upp vinstri vænginn og gaf boltann á Sigurð Breka Kárason sem skilaði honum aftur á Aron sem tiplaði í kringum nokkra KA menn fyrir utan teig og lét svo vaða og boltinn í netinu lá. Þrenna á 28 mínútum, takk fyrir.

Þeir röndóttu voru ekki hættir og var næst á dagskrá stórbrotið liðsmark. Spilað var út frá markmanni og fékk Aron Sigurðarson boltann á vinstri kantinum og sendi hann í gegnum klof Kára Gautasonar og á Galdur Guðmundsson sem sendi boltann í hlaupið hjá Aroni. Aron sendi boltann inn á teig á Sigurð Breka sem lagði boltann aftur fyrir sig með hælnum og þar skilaði Orri Hrafn Kjartansson honum í netið. Staðan 4-2.

Adam Ægir Pálsson var óheppinn að minnka ekki muninn á 43. mínútu en fast skot hans fyrir utan endaði í stönginni. Staðan 4-2 í hálfleik fyrir KR.

Áfram hélt markasýningin en Eiður Gauti Sæbjörnsson kom KR í 5-2 á 49. mínútu með góðu skallamarki eftir fyrirgjöf frá Luke Rae.

Adam Ægir Pálsson hefði með réttu átt að minnka muninn fyrir KA stuttu seinna en fór mjög illa með dauðafæri þegar hann setti boltann langt framhjá. Varamaðurinn Jakob Héðinn Róbertsson fékk gott færi á 72. mínútu en Halldór Snær varði vel.

KR-ingar voru með unnin leik og spiluðu af skynsemi út leikinn ef svo er er hægt að segja og héldu boltanum óaðfinnanlega sín á milli.

KA tókst þó að laga stöðuna í blálokin en Kári Gautason skoraði þó laglegt mark með skoti í fjærhornið rétt við vítateiginn eftir sendingu frá Hallgrími Mar. 

Leikurinn var flautaðu af strax í kjölfarið og KR-ingar fögnuðu 5-3 sigri.

Atvik leikins

Fjórða mark KR var algjörlega frábært. Spilað er úr öftustu línu og leikmenn taka eina til tvær snertingar sín á milli og taka hlaupa áfram og boltinn endar inn í vítateig þar sem Sigurður Breki tekur hælspyrnu á Orra Hrafn sem skilar boltanum í netið.

Stjörnur og skúrkar

Aron Sigurðarson var algjörlega frábær í þessum leik. Í fyrri hálfleik virkaði þetta alltof auðvelt fyrir hann, enda var hann búinn að skora þrjú frábær mörk eftir 28 mínútur.

Sigurður Breki er aðeins 17 ára gamall en er orðinn frábær leikmaður. Hann lagði upp þrjú mörk í dag og átti góðan leik.

Orri Hrafn Kjartansson og átti líka góðan leik og skoraði mark en sóknarlega var allt KR liðið í raun frábært.

KA átti í miklu erfiðleikum á móti sterkum KR-ingum en Jakob Snær Árnason var fyrirferðarmikill og reyndi sitt besta í að gera gestunum erfitt fyrir í sínu spili.

Ég set spurningamerki við Ívar Arnbro í skallamarkinu hjá Aroni og mögulega hefði hann getað gert betur í fleiri mörkum en varnarleikurinn var ekki að hjálpa mikið.

Dómarinn

Gunnar Oddur Hafliðason hafði góð tök á leiknum. Ekki eitt gult spjald leit dagsins ljós og hann leyfði leiknum að fljóta mjög vel. Vissulega nokkur atriði þar sem hefði verið hægt að flauta en það var eins fyrir bæði lið.

Stemning og umgjörð

785 manns mættu á Greifavöllinn í 20 stiga hita og sól. Það heyrðist lítil hvatning úr stúkunni en frábær fótboltaleikur sem fólk fékk og talsvert af KR-ingum létu sjá sig og tóku lagið með leikmönnum eftir leik.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira