Hófu titilvörnina með fimm marka sigri Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 23. ágúst 2026 21:45 Raphinha skoraði tvívegis gegn Elche. getty/Manuel Queimadelos Barcelona vann 0-5 útisigur á Elche í fyrsta leik sínum í spænsku úrvalsdeildinni á tímabilinu. Raphinha og Fermín López skoruðu tvö mörk hvor fyrir Börsunga. Barcelona hefur orðið Spánarmeistari undanfarin tvö ár og stefnir að því að vinna þriðja titilinn í röð næsta vor. Elche endaði í 15. sæti á síðasta tímabili og liðið átti ekki mikla möguleika gegn Barcelona í kvöld. Raphinha kom Börsungum yfir á 14. mínútu með marki úr vítaspyrnu. Þegar þrjár mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma í fyrri hálfleik bætti Karim Adeyemi öðru marki við. Þýski framherjinn lék sinn fyrsta keppnisleik fyrir Barcelona í kvöld en félagið keypti hann frá Borussia Dortmund í sumar. Annar nýr leikmaður, Anthony Gordon, kom inn á þegar 25 mínútur voru eftir og hann lét heldur betur að sér kveða. Gordon lagði upp þriðja og fjórða mark Barcelona sem Raphinha og Fermín skoruðu. Sá síðarnefndi skoraði svo öðru sinni áður en yfir lauk. Spænski boltinn FC Barcelona