Lærum lýðræði Ingibjörg Rósa Björnsdóttir skrifar 21. ágúst 2026 09:16 Þetta er ekki pistill til að hvetja fólk til að velja Já í þjóðaratkvæðagreiðslunni sem er framundan. Heldur ekki til að velja Nei. Mig langar einfaldlega að hvetja ykkur sem eruð óákveðin, eða nennið ekki að pæla of mikið í málinu, til að hugsa ykkur tvisvar um. Ekki síst ef þið teljist til „unga fólksins“ í ofanálag. Það er freistandi að loka á allt áreitið, forðast skoðanaskipti, taka öndunaræfingar og einbeita sér að sjálfsrækt meðan við bíðum eftir að þetta líði hjá. Ég skil þetta fullvel vegna þess að ég var næstum því búin að gera þetta sjálf, til að vernda sjálfa mig og mína innri ró. Til að gefa ekki „veiðileyfi“ á sjálfa mig og þurfa ekki að verja skoðanir mínar. Þá er jú einfaldast að þegja þunnu hljóði og krota á kjörseðilinn í leyni. En svo rifjaðist upp fyrir mér að það var dálítið stemningin í Bretlandi í aðdraganda Brexit atkvæðagreiðslunnar, en þá bjó ég í London og fylgdist vel með, án þess að hafa kosningarétt. Sú atkvæðagreiðsla var auðvitað allt annars eðlis en sú sem fer fram hérlendis 29. ágúst. Bretar voru beinlínis að kjósa um það hvort landið ætti að ganga úr Evrópusambandinu eftir áratuga aðild. Við Íslendingar þurfum eingöngu að ákveða hvort við viljum reyna að knýja fram samning sem við gætum sætt okkur við, eða semsagt: hvað myndum við græða á því að vera með í ESB og hvaða málamiðlanir gætum við hugsanlega gert?Það er allt og sumt sem þessi tiltekna þjóðaratkvæðagreiðsla snýst um. Árið 2016 fór fram í Bretlandi nokkuð hörð kosningabarátta en fljótlega varð ljóst að hreyfingin sem vildi yfirgefa ESB barðist hatrammlegar, hafði hærra og beitti fólskubrögðum til að fá fólk á sitt band OG til að mæta á kjörstaði. Þau höfðuðu til tilfinninga fólks, spiluðu á fortíðarþrá eldri kynslóðanna, hræddu fólk til að óttast framtíðina og fullyrtu að þau ein vissu hver lausnin væri, sem þau „rökstuddu“ svo með mistúlkunum, rangfærslum, útúrsnúningum og hreinum lygum. Þau treystu á að ringlaðasta fólkið myndi ekki leita sér upplýsinga frá óháðum aðilum, myndi ekki hugsa fyrir sig sjálft eða beita gagnrýnni hugsun og yrði nógu hrætt og hrifnæmt til að drífa sig á kjörstað – helst utankjörfundarstað áður en þeim gæfist ráðrúm til að skoða staðreyndirnar í rólegheitum – og kysi að yfirgefa Evrópusambandið, til að hefja nýtt blómaskeið í Bretlandi. Sú varð auðvitað ekki raunin, Nigel Farage viðurkenndi strax daginn eftir atkvæðagreiðsluna að aldrei yrði hægt að efna kosningaloforðin, en hrósaði happi yfir því að þau hefðu þó gert sitt gagn. Afdrifaríkt andvaraleysi Í dag, áratug síðar, er Bretland hvergi nærri því að vera það endurreista heimsveldi sem eldra fólkið horfði til með rósrauðum fortíðargleraugum, og mörg þeirra sem völdu útgöngu á sínum tíma sjá eftir atkvæði sínu í dag. Hin, mikið til yngra fólkið, sem töldu ávallt óhugsandi og glórulaust að Bretland yfirgæfi ESB nöguðu sig í handarbökin eftir atkvæðagreiðsluna. Og gera enn. Alltof mörg þeirra gerðu þau reginmistök að loka sig af inni í sinni sápukúlu; þeim þótti svo fjarlægt að meirihluti þjóðarinnar gæti virkilega talið gáfulegt að fylgja Farage og hans fólki að málum. Þeim leiddist umræðan, héldu sig of mikið til hlés, hlustuðu ekki á fólkið sem studdi „Vote Leave“ hreyfinguna, vanmátu fjölda þeirra og töluðu niður til þeirra, gerðu grín að þeim og töldu betra að standa utan við þrasið. Þau flutu sofandi að feigðarósi og vöknuðu upp við vondan draum daginn eftir atkvæðagreiðsluna. „Vote Leave“ fólkið hafði mætt samviskusamlega á kjörstaði og endaði með 52% meirihluta. Þá var bara of seint að segja sína skoðun, of seint að rökræða, of seint að hafa áhrif, of seint að kjósa. Iðkum gagnrýna hugsun Við eigum að virða lýðræðisleg vinnubrögð með því að taka þátt. Að því sögðu mæli ég ekki með því að taka þátt í öskurkeppnum á neinum vettvangi, eða að bregðast endalaust við útúrsnúningasérfræðingum og láta blekkjast af nettröllum. En ég hvet til yfirvegaðrar umræðu, að eiga samtöl, að hugsa sig tvisvar um áður en orð eru sögð eða skrifuð, að sýna öðru fólki þann kærleika og virðingu sem við búumst sjálf við, og að skrifa ekki eitthvað á netið sem við myndum ekki þora að segja fyrir framan fólk. Látum okkur þykja vænt um öll sem við ræðum við, þótt við séum ekki sammála þeim. Við getum hlustað án þess að vera auðtrúa og eigum ekki að láta algrími mata okkur. Við lifum á tímum stafrænnar upplýsingaaldar, það er lítið mál fyrir okkur sjálf að staðreyndatékka fullyrðingar og tölfræði, að beita gagnrýnni hugsun. Við eigum að gera skýran greinarmun á „mér finnst/ég tel“ staðhæfingum og staðreyndum. Við eigum líka að gera kröfu um að fólkið sem við lítum upp til slengi ekki fram kjarnyrtum yfirlýsingum nema að það geti sannað mál sitt. En, við getum ekki tekið yfirvegaða og vel ígrundaða ákvörðun nema að leggja eitthvað á okkur. Lýðræðisþátttaka krefst dálítillar vinnu. Lokaspretturinn framundan Ég hvet ykkur því til að verja svolitlum tíma til að skoða upplýsingarnar sem eru í boði og efast um slagorðin þar til þið eruð búin að kanna sannleiksgildi þeirra. Ekki forðast rökræður, æfið ykkur þvert á móti í að eiga samtöl af kurteisi og virðingu, að hlusta og skiptast á skoðunum, benda á rangfærslur, biðja fólk að skýra mál sitt betur og benda á áreiðanlegar heimildir. Það er vika til stefnu, ef hvert og eitt ykkar tekur sér lágmark hálftíma á dag fram að atkvæðagreiðslu til að iðka borgaralegan rétt ykkar til að leita upplýsinga og mynda sjálfstæða skoðun, þá vitið þið á endanum hvernig þið viljið svara spurningunni í þjóðaratkvæðagreiðslunni. En það sem meira er, ég vona að þið finnið líka fyrir þörf og skyldu til að nýta atkvæðisrétt ykkar. Virðum lýðræðið með því að taka þátt. Höfundur er blaðakona, fararstýra og allskonar. [SS1]52% Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Slaufun, skautun, skömmun Örn Bárður Jónsson Skoðun Almenningur ákveður 29. ágúst hvort vextir verða 3–4% eða 8–9% og áhætta þjóðarinnar verði mikil eða lítil næstu 30 árin Baldur Pétursson Skoðun Hvað segja hin 20.000 fyrirtækin? Andrés Magnússon,Hrund Rudolfsdóttir,Margrét Kristmannsdóttir Skoðun Að skilja, eða skilja ekki, umræðuna Lúðvík Bergvinsson Skoðun Verðbólgan er stærsti einstaki uppruni hagnaðar á Íslandi Egill Almar Ágústsson Skoðun NEI! Atlaga að lýðræði og svipting kosningaréttar Magnús Jónsson Skoðun Er Marta Kos einnig að plata?.. en það má ekki plata Júlíus Valsson Skoðun „Vilja til að ganga í Evrópusambandið“ Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Grein fyrir óákveðna kjósendur og nei-sinna Magnea Marinósdóttir Skoðun Fullveldi þjóðar og frelsi einstaklings Pétur B. Sveinsson Skoðun Skoðun Skoðun Kerfislægt virðingarleysi – Þegar sparað er í velferð en verðmæti sameignar renna annað Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rífum í lóðin Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Maðurinn einn er ei nema hálfur – með öðrum er hann meiri en hann sjálfur Kristín Bjarnadóttir skrifar Skoðun Slaufun, skautun, skömmun Örn Bárður Jónsson skrifar Skoðun When Path Dependence Becomes an Argument for Saying No Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Grein fyrir óákveðna kjósendur og nei-sinna Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Fullveldi þjóðar og frelsi einstaklings Pétur B. Sveinsson skrifar Skoðun „Vilja til að ganga í Evrópusambandið“ Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Almenningur ákveður 29. ágúst hvort vextir verða 3–4% eða 8–9% og áhætta þjóðarinnar verði mikil eða lítil næstu 30 árin Baldur Pétursson skrifar Skoðun Að skilja, eða skilja ekki, umræðuna Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun NEI! Atlaga að lýðræði og svipting kosningaréttar Magnús Jónsson skrifar Skoðun Verðbólgan er stærsti einstaki uppruni hagnaðar á Íslandi Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Hvað segja hin 20.000 fyrirtækin? Andrés Magnússon,Hrund Rudolfsdóttir,Margrét Kristmannsdóttir skrifar Skoðun Síli veidd í skólpi Jónas Már Torfason ,Eydís Inga Valsdóttir skrifar Skoðun Er Marta Kos einnig að plata?.. en það má ekki plata Júlíus Valsson skrifar Skoðun Ég skil ekki nei fólk Einar Steinþórsson skrifar Skoðun Heildarkostnaður aðildarviðræðna gæti samsvarað 300–700 kr. á mann á mánuði Valur Þráinsson skrifar Skoðun Erfingjar og erfðarmál Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þögnin rofin Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Fullveldi, yfirþjóðlegar stofnanir og jafnræðisgrundvöllur í Evrópu Maximilian Conrad skrifar Skoðun Fimmtugt er ekki biðstofa Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Horfum á heildarmyndina – og til lengri tíma Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Hvar hefur 400.000 manna þjóð mest áhrif? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Hvernig ákveður þjóð sig? - Samhygð á undanhaldi Davíð Brynjar Sigurjónsson skrifar Skoðun Siðferðiskirtillinn Jón Bragi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Spörum milljarða Lárus Blöndal Sigurðsson skrifar Skoðun Drottningaviðtal – þegar ein rödd fær sviðið Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Þegar náttúran verður okkur framandi Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Þurfum við kreatín og prótín sem bætiefni? Jóhanna Eyrún Torfadóttir,Dögg Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Af hverju aðildarviðræður? Björn Leví Gunnarsson skrifar Sjá meira
Almenningur ákveður 29. ágúst hvort vextir verða 3–4% eða 8–9% og áhætta þjóðarinnar verði mikil eða lítil næstu 30 árin Baldur Pétursson Skoðun
Hvað segja hin 20.000 fyrirtækin? Andrés Magnússon,Hrund Rudolfsdóttir,Margrét Kristmannsdóttir Skoðun
Skoðun Kerfislægt virðingarleysi – Þegar sparað er í velferð en verðmæti sameignar renna annað Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Maðurinn einn er ei nema hálfur – með öðrum er hann meiri en hann sjálfur Kristín Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Almenningur ákveður 29. ágúst hvort vextir verða 3–4% eða 8–9% og áhætta þjóðarinnar verði mikil eða lítil næstu 30 árin Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Hvað segja hin 20.000 fyrirtækin? Andrés Magnússon,Hrund Rudolfsdóttir,Margrét Kristmannsdóttir skrifar
Skoðun Heildarkostnaður aðildarviðræðna gæti samsvarað 300–700 kr. á mann á mánuði Valur Þráinsson skrifar
Skoðun Fullveldi, yfirþjóðlegar stofnanir og jafnræðisgrundvöllur í Evrópu Maximilian Conrad skrifar
Skoðun Þurfum við kreatín og prótín sem bætiefni? Jóhanna Eyrún Torfadóttir,Dögg Guðmundsdóttir skrifar
Almenningur ákveður 29. ágúst hvort vextir verða 3–4% eða 8–9% og áhætta þjóðarinnar verði mikil eða lítil næstu 30 árin Baldur Pétursson Skoðun
Hvað segja hin 20.000 fyrirtækin? Andrés Magnússon,Hrund Rudolfsdóttir,Margrét Kristmannsdóttir Skoðun