Hversu miklar umferðartafir má bjóða þér með skólaárinu? Valur Elli Valsson skrifar 18. ágúst 2026 12:05 Nú þegar líða fer á seinni hluta ágústmánaðar kemst lífið í fastari skorður og rútínan tekur aftur við. Fólk kemur úr sumarfríi og næsti frídagur verður ekki fyrr en í desember, skólastarf hefst og kyrrseta í umferðinni tekur við, og manni finnst umferðin aukast með hverju árinu sem líður. Vikuna áður en framhalds- og háskólarnir byrja gengur bílaumferð um helstu stofnleiðir höfuðborgarsvæðisins nokkuð smurt fyrir sig, þar sem lítið er um umferðartafir. Samkvæmt umferðargreiningu EFLU á ferðatíma milli mismunandi svæða höfuðborgarsvæðisins má staðfesta það. Sem dæmi er ferðatíminn frá Hafnarfirði að Háskóla Íslands 16 mínútur þá vikuna. Vikuna eftir verður hins vegar gífurlegur munur í ferðatíma fólks, þar sem sama ferðalag tekur 51 mínútu. Það er aukning um 35 mínútur, sem viðheldur sér út haustið. Ferðatími á leiðinni Hafnarfjörður-HÍ á virkum degi milli kl. 7:00 og 10:00. Sömu sögu má segja um aðrar umferðarmiklar leiðir, eins og frá austurhluta borgarinnar til HÍ þar sem ferðatíminn eykst úr 20 mínútum í 55 mínútur sem og frá Kaplakrika að Sæbraut, þar sem ferðatíminn eykst úr 18 mínútum í 36 mínútur. Ferðatími á leiðinni Korpa-HÍ á virkum degi milli kl. 7:00 og 10:00. Eins og sjá má á myndunum hér að ofan á þessi mikla aukning í ferðatíma fólks sér stað yfir frekar takmarkað tímabil, þar sem mestar umferðartafir eru milli 08:00-08:30, þó umferðartafir séu líka viðvarandi hálftímana sitt hvoru megin við það. Tengja má það að miklu leyti við það að kennsla í öllum framhalds- og háskólum höfuðborgarsvæðisins hefst á tímabilinu 08:10-08:30 og fjöldinn sem sækir þessa skóla er umtalsverður, eða um 30.000 einstaklingar sem samsvarar íbúafjölda Hafnarfjarðar. Hvernig ferðast námsmenn í skólann? Framhalds- og háskólanemar eru þó ekki í sömu stöðu og vinnandi fólk – og ætla mætti að ferðavenjur þessa hóps væru ólíkar þeim, sérstaklega þar sem nýnemar í framhaldsskólum eru ekki nógu gömul til að geta fengið bílpróf. Munurinn er hins vegar minni en margur myndi halda á ferðavenjum námsmanna og vinnandi fólks. Ferðavenjur framhaldsskólanema á höfuðborgarsvæðinu eftir aldri. Eins og sjá má á myndinni hér að ofan er strætó algengasti fararmáti nýnema í framhaldsskólum, þar sem um helmingur nemenda ferðast til skóla í strætó á sínu fyrsta ári í framhaldsskóla. Við bílprófsaldurinn verða hins vegar miklar breytingar í ferðavenjum framhaldsskólanema, þar sem hlutfall þeirra sem ferðast með strætó lækkar um þriðjung og fjöldi þeirra sem keyra í skólann verður jafn mikill og hjá þeim sem ferðast með strætó. Við 18 ára aldur er hlutfall þeirra sem koma akandi í skólann orðið 55% á meðan 22% nota strætó og þetta bil heldur áfram að aukast eftir því sem nemendur verða eldri. Svipaða sögu má segja um ferðavenjur háskólanema, en um 60% nemenda við Háskóla Íslands koma akandi í skólann á meðan 13% ferðast með strætó. Til samanburðar fara um 77% vinnandi fólks akandi í vinnu á meðan einungis 3% ferðast með strætó. Mun umferðin þá bara halda áfram því þetta hefur alltaf verið svona? Ferðavenjur, eins og margt annað, eru lærð hegðun þar sem fólk venur sig á ákveðna venjur í sínu daglega lífi. Hvað ferðavenjur varðar eru það þættir eins og ferðatími, þægindi, kostnaður og áreiðanleiki sem venjulega skipta mestu máli. Framhaldsskólanemar ferðast flest með strætó í upphaf framhaldsskólagöngu sinnar og komast á lagið með þann fararmáta. Strætósamgöngur á höfuðborgarsvæðinu standa þó illa að vígi í samanburði við einkabílinn þegar kemur að ferðatíma, þægindum og áreiðanleika – þó kostnaðurinn sé umtalsvert minni. Vegna þessa kjósa framhaldsskólanemar almennt frekar að fara akandi í skólann. Framhaldsskólanemar voru hins vegar spurð í ferðavenjukönnun sem EFLA framkvæmdi nú í vor hvort þau teldu sig líklegri til að halda áfram að ferðast með strætó ef strætókort myndi fylgja með skráningu í nám. Rúmlega 40% nemenda sögðu að þau myndu annaðhvort alltaf eða oftast ferðast í skólann með strætó ef þau myndu fá strætókort við skráningu í skólann og einungis 25% sögðust ekki myndu nýta sér þetta strætókort. Með ókeypis aðgangi í strætó fyrir framhaldsskólanema væri hægt að stuðla að lærðri hegðun þar sem ungt fólk myndi nýta sér strætó, og vonandi Borgarlínu einn daginn, í meiri mæli en fyrri kynslóðir og draga þar af leiðandi úr umferðarálagi á höfuðborgarsvæðinu á annatíma. Slíkt yrði þó aldrei mögulegt án þess að meira fjármagn yrði lagt til almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu því ef almenningssamgöngur eru ekki samkeppnishæfar einkabílnum hvað varðar ferðatíma, þægindi, kostnað og áreiðanleika þá munu námsmenn áfram ferðast með einkabílnum. Sækjum innblástur í þríeykið Í ferðavenjukönnun EFLU voru nemendur einnig spurð að því hvort þau hefðu áhuga á að byrja skóladaginn sinn á öðrum tímum dags. Yfir 60% nemenda voru hrifin af því þar sem langflestir nemendur sögðust vilja byrja skóladaginn seinna. Með því að seinka skóladeginum, þó það væri ekki um nema 30 til 60 mínútur, má draga úr því mikla álagi sem verður í umferðinni á tímanum 08:00-08:30 og þar með fletja út kúrvuna á ferðatíma fólks. Með því að dreifa úr umferð fólks yfir lengra tímabil á morgnana myndi umferð því ganga hraðar fyrir sig og tíminn í umferðinni þá vonandi orðið minni. Höfundur er skipulags- og hagfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Umferð Reykjavík Samgöngumál Mest lesið Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Gervigreind kallar á nýja hugsun í rekstri Þorsteinn Siglaugsson Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson Skoðun Seðlabankastjóri kominn í bakkgírinn Sigurjón Þórðarson Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Gaur! Vertu töffari! Sveinn Waage Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreind kallar á nýja hugsun í rekstri Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun Grein sálfræðings um að læra að opna sig Dávur í Dali skrifar Skoðun Seðlabankastjóri kominn í bakkgírinn Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson skrifar Skoðun Gervigreindin sparar tíma og peninga Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Skoðun Landsvirkjun ætti að fjárfesta í íslensku reikniafli Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvar lendir sleggjan næst? Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Gaur! Vertu töffari! Sveinn Waage skrifar Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason skrifar Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Sameining lögregluumdæma – Tækifæri fyrir Búðardal Guðbrandur Tumi Gíslason skrifar Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Einkunnakerfi í öngstræti Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Ekki einu sinni Margrét Einarsdóttir getur fullyrt það Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ég gerði tilraun til lýðræðislegrar uppreisnar í VG Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Við getum í rauninni ekki tapað Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Skaðaminnkun í sautján ár – og þörfin enn mikil Sóley Kristín Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Verður Grensásvegur hjarta tónlistar í Reykjavík? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Aðför að ferðaþjónustunni Helgi Kjartansson skrifar Skoðun Farsæld barna verður ekki tryggð án fjármagns Jóhanna Erla Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar Sjá meira
Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar
Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar
Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar
Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar