Sjáðu samskipti dómarans í úrslitaleik HM: Bað Messi um að róa Paredes niður Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 18. ágúst 2026 12:01 Lionel Messi er í stóru hlutverki í samantektarmyndbandi FIFA úr búkmyndavél Slavkos Vincic úr úrslitaleik HM. epa/SHAWN THEW Á upptöku úr myndavél dómarans Slavkos Vincic frá úrslitaleik heimsmeistaramótsins heyrist hann biðja Lionel Messi, fyrirliða Argentínu, um að hafa hemil á Leandro Paredes. Auk þess fékk Vincic hrós fyrir vel unnin störf frá Donald Trump Bandaríkjaforseta.
Á HM voru aðaldómarar allra 104 leikjanna með búkmyndavél á sér. FIFA hefur nú birt samantekt af því helsta úr dómaramyndavélinni frá úrslitaleik HM þar sem Spánn vann Argentínu, 1-0. Argentínumenn gengu hart fram í leiknum, enginn eins og Paredes sem kom inn á sem varamaður í hálfleik. Skömmu síðar fékk hann gult spjald og var á hálum ís eftir það. Vincic ræddi við Messi og bað hann um að róa Paredes niður. „Messi, hafðu stjórn á Paredes. Ég vil ekki ... Hann er með gult spjald. Stjórn, takk. Alltaf, alltaf,“ sagði Vincic við Messi. Paredes slapp við frekari refsingu og kláraði leikinn. Eftir hann missti hann hins vegar stjórn á skapi sínu og réðst að Eric García og Gavi. FIFA er með hegðun Paredes eftir úrslitaleikinn til rannsóknar. Í myndbandinu sem FIFA birtir sést Dani Olmo, miðjumaður Spánar, hrósa Vincic fyrir góða frammistöðu eftir úrslitaleikinn. Það sama gerði Trump á verðlaunaathöfninni. Vincic sagði Olmo einnig að hann hefði verið að dæma sinn síðasta leik á ferlinum. Nokkrum dögum eftir úrslitaleikinn var það staðfest að Vincic hefði lagt flautuna á hilluna.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Körfubolti Tarik framlengir við Víking Íslenski boltinn Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Fótbolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Leikmaður ársins missir af landsleikjum Körfubolti Fleiri fréttir Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Býður sig fram á móti Infantino Tarik framlengir við Víking Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Fagnar stiginu: „Ég var að fíla Eistana“ „Bara lét okkur heyra það í hálfleik“ „Svo lengi sem ég get hlaupið vil ég spila fyrir Ísland“ „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ „Það sem svíður mest“ Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Ronaldo segir þjálfarann hafa svikið sig Unnu stórsigur og komu Íslandi í umspil Króatía - Spánn 2-1 | Varamaðurinn bjargaði sigri fyrir Spán Kane með tvennu í öruggum sigri Byrjunarlið Íslands: Fimm breytingar og Gylfi inn Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Sjá meira