Sjáðu mörkin: Methafinn nýtti löngu köstin og Róbert elskar að mæta Stjörnunni Sindri Sverrisson skrifar 18. ágúst 2026 09:01 Patrick Pedersen er byrjaður að skora mörk aftur eftir þrautagöngu vegna meiðsla. vísir/Anton Fjórir leikmenn afrekuðu að skora tvennu í gær í aðeins tveimur leikjum í Bestu deild karla í fótbolta. Mörkin má sjá á Vísi.
Fram kom sér upp að hlið KR í 2.-3. sæti, átta stigum á eftir toppliði Víkings, með 3-1 sigri gegn Stjörnunni. Valur og KA gerðu hins vegar 4-4 jafntefli á Hlíðarenda. Róbert Hauksson skoraði tvö marka Fram og hefur þar með skorað öll þrjú mörk sín í sumar gegn uppeldisfélaginu, Stjörnunni. Raunar hafa fimm af níu mörkum Róberts í efstu deild komið gegn Stjörnunni, eins og bent var á í Stúkunni á Sýn Sport Ísland í gærkvöld. Már Ægisson skoraði þriðja mark Fram eftir frábæra móttöku við sendingu Vuks Oskars Dimitrijevic, en Emil Atlason hafði jafnað í 1-1 fyrir Stjörnuna á 34. mínútu. Markahæsti maður efstu deildar frá upphafi, Patrick Pedersen, skoraði sín fyrstu tvö mörk í deildinni eftir að hafa slitið hásin í fyrra, og átti þannig ríkan þátt í 4-4 jafntefli Vals við KA. Gestirnir frá KA höfðu komist í 2-0 og 3-1 en Patrick jafnaði í 3-3 með tvennu á sex mínútum og komu bæði mörkin eftir löng innköst frá sama stað. Hallgrímur Mar Steingrímsson og Jakob Snær Pálsson skoruðu sína tvennuna hvor fyrir KA en auk Patricks skoruðu Hólmar Örn Eyjólfsson og Tryggvi Hrafn Haraldsson fyrir Val og gerði Tryggvi jöfnunarmarkið á 83. mínútu eftir frábæran undirbúning Lúkasar Loga Heimissonar. Nú þegar þrjár umferðir eru eftir þar til að deildinni verður skipt í tvennt er baráttan hörð um sæti í efri hlutanum. ÍA og Keflavík eru með 25 stig hvort, í 5. og 6. sæti, en Valur er með 23 stig og Stjarnan 21 í efstu tveimur sætunum í neðri hlutanum. KA situr enn í fallsæti, með 16 stig, stigi á eftir FH og ÍBV.
Besta deild karla Valur KA Fram Stjarnan Mest lesið Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Tarik framlengir við Víking Íslenski boltinn Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Körfubolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Fótbolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Leikmaður ársins missir af landsleikjum Körfubolti Fleiri fréttir Tarik framlengir við Víking Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Stóri munurinn á feigum og ófeigum: „Hvað er planið?“ Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Selfoss missir mikið efni Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Sjáðu fernu Niu og þrennu Ásu í ótrúlegum leik „Við erum alltaf að fara að taka þetta“ Breiðablik - Þróttur 5-4 | Ótrúleg endurkoma meistaranna FH - ÍBV 5-0 | Stórsigur FH sem lagaði markatöluna Sjáðu mörkin sem felldu Víking og Val Uppgjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn ,,Mikið í gangi í hausnum núna” „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Uppgjörið: Víkingur R - Þór/KA 0-2 | Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Enn er penninn á lofti í Laugardal Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Sjáðu þrennu sextán ára Bríetar og hægasta sigurmark ársins Segir skipulagið fáránlegt: „Ekki sanngjarnt að annað liðið sé alltaf að elta“ Bríet Fjóla Bjarnadóttir: „Ég varð að klára þetta með þrennu “ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - FH 3-2 | Áfall fyrir titilbaráttu FH Uppgjörið: Þróttur R. - Stjarnan 5-1 | Bríet Fjóla með þrennu í stórsigri Þróttar Sorgarferli að sættast við ónýtan skrokk „Þetta er þorpið manns“ Uppgjörið: ÍBV - Breiðablik 1-2 | Blikar verma toppinn Þrjú lið berjast um eitt öruggt sæti en Fram bjargaði sér „Enginn annar sem hafði trú á okkur en við sjálf“ Sjá meira