Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Atli Ísleifsson skrifar 17. ágúst 2026 07:43 Efri röð frá vinstri: Sigrún Halldórsdóttir, Helgi Júlíusson og Sigurður Long. Neðri röð frá vinstri: Sigurður Þorsteinsson, Hildur Þórisdóttir og Jóhann Valur Sævarsson. Bláa lónið Hildur Þórisdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri mannauðs hjá Bláa lóninu og Jóhann Valur Sævarsson framkvæmdastjóri sölu. Þau koma því ný inn í framkvæmdastjórn Bláa lónsins.
Í tilkynningu segir að framkvæmdarstjórn sé nú fullskipuð í kjölfar skipulagsbreytinga sem gerðar hafi verið hjá félaginu fyrr í sumar og hafi ábyrgðarsvið innan hennar jafnframt verið endurskilgreind. Haft er eftir Sigríði Margréti Oddsdóttur forstjóra að um sé að ræða öflugan hóp með fjölbreytta reynslu og ólíkan bakgrunn. „Við erum vel í stakk búin til að takast á við næsta áfanga. Fram undan er spennandi vegferð þar sem við ætlum að efla markaðssókn okkar, þróa upplifun gesta áfram og sækja af krafti þau tækifæri sem felast í sterkri stöðu Bláa Lónsins. Ég hef mikla trú á þessu teymi og því sem við getum áorkað saman,“ er haft eftir Sigríði Margréti. Um nýja framkvæmdastjórn Bláa lónsins segir í tilkynningunni: „Helgi Júlíusson er framkvæmdastjóri fjármála (CFO). Helgi hefur setið í framkvæmdastjórn Bláa Lónsins frá árinu 2022, hann er með C.Sc. gráðu í byggingarverkfræði frá Háskóla Íslands, með M.Sc. gráðu í rekstrarverkfræði frá Technical University of Denmark (DTU) og með MBA gráðu frá Cranfield School of Management, auk þess sem hann er með próf í verðbréfaviðskiptum. Helgi var áður framkvæmdastjóri Framtakssjóðsins Icelandic Tourism Fund og þar áður forstjóri Pennans. Hildur Þórisdóttir er framkvæmdastjóri mannauðs (CHRO). Hildur er ný í framkvæmdastjórn Bláa Lónsins en hún kemur til starfa frá Festi hf. þar sem hún starfaði sem mannauðsstjóri. Hildur er með B.A. í sálfræði og M.Sc. í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands. Hildur hefur starfað við mannauðsmál um árabil, meðal annars hjá Straumi-Burðarás Fjárfestingabanka, Kviku banka, Mannviti og Lyfju. Jóhann Valur Sævarsson er framkvæmdastjóri sölu (CCO). Jóhann er nýr í framkvæmdastjórn Bláa Lónsins en hann kemur til starfa frá Icelandair þar sem hann starfaði sem forstöðumaður fyrirtækjaarkitektúrs, gagna og sjálfvirknivæðingar. Áður starfaði Jóhann Valur hjá Air Atlanta, WOW air og NOVA. Jóhann er með B.Sc. gráðu í verkfræði frá Háskólanum í Reykjavík og M.Sc. gráðu í verkfræði frá Technical University of Denmark (DTU). Sigrún Halldórsdóttir er framkvæmdastjóri rekstrar (COO). Sigrún hefur setið í framkvæmdastjórn Bláa Lónsins frá árinu 2020 sem framkvæmdarstjóri mannauðs. Í því hlutverki hefur hún unnið þvert á félagið og öðlast víðtæka yfirsýn yfir starfsemina. Hún er með B.Sc. gráðu í rekstrarverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík og M.S. gráðu í mannauðsstjórnun frá Háskóla Íslands. Áður en hún hóf störf hjá Bláa Lóninu gegndi hún hlutverki ráðgjafa á sviði rekstrar- og mannauðsmála. Sigurður Long er framkvæmdastjóri tækni (CTO). Sigurður er með B.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og M.Sc. gráðu í upplýsingatækni frá ITU í Danmörku. Sigurður hefur starfað hjá Bláa Lóninu síðan 2019 og setið í framkvæmdastjórn frá árinu 2020. Hann var áður framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs Olíuverzlunar Íslands hf. og starfaði hjá Össuri og Maritech síðar Wise ehf. Sigurður Þorsteinsson er framkvæmdastjóri hönnunar (CDO). Sigurður er með BA gráðu og diplómu gráðu í iðnhönnun (Industrial Design) frá Istituto Europeo di Design, IED í Mílanó. Sigurður rak eigið fyrirtæki á sviði hönnunar, branding og nýsköpunar, Design Group Italia I.D. S.r.l. í Mílanó sl. 28 ár. Á þeim vettvangi starfaði hann fyrir Bláa Lónið allt frá árinu 1997 og nánast einvörðungu sl. fimm árin. Samhliða sölu á fyrrnefndu fyrirtæki sínu á Ítalíu hóf Sigurður störf sem framkvæmdastjóri hjá Bláa Lóninu í fullu starfi á árinu 2022.“
Bláa lónið Vistaskipti Ferðaþjónusta Mest lesið Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Viðskipti innlent Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Viðskipti innlent Mátti rifta kaupum á bíl sem bilaði þremur dögum eftir kaup Neytendur Tollasamkomulag Bandaríkjanna og Kanada út um þúfur Viðskipti erlent Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent Jón Þór fer til Samherja Viðskipti innlent JYSK opnar nýtt og glæsilegt vöruhús í Mosfellsbæ Samstarf Landsbankinn hækkar líka vexti Viðskipti innlent „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Samstarf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda Sjá meira