Sölvi Geir: „Allt of snemmt að fara að kíkja á töfluna“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 16. ágúst 2026 20:59 Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, sá sína menn ná átta stiga forskoti á toppi Bestu deildar karla í fótbolta í kvöld. vísir/Diego „Mér fannst þetta verðskuldaður sigur,“ sagði Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, eftir 4-2 útisigur liðsins gegn FH í Bestu-deildinni í kvöld.
Fyrir leik kvöldsins voru FH-ingar taplausir síðan 29. maí, eða í áttatíu daga. Lærisveinar Sölva þurftu að hafa fyrir hlutunum eftir að hafa lent 1-0 undir í fyrri hálfleik. „Mér fannst við vera betri aðilinn í leiknum, en að sama skapi fannst mér FH-ingarnir gera vel lengst af í leiknum. Þeir börðust mjög vel og gerðu okkur mjög erfitt fyrir að opna þá. Mér fannst við vera þolinmóðir í okkar leik og það var dálítið lykillinn. Að vera þolinmóðir og láta boltann ganga og bíða eftir því að þeir myndu þreytast og nýta okkur það þá,“ bætti Sölvi við, en segist þó vera ósáttur við ýmislegt úr leik sinna manna. „En ég er ekki sáttur. Enn og aftur erum við að fá á okkur mörk eftir föst leikatriði og það er eitthvað sem við þurfum að laga í okkar leik. Engu að síður er ég mjög sáttur við frammistöðuna, ákefðina, kraftinn og orkuna sem leikmenn lögðu í þennan leik. Ég er bara tiltölulega sáttur með þennan sigur.“ Hann segir einnig að hans menn hafi fundið fyrir ákveðnum létti þegar fyrsta mark liðsins kom eftir rúmlega hálftíma leik. „Það er alltaf góð orka sem fylgir marki. Við vorum náttúrulega að jafna þegar við skoruðum okkar fyrsta mark, en það er líka gott. Enn og aftur sýnir það líka karakterinn í liðinu. Við látum mörk ekki slá okkur út af laginu. Við sýndum það í síðasta leik á móti Thun þar sem við lentum tvisvar undir og komum til baka. Það sýnir karakter að láta ekki slá sig út af laginu.“ Þá harðneitar Sölvi því að Víkingar séu farnir að sjá fyrir sér Íslandsmeistaratitilinn þrátt fyrir að liðið sé með átta stiga forskot þegar átta leikir eru eftir. „Nei, við erum ekkert að skoða töfluna núna. Við vitum að það er mikið eftir og mörg stig í pottinum. Við einbeitum okkur bara að frammistöðunni í hverjum leik og það er allt of snemmt að fara að kíkja á töfluna eða spá í henni. Við erum meira að einblína á okkur og okkar frammistöðu og hvernig við nálgumst leikina. Hvað við getum gert til að vera í okkar besta formi þegar leikurinn er flautaður á.“ Að lokum segir Sölvi að það séu ýmsir þættir sem hann og hans menn þurfi að skerpa á fyrir lokasprettinn á Íslandsmótinu. „Það er fullt af hlutum. Við erum alltaf að kíkja á okkar leik til að sjá hvort það sé eitthvað sem við getum bætt okkur í og lagfært. Það er bara hluti af fótboltanum að þú ert alltaf að reyna að gera þig betri, hvort sem það er á æfingum eða í leikjum þá reynum við bara að vera heiðarlegir hver við annan og skoðum það sem má fara betur og reynum að bæta okkur,“ sagði Sölvi að lokum.
Besta deild karla Víkingur Reykjavík FH Mest lesið Ronaldo í bann hjá Portúgal Fótbolti Viktor Gísli varð fárveikur á HM Handbolti Uppgjörið Grindavík - KR 80-91 | KR jók hraðann í seinni hálfleik og innbyrti sigur Körfubolti Uppgjörið: Króatía - Ísland 0-4 | Systur á skotskónum í sannfærandi sigri Fótbolti 16 ára hetja Vals: „Bara sofa vel og skólinn á morgun“ Körfubolti Uppgjörið: Njarðvík - Tindastóll 77-85 | Vinna í deildum Evrópu og hér heima Fótbolti Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Fótbolti Arnar ætlar ekki að tjá sig og Laddar Liverpool-borgar eru í yfirvinnu Sport Reikna með Kane en vita ekki hvenær Körfubolti Áfall fyrir Tindastól: „Ég er ekki læknir en þetta leit illa út“ Körfubolti Fleiri fréttir Tumi Fannar mættur á Hlíðarenda Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Tarik framlengir við Víking Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Stóri munurinn á feigum og ófeigum: „Hvað er planið?“ Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Selfoss missir mikið efni Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Sjáðu fernu Niu og þrennu Ásu í ótrúlegum leik „Við erum alltaf að fara að taka þetta“ Breiðablik - Þróttur 5-4 | Ótrúleg endurkoma meistaranna FH - ÍBV 5-0 | Stórsigur FH sem lagaði markatöluna Sjáðu mörkin sem felldu Víking og Val Uppgjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn ,,Mikið í gangi í hausnum núna” „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Uppgjörið: Víkingur R - Þór/KA 0-2 | Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Enn er penninn á lofti í Laugardal Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Sjáðu þrennu sextán ára Bríetar og hægasta sigurmark ársins Segir skipulagið fáránlegt: „Ekki sanngjarnt að annað liðið sé alltaf að elta“ Bríet Fjóla Bjarnadóttir: „Ég varð að klára þetta með þrennu “ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - FH 3-2 | Áfall fyrir titilbaráttu FH Uppgjörið: Þróttur R. - Stjarnan 5-1 | Bríet Fjóla með þrennu í stórsigri Þróttar Sorgarferli að sættast við ónýtan skrokk „Þetta er þorpið manns“ Uppgjörið: ÍBV - Breiðablik 1-2 | Blikar verma toppinn Sjá meira