„Horfum bara á að enda tímabilið í topp sex“ Árni Gísli Magnússon skrifar 15. ágúst 2026 20:58 Eiður Orri Ragnarsson skoraði tvö mörk fyrir Keflavík í kvöld. Vísir/Hulda Margrét Eiður Orri Ragnarsson, leikmaður Keflavíkur, skoraði bæði mörk liðsins í 2-0 útisigri gegn Þór á Akureyri í dag. Hann var ánægður með sigurinn og segir tilfinningarnar vera góðar eftir leikinn. „
Þær eru bara fáránlega góðar. Fara hérna norður og taka sterk þrjú stig og halda okkur í topp sex, bara mjög ánægður með þetta.“ Fyrra mark Eiðs var einkar glæsilegt og var hann fenginn til að lýsa markinu. „Mig minnir að Sindri (Snær Magnússon) hafi fengið hann þarna í miðsvæðinu, ég tek bara hlaupið og treysti á að hann myndi senda á mig og fékk hann og svo fékk ég bara þennan góða tíma þarna áður en ég tók skotið en ég stillti mér bara vel upp og lét vaða og hann söng í netinu.“ Það var eins og þið hefðuð vaknað aðeins við þetta mark. Ertu sammála því? „Já, ég er mjög sammála því. Það var ekkert endilega mjög mikið í gangi hjá okkur, við þurftum að fá eitthvað svona kannski draumamark til þess að kveikja á okkur almennilega. Það var mjög lítið í gangi og svo í byrjun seinni hálfleiks vorum við að detta niður og svo náum við þessu öðru marki í lokin sem að gerði út um leikinn.“ Eiður var feginn að hafa náð inn öðru marki fyrir lokamínútur leiksins. „Maður hafði ekkert endilega góða tilfinningu þarna á því augnabliki, sko, þeir lágu svolítið vel á okkur þannig að við vorum ekkert að halda í boltann vel, spörkuðum alltaf upp bara og kannski bara héldum honum ekki nógu vel.“ Keflavík stekkur upp fyrir ÍA og Val í töflunni og í fimmta sætið sem stendur, en bæði þessi lið eiga eftir að spila í umferðinni og geta því jafnað Keflvíkinga aftur að stigum.Eiður Orri segir að liðið horfi núna bara upp á við. „Við horfum bara á að enda tímabilið í topp sex, klára þetta af alvöru krafti.“ Keflavík hefur ekki enn unnið tvo leiki í röð í sumar og vill Eiður sjá það breytast. „Við þurfum að ná að byrja að tengja leiki saman, sko. Það er bara að koma núna inn í næsta leik eins og við komum inn í þennan leik bara af fullum krafti og með fullt sjálfstraust og þá á þetta að koma.“
Besta deild karla Keflavík ÍF Þór Akureyri Mest lesið Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Körfubolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Fótbolti Tarik framlengir við Víking Íslenski boltinn Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Leikmaður ársins missir af landsleikjum Körfubolti Fleiri fréttir Tarik framlengir við Víking Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Stóri munurinn á feigum og ófeigum: „Hvað er planið?“ Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Selfoss missir mikið efni Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Sjáðu fernu Niu og þrennu Ásu í ótrúlegum leik „Við erum alltaf að fara að taka þetta“ Breiðablik - Þróttur 5-4 | Ótrúleg endurkoma meistaranna FH - ÍBV 5-0 | Stórsigur FH sem lagaði markatöluna Sjáðu mörkin sem felldu Víking og Val Uppgjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn ,,Mikið í gangi í hausnum núna” „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Uppgjörið: Víkingur R - Þór/KA 0-2 | Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Enn er penninn á lofti í Laugardal Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Sjáðu þrennu sextán ára Bríetar og hægasta sigurmark ársins Segir skipulagið fáránlegt: „Ekki sanngjarnt að annað liðið sé alltaf að elta“ Bríet Fjóla Bjarnadóttir: „Ég varð að klára þetta með þrennu “ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - FH 3-2 | Áfall fyrir titilbaráttu FH Uppgjörið: Þróttur R. - Stjarnan 5-1 | Bríet Fjóla með þrennu í stórsigri Þróttar Sorgarferli að sættast við ónýtan skrokk „Þetta er þorpið manns“ Uppgjörið: ÍBV - Breiðablik 1-2 | Blikar verma toppinn Þrjú lið berjast um eitt öruggt sæti en Fram bjargaði sér „Enginn annar sem hafði trú á okkur en við sjálf“ Sjá meira