Hnéhlífarnar nauðsynlegar er teymi Víkings hleypur fyrir Ingvar Valur Páll Eiríksson skrifar 13. ágúst 2026 12:02 Sölvi Geir vonast til að hlaupið gangi vel, æfingar hafi gengið framar vonum, þrátt fyrir að fara illa með hné og mjaðmir. Vísir Allt þjálfarateymi karlaliðs Víkings í fótbolta mun hlaupa í Reykjavíkurmaraþoninu til stuðnings Ingvari Jónssyni og fjölskyldu hans. Ingvar, sem er markvörður Víkings, berst við krabbamein.
Ingvar hóf tímabilið í marki Víkings en skammt var liðið á það þegar hann fór í veikindaleyfi eftir að hafa greinst með krabbamein. Fjölmörg lið á Íslandi létu aðgangseyri sinn renna til Ingvars og mættu til leiks í bolum honum til heiðurs. Víkingar leita áfram leiða til að styrkja Ingvar í hans baráttu, samkvæmt Sölva Geir Ottesen, þjálfara Víkings, aðspurður um hvernig þetta hafi komið til. „Við erum alltaf að leita leiða til að styðja við okkar mann. Okkur fannst þetta góð leið til að gera það, að bæði styðja við Ingvar og fjölskyldu hans. Svo er þetta líka gott viðhald á okkur þjálfarateyminu, við sitjum mikið við tölvur og svona,“ „Það er gott að hafa smá hvatningu til að standa upp frá stólnum og fara út að hlaupa. Þetta er lítið mál fyrir okkur, held ég, ég hef aldrei hlaupið maraþon,“ segir Sölvi og hlær. Aðspurður hvernig æfingar gangi, og hvernig þær fari með mjaðmir og hné segir Sölvi: „Ekki vel. Maður hefur skoðað hina og þessa skó sem eru með mjúkan botn og svona, svo eru það hnéhlífarnar gömlu. Svo reyni ég að hlaupa á grasi við hliðina á stígunum. En þetta gengur betur en ég hélt.“ Viðtal við Sölva í heild má sjá í spilaranum. Heita má á þjálfarateymi Víkings til stuðnings Ingvari hér.
Víkingur Reykjavík Besta deild karla Tengdar fréttir Öll lið lenda í þessu Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, segir eðlilegt að lið gangi í gegnum lægðir, líkt og Víkingar hafa gert að undanförnu. Hann leitar allra leiða til bóta þar á. 13. ágúst 2026 09:30 Staðfestir brottför Gunnars: „Einn besti varnarmaður frá upphafi“ Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, staðfestir að Gunnar Vatnhamar, varnarmaður liðsins, yfirgefi félagið á næstunni. Hann gerir ráð fyrir að Gunnar fari í lok mánaðar. 12. ágúst 2026 16:39 Mest lesið Ronaldo í bann hjá Portúgal Fótbolti Viktor Gísli varð fárveikur á HM Handbolti Uppgjörið: Króatía - Ísland 0-4 | Systur á skotskónum í sannfærandi sigri Fótbolti Uppgjörið Grindavík - KR 80-91 | KR jók hraðann í seinni hálfleik og innbyrti sigur Körfubolti 16 ára hetja Vals: „Bara sofa vel og skólinn á morgun“ Körfubolti Uppgjörið: Njarðvík - Tindastóll 77-85 | Vinna í deildum Evrópu og hér heima Fótbolti Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Fótbolti Arnar ætlar ekki að tjá sig og Laddar Liverpool-borgar eru í yfirvinnu Sport Reikna með Kane en vita ekki hvenær Körfubolti Mótherji Eriku kastaði dós í hana Sport Fleiri fréttir Tumi Fannar mættur á Hlíðarenda Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Tarik framlengir við Víking Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Stóri munurinn á feigum og ófeigum: „Hvað er planið?“ Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Selfoss missir mikið efni Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Sjáðu fernu Niu og þrennu Ásu í ótrúlegum leik „Við erum alltaf að fara að taka þetta“ Breiðablik - Þróttur 5-4 | Ótrúleg endurkoma meistaranna FH - ÍBV 5-0 | Stórsigur FH sem lagaði markatöluna Sjáðu mörkin sem felldu Víking og Val Uppgjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn ,,Mikið í gangi í hausnum núna” „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Uppgjörið: Víkingur R - Þór/KA 0-2 | Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Enn er penninn á lofti í Laugardal Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Sjáðu þrennu sextán ára Bríetar og hægasta sigurmark ársins Segir skipulagið fáránlegt: „Ekki sanngjarnt að annað liðið sé alltaf að elta“ Bríet Fjóla Bjarnadóttir: „Ég varð að klára þetta með þrennu “ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - FH 3-2 | Áfall fyrir titilbaráttu FH Uppgjörið: Þróttur R. - Stjarnan 5-1 | Bríet Fjóla með þrennu í stórsigri Þróttar Sorgarferli að sættast við ónýtan skrokk „Þetta er þorpið manns“ Uppgjörið: ÍBV - Breiðablik 1-2 | Blikar verma toppinn Sjá meira
Öll lið lenda í þessu Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, segir eðlilegt að lið gangi í gegnum lægðir, líkt og Víkingar hafa gert að undanförnu. Hann leitar allra leiða til bóta þar á. 13. ágúst 2026 09:30
Staðfestir brottför Gunnars: „Einn besti varnarmaður frá upphafi“ Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, staðfestir að Gunnar Vatnhamar, varnarmaður liðsins, yfirgefi félagið á næstunni. Hann gerir ráð fyrir að Gunnar fari í lok mánaðar. 12. ágúst 2026 16:39