Með þrennu í fyrstu tveimur leikjunum sínum með Dortmund Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. ágúst 2026 22:30 Íslenski knattspyrnumaðurinn Bjarki Hrafn Garðarsson er að byrja frábærlega í Þýskalandi. @borussend Íslenski knattspyrnumaðurinn Bjarki Hrafn Garðarsson fór frá Stjörnunni til Borussia Dortmund í sumar og það er ekki hægt að segja annað en að byrjun hans boði gott fyrir lífið í Þýskalandi.
Bjarki Hrafn hélt upp á sextán ára afmæli sitt í febrúar og byrjar á því að spila með unglingaliði Dortmund áður en hann getur farið að banka á dyr aðalliðsins. Þessi stóri og stæðilegi framherji var búinn að skapa sér nafn með yngri liðum Stjörnunnar og yngri landsliðum Íslands og hafði líka fengið nokkrar mínútur í Bestu deildinni. Neuzugang Bjarki Hrafn Gardarsson (16 | 🇮🇸) erzielt in 2 Spielen 6 Tore für die BVB-U19 (25,5min. pro Tor)!Zum U19-Vergleich: Paris Brunner (23/24) brauchte für 6 Tore 5 Spiele (in 14 Tagen), Julian Rijkhoff (22/23) ebenfalls für 6 Tore 5 Spiele (in knapp 3 Wochen & 8 Tagen). pic.twitter.com/dY8V14mvOB— Sven (@BorussiaSven) August 9, 2026 Þrátt fyrir væntingar til þessa 194 sentímetra og örvfætta Garðbæings þá gat enginn búist við svona draumabyrjun. Bjarki er að spila með nítján ára liði Dortmund og spilaði fyrst bikarleik á móti Holstein Kiel. Leikurinn tapaðist 4-3 en Bjarki skoraði öll þrjú mörk Dortmund. Die Tore zur 4-0 Halbzeitführung von der U19 des BVB gegen Oberhausen pic.twitter.com/CjPVngA5KN— bvbdia (@bvbdiamonds) August 8, 2026 Leikur númer tvö var fyrsti deildarleikurinn á móti Oberhausen um síðustu helgi. Dortmund vann leikinn 4-2 og Bjarki var aftur með þrennu. Bjarki skoraði öll mörkin sín þrjú á fyrstu tuttugu mínútu leiksins og hjálpaði liðinu að ná 3-0 forystu. Bjarki var tekinn af velli á 62. mínútu og þessi sex mörk hans hafa því komið á aðeins 152 mínútum sem þýðir að hann skoraði mark á 25 mínútna fresti í fyrstu tveimur leikjum sínum í atvinnumennsku. View this post on Instagram A post shared by FutureBallersDE (@futureballersde) View this post on Instagram A post shared by Borussend (@borussend)
Þýski boltinn Mest lesið Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Tarik framlengir við Víking Íslenski boltinn Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Körfubolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Fótbolti Leikmaður ársins missir af landsleikjum Körfubolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Fleiri fréttir Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Býður sig fram á móti Infantino Tarik framlengir við Víking Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Fagnar stiginu: „Ég var að fíla Eistana“ „Bara lét okkur heyra það í hálfleik“ „Svo lengi sem ég get hlaupið vil ég spila fyrir Ísland“ „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ „Það sem svíður mest“ Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Ronaldo segir þjálfarann hafa svikið sig Unnu stórsigur og komu Íslandi í umspil Króatía - Spánn 2-1 | Varamaðurinn bjargaði sigri fyrir Spán Kane með tvennu í öruggum sigri Byrjunarlið Íslands: Fimm breytingar og Gylfi inn Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Sjá meira