Í hóp lufsulegra lánsmanna Liverpool Valur Páll Eiríksson skrifar 9. ágúst 2026 08:00 Araujó þarf ekki að gera mikið til að bæta árangur lánsmanna Liverpool á þessari öld, sem hafa verið sjö talsins. Samsett Allt stefnir í að Ronald Araújo, fyrirliði Barcelona, sé á leið til Liverpool á láni með möguleika á því að Rauði herinn kaupi Úrúgvæjann að samningnum loknum. Lánsmenn hjá Liverpool hafa sögulega séð ekki slegið í gegn.
Araújo hefur verið öflugur með liði Barcelona frá því að hann komst í aðalliðið árið 2020 en þó gengið illa að halda sér heilum gegnum heila leiktíð. Hann þurfti þá að taka sér hlé frá fótbolta í mánuð andlegrar heilsu sinnar vegna vorið 2024. Ljóst er að Liverpool er þó að næla í öflugan varnarmann sem þörf er á, eftir brottför Ibrahima Konaté í sumar og þá hrella meiðsli aðra varnarmenn liðsins. Áhugavert verður að sjá hvernig Araújo vegnar í Liverpool-borg en hann þarf ekki að gera mikið til að bæta árangur þeirra sem komið hafa á undan honum sem lánsmenn til Liverpool. Hér að neðan eru listaðir upp þeir átta leikmenn sem hafa komið á láni til Liverpool á þessari öld, í tímaröð. Nicolas Anelka frá PSG árið 2002 Anelka var kynntur sem leikmaður Liverpool ásamt Milan Baros á aðfangadag árið 2001.EPA PHOTO EPA/PAUL BARKER Lánsmenn hafa hins vegar ekki gert það gott hjá Liverpool á þessari öld. Sá eini sem gerði eitthvað af viti var í raun sá fyrsti, Nicolas Anelka sem kom á láni frá PSG vorið 2002. Anelka vildi í kjölfarið ganga alfarið til liðs við félagið sumarið eftir og hávært ákall var meðal stuðningsmanna liðsins eftir kaupum á Frakkanum. Gerard Houllier, þáverandi stjóri Liverpool, ákvað hins vegar að fá frekar Senegalann El-Hadji Diouf til félagsins. Frá því að Anelka var á mála hjá Liverpool hefur félagið fengið sjö leikmenn á láni til félagsins og óhætt er að segja að enginn þeirra hafi slegið í gegn. Nuri Sahin frá Real Madrid árið 2012 Nuri Sahin er líklega sá, ásamt Anelka, sem átti glæstastan feril utan Liverpool-borgar af þeim sem eru á listanum.Mynd/AFP Mikil spenna var fyrir Nuri Sahin sem kom á láni frá Real Madrid árið 2012. Sá hafði ekki náð að stimpla sig inn í spænsku höfuðborginni en spenna var fyrir öflugum leikmanni sem hafði gert það gott hjá Jurgen Klopp í Dortmund árin á undan. Sahin tókst að skora þrjú mörk en þó í aðeins tólf leikjum þar sem Brendan Rodgers leist ekki nægilega vel á kauða. Aly Cissokho og Victor Moses frá Valencia og Chelsea árið 2013 Aly Cissokho í Liverpool treyjunni. Honum og Victor Moses mistókst að slá í gegn.Mynd / heimasíða Liverpool Tímabilið eftir vantaði Liverpool menn í hópinn í bakverði og á kantinn. Aly Cissokho kom á láni frá Valencia og Victor Moses frá Chelsea. Liverpool átti frábæra leiktíð og var nærri Englandsmeistaratitli, að stærstum hluta þökk sé Luis Suárez, en segja má að þeir Moses og Cissokho hafi lítil áhrif haft innan vallar. Javi Manquillo frá Atlético Madrid árið 2014 Manquillo átti að vera í tvö ár hjá Liverpool en samningi hans var slitið eftir aðeins eitt ár.Vísir/Getty Sumarið eftir það tók Liverpool séns á því að fá Javi Manquillo á láni frá Atlético Madrid. Þessi tvítugi bakvörður kom á tveggja ára lánssamningi með möguleika á kaupum. Hann byrjaði leiktíðina í byrjunarliðinu en lék aðeins þrjá leiki á síðari hluta leiktíðar. Liverpool ákvað að slíta lánssamningnum eftir eitt ár en Manquillo átti síðar eftir að leika fyrir Newcastle á Englandi. Steven Caulker frá QPR árið 2016 Caulker spilaði þrjá leiki, og meira sem framherji en miðvörður.Vísir/Getty Steven Caulker, fyrrverandi aðstoðarþjálfari Stjörnunnar, kom óvænt til Liverpool á láni í stjóratíð Jurgens Klopp í janúar 2016. Caulker hafði verið á láni hjá Southampton frá QPR en skipti um lánslið, hafandi ekki mikið lagt á borð á suðurströndinni. Hann lagði ekki mikið meira á borð hjá Liverpool og spilaði raunar álíka mikið sem neyðarframherji og sem miðvörður í Bítlaborginni og lék að endingu aðeins þrjá leiki. Hann fór í kjölfarið aftur til QPR og varð hálfgerður varamaður hjá liðinu í B-deildinni árið eftir. Ozan Kabak frá Schalke árið 2021 Kabak spilar í dag fyrir Hoffenheim í þýsku úrvalsdeildinni.Andrew Powell/Getty Tyrkinn Ozan Kabak kom á láni til Liverpool fimm árum síðar, árið 2021, þegar Liverpool var í varnarmannakrísu. Hann lofaði góðu, annað en margur annar á þessum lista, var aðeins tvítugur og Liverpool gat keypt hann á 18 milljónir punda að láninu loknu. Meiðsli settu strik í reikninginn hjá Kabak á síðari hluta tímabilsins og eftir 13 leiki var ákveðið að framlengja ekki veru hans hjá Liverpool. Hann hefur ekki beint slegið í gegn á ferli sínum síðan. Arthur Melo frá Juventus árið 2022 Arthur Melo í leik við Rochdale með U21 árs liði Liverpool í Papa John's bikarnum.Lewis Storey/Getty Images Arthur Melo er síðasti maðurinn sem hefur komið á láni til Liverpool fyrir komu Araújo. Skiptin komu mörgum á óvart á lokadegi félagsskiptagluggans haustið 2022 en Liverpool hafði lent í miklum meiðslum á miðjunni. Melo kom á láni frá Juventus og hafði áður leikið fyrir Barcelona. Melo var hins vegar klárlega ekki í standi sjálfur og tókst aðeins að spila 13 mínútur í treyju Liverpool, og þær mínútur spilaði hann viku eftir að hann kom til þeirra rauðklæddu. Hann náði þó leikjum í Papa John's-bikarnum með varaliði Liverpool.
Liverpool FC Enski boltinn Mest lesið Endurkomusigur hjá City í fyrsta leik Enski boltinn Haaland snoðaði sig fyrir fyrsta leik í enska Enski boltinn KSÍ og Norðurlöndin lýsa yfir vantrausti á Infantino Fótbolti Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn Körfubolti Myndasyrpa frá Reykjavíkurmaraþoninu: Bleyta, bætingar og bros Sport Newcastle - Liverpool | Rauði herinn heimsækir skjórana Enski boltinn Sjáðu hvernig Hull og Brentford fóru með United og Spurs og öll mörkin úr enska Enski boltinn Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Algjört hrun í fyrsta leik hjá Aston Villa Enski boltinn Harkalegur árekstur hjá Verstappen á heimaslóðum Formúla 1 Fleiri fréttir Newcastle - Liverpool | Rauði herinn heimsækir skjórana Algjört hrun í fyrsta leik hjá Aston Villa Endurkomusigur hjá City í fyrsta leik Watkins utan hóps en Emery vill ekki tjá sig Haaland snoðaði sig fyrir fyrsta leik í enska „Ég mun reyna að finna nýjan Rodri“ Sjáðu hvernig Hull og Brentford fóru með United og Spurs og öll mörkin úr enska Vesen hjá Palace: Mateta heldur því fram að lokaár samningsins sé ógilt De Zerbi ósáttur: „Vorum ekki tilbúnir að berjast“ Brentford tók Tottenham í karphúsið Góð byrjun hjá strákunum hans Moyes Glæsimark kom ekki í veg fyrir nýliðasigur Tryggði sigur beint úr aukaspyrnu undir blálokin „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Curtis Jones farinn til Inter Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Konsa orðinn leikmaður Arsenal Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Liverpool fær höfnun frá Brighton Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Marcus Rashford búinn að fá nóg Sjá meira