Hvernig tryggjum við börnum okkar framtíð á Íslandi? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar 8. ágúst 2026 16:03 Markmiðið er ekki ESB, heldur að tryggja íslensku ungu fólki sambærileg lífskjör og Norðurlandaþjóðirnar búa við. Þetta er að mínu mati stærsta spurningin í allri umræðunni um framtíð Íslands. Ekki hvort fiskurinn okkar sé seldur í Bandaríkjadölum eða evrum. Ekki hvort stærsti viðskiptapartur Íslands sé Evrópusambandið eða Bandaríkin. Spurning er hvort ungt fólk á Íslandi muni eiga sömu raunverulegu möguleika til að byggja sér framtíð á Íslandi og jafnaldrar þeirra í Danmörku, Svíþjóð, Finnlandi og Noregi. Getur unga fólkið keypt sér fyrstu íbúðina á sambærilegum kjörum? Getur það stofnað fyrirtæki án þess að hár fjármagnskostnaður standi í vegi? Getur það byggt upp alþjóðleg fyrirtæki frá Íslandi? Getur það valið að búa hér af því að samkeppnisstaða og tækifæri eru eins og hjá Dönum? Þessum spurningum þurfum við að svara. Ný skýrsla um utanríkisverslun er með góða punkta – en ekki alla myndina Skýrslan Utanríkisverslun Íslands – raunveruleg mynd er mikilvægt framlag til umræðunnar. Hún leiðréttir misskilning um utanríkisviðskipti Íslands. Hún sýnir meðal annars að þjónustuútflutningur er orðinn stærri en vöruútflutningur, að viðskiptin við Bandaríkin eru stærri en margir hafa talið og að stór hluti útflutnings er reikningsfærður í Bandaríkjadölum. Þetta eru mikilvægar staðreyndir. En þær svara aðeins hluta af stóru spurningunni. Þær segja okkur hvert vörurnar fara og í hvaða mynt þær eru reikningsfærðar. Ekki hvort núverandi efnahagsumhverfi Íslands sé það besta sem við getum boðið komandi kynslóðum. Við eigum ekki aðeins að flytja út fisk – við eigum að flytja út meiri verðmæti Íslenskur sjávarútvegur er meðal þeirra öflugustu í heiminum. En stærsta tækifærið felst ekki aðeins í því að veiða fisk. Það felst í því að skapa sem mest verðmæti úr hverju kílói sem kemur á land. Getum við með tollfrelsinu aukið fullvinnslu og fjölgað störfum á Íslandi? Getum við byggt upp fleiri fyrirtæki í sjávarlíftækni? Getum við þróað fleiri matvörur, hugbúnað og lausnir sem byggja á íslenskri þekkingu? Getum við skapað fleiri sérfræðistörf fyrir unga fólkið okkar? Hér eru tækifærin til að skapa ný störf sem eru grunnur að góðum launum næstu áratugina. Fjárfestingar verða EKKI þar sem óvissa ríkir Þegar fyrirtæki taka ákvörðun um að fjárfesta horfa þau til næstu 20 til 30 ára. Ef óvissa ríkir um framtíðaraðgang að stærsta markaði Íslands getur það haft áhrif á hvar fjárfest er. Núna býr Ísland ekki við tollfrelsi á fullunum vörum og sérstakt efnahagsumhverfi. Hvaða spurningar vekur það: Er hagstæðara og meira öryggi í að reisa nýja fullvinnsluverksmiðja annars staðar? Hvar á ég að fjárfesta í nýju rannsóknarsetri? Kannski verða sérfræðistörfin flutt út eða vel menntuðu Íslendingarnir koma ekki heim. Þetta sést ekki í útflutningstölum dagsins í dag. En það getur haft veruleg áhrif á íslenskt samfélag eftir tuttugu eða þrjátíu ár. Þess vegna þurfum við að spyrja og rannsaka: Hversu fjölbreyttar fjárfestingar, hversu mörg störf og hversu mikil verðmætasköpun hefur ekki orðið til á Íslandi vegna þess að framtíðarskilyrðin og óvissan í íslensku efnahagsumhverfi eru of mikil? Við þurfum að horfa á alla myndina Ef við ætlum að taka upplýsta ákvörðun um framtíð Íslands nægir ekki að skoða aðeins utanríkisviðskipti eða í hvaða gjaldmiðli útflutningur er reikningsfærður. Við þurfum einnig að skoða: vaxtastig og fjármagnskostnað, verðbólgu og stöðugleika, húsnæðiskostnað ungs fólks, fjárfestingar fyrirtækja, nýsköpun og aðgang að fjármagni, framleiðni og verðmætasköpun, erlenda fjárfestingu, samkeppnishæfni atvinnulífsins, stöðu sjávarútvegs, stöðu landbúnaðar, Sérstaklega þarf að skoða - hvort við séum að tryggja íslensku ungu fólki sambærileg samkeppnisskilyrði og Norðurlandaþjóðirnar búa við. Þetta eru mælikvarðarnir sem skipta máli þegar horft er til næstu fimmtíu ára. Samningurinn verður að uppfylla samningsmarkmiðin Við eigum ekki að samþykkja hvaða samning sem er. Ef samningaviðræður halda áfram verður samningurinn að sýna með skýrum hætti að hann: styrki samkeppnishæfni Íslands, bæti skilyrði fyrir fjárfestingar og nýsköpun, styðji við meiri verðmætasköpun hér á landi, tryggi hagsmuni sjávarútvegs og landbúnaðar, og bæti raunverulega stöðu komandi kynslóða. Ef hann gerir það ekki eigum við að hafna honum. Sjáum samninginn Ég hef skrifað nokkrar greinar um vaxtamun Íslands og nágrannalandanna, húsnæðiskostnað ungs fólks, samkeppnishæfni atvinnulífsins, nýsköpun, framtíð landbúnaðar, verðmætasköpun í sjávarútvegi og hér um utanríkisviðskipti Íslands. Hver grein hefur varpað ljósi á einn hluta myndarinnar. Við þurfum að horfa á heildarmyndina og eigum ekki að taka ákvörðun út frá einum mælikvarða. Við eigum að meta alla þætti sem skipta framtíð Íslands máli. Þess vegna tel ég að ábyrgasta leiðin sé að ljúka viðræðum og sjá hvaða samning Ísland getur raunverulega fengið. Aðeins þannig getum við borið samninginn saman við þau samningsmarkmið sem við höfum sett okkur um að gera okkar allra besta til að tryggja íslensku ungu fólki betri og öruggari framtíð . Óttumst ekki að fá samningin, ef hann verður ekki hagstæður fyrir Ísland, þá segjum við nei þegar kosið verður um samninginn sjálfan. Ef við segjum nei núna í ágúst og unga fólkið spyr okkar eftir 10 ár: Af hverju reynduð þið ekki að semja við ESB? Hverju ætlum við að svara: Við vorum hrædd og þorðum ekki að ganga til samninga! Höfundur er viðskiptafræðingur (cand. oecon). Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Stöndum vörð um...hvað? Ingibjörg Rósa Björnsdóttir Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Spánverjar vilja íslenskan sjávarútveg Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Ísland og evran Höskuldur Einarsson Skoðun Skoðun Skoðun Landsvirkjun, „Ísland allt“ og óvissan um ESB-aðild Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Breytt heimsmynd Sigurgeir Jónasson skrifar Skoðun Komin með nóg af umræðu um ESB? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Við höfum engu að tapa – þess vegna segi ég já Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Nýr samfélagssáttmáli: Lífeyrissjóðir, bankakerfi og afnám verðtryggingar — raunhæf leið til stöðugleika í kjarasamningum og styrkingar lánshæfismats Íslands Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Ísland og evran Höskuldur Einarsson skrifar Skoðun Gosi og gylliboðin Kristín Thoroddsen skrifar Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar Skoðun Spánverjar vilja íslenskan sjávarútveg Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Fólkið eða peningarnir? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Stöndum vörð um...hvað? Ingibjörg Rósa Björnsdóttir skrifar Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir skrifar Skoðun Fullveldi hvað Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Nei er ókei Ágúst Valves Jóhannesson skrifar Skoðun Hvað ef? Pétur B. Sveinsson skrifar Skoðun Húsnæðisvextir lækka ekki sjálfkrafa með evru Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Við erum í partíinu en megum ekki velja lag Árni Páll Jónsson skrifar Skoðun Með öllum mjalla? Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Til hvers var þá barist? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Skynsamleg röð hlutanna Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Græða fyrirtæki á verðbólgu? Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Sjá meira
Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson Skoðun
Skoðun Nýr samfélagssáttmáli: Lífeyrissjóðir, bankakerfi og afnám verðtryggingar — raunhæf leið til stöðugleika í kjarasamningum og styrkingar lánshæfismats Íslands Eggert Guðmundsson skrifar
Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar
Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar
Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson Skoðun