Vaxandi lægð yfir landinu og rigning í kortunum Lovísa Arnardóttir skrifar 6. ágúst 2026 07:23 Það má líklega taka fram regnjakkann og bíða með fjallaferðir að sögn veðurfræðings. Vísir/Vilhelm Vaxandi lægð er nú stödd vestur af Reykjanesi sem sendir regnsvæði sitt til austurs yfir allt landið í dag. Nokkuð blautt verður víðast hvar í dag og á morgun og töluverður vindur og víða varasamt fyrir ökutæki sem viðkvæm eru fyrir vindi.
Samkvæmt spá verður norðaustan 8-13 m/s norðvestantil á landinu í dag, annars hægari vindur. Víða rigning eða súld, en þurrt um landið norðaustanvert þangað til síðdegis. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast á Austurlandi. Í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofunnar kemur fram að á norðaustanverðu landinu hangi þurrt að mestu fram á síðdegið. Vindur verði hægur víðast hvar í dag, að undanskildum norðvesturfjórðungi landsins. Þar gangi í norðaustan strekking og jafnvel allhvassir strengir við fjöll í kvöld sem geti verið varasamir fyrir þau ökutæki sem viðkvæmust eru fyrir vindi. Í hugleiðingum segir að sama lægð muni áfram stýra veðrinu á morgun og þá verði miðja hennar stödd skammt suður af landinu. Búast megi því við rigningu á öllu landinu, en seinnipartinn verði lítið eftir af henni á Vesturlandi. Vindurinn dreifist einnig meira um landið á morgun og megi víða búast við norðaustan strekkingi og að allhvassir strengir geti látið á sér kræla í fleiri landshlutum, til dæmis á Vesturlandi og við suðausturströndina. Hitatölurnar á leið niður Samkvæmt spá eiga hitatölurnar að fara niður á við, einkum á Norður- og Austurlandi. Spár gera síðan ráð fyrir að lægðin ráði enn ríkjum á laugardaginn. Þá er spáð stífri norðan- og norðaustanátt með rigningu og köldu veðri norðan- og austanlands, en úrkomulítið suðvestantil á landinu. Veðurfræðingur segir að af ofansögðu megi vera ljóst að veðrið á morgun og á laugardag er ekki áskjósanlegt til fjallaferða vegna vinds, úrkomu og vosbúðar. Víðast hvar er fært um landið en viðgerðir og aðrar vegaframkvæmdir eiga sér nú stað um allt land. Búast má við steinkasti og jafnvel töfum vegna þessarar vinnu. Víða er hraði tekinn niður á vinnusvæðum og kemur fram á vef Vegagerðarinnar að gott sé að halda 50 metrum á milli bíla til að minnka líkur á skemmdum vegna steinkasts. Vegfarendur eru beðnir um að sýna aðgát og tillitssemi. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Norðaustan og austan 5-15 m/s, hvassast um landið norðvestanvert. Víða rigning eða súld, en úrkomulítið suðvestanlands síðdegis. Hiti frá 6 stigum norðaustantil, upp í 14 stig á Suðurlandi. Á laugardag: Norðan- og norðaustanátt, víða á bilinu 10-15 m/s. Rigning um landið norðan- og austanvert, talsverð úrkoma á Austurlandi. Þurrt að mestu sunnan heiða. Hiti 5 til 14 stig, mildast syðst. Á sunnudag: Norðan 5-13. Minnkandi rigning á Norður- og Austurlandi, en bjartviðri um landið sunnanvert. Hiti breytist lítið. Á mánudag: Vestlæg átt og víða léttskýjað með hita 10 til 15 stig yfir daginn. Á þriðjudag: Hæg breytileg átt. Bjart með köflum, en stöku skúrir síðdegis. Hiti 11 til 18 stig. Á miðvikudag (almyrkvi á sólu): Vaxandi norðaustanátt og fer að rigna, en skýjað með köflum og þurrt á vestanverðu landinu. Hiti víða 10 til 15 stig.
Veður Færð á vegum Mest lesið Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Innlent Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Innlent Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Innlent Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Innlent Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir Erlent Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Innlent Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Innlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Víða skúrir en allt að tuttugu stigum austanlands Stinningskaldi og súld suðvestanlands Blaut og vindasöm Menningarnótt í vændum Lægðardrag fikrar sig nær og bætir í úrkomu í nótt og á morgun Bjart að mestu í dag en lægð nálgast á morgun Bjartviðri í flestum landshlutum Bjart og sólríkt víðast hvar Allt að nítján stiga hiti í dag Bjart víðast hvar á landinu í dag Veður með rólegasta móti um helgina Norðanáttin ríkjandi og hiti að tuttugu stigum sunnantil Allmikil lægð þokast norðaustur Litlar líkur á skýjahulan brotni en líklegast norðvestantil Hiti að átján stigum Bjart og milt í dag og allt að nítján stiga hiti Nýjasta sólmyrkvaspáin gefur ívið betri fyrirheit Talsverð úrkoma á Austurlandi Líkur á skriðuföllum á Norðvestur- og Norðausturlandi Rigning og súld á öllu landinu Vaxandi lægð yfir landinu og rigning í kortunum Von á lægðarsvæði í átt að landinu úr suðvestri Þurrasti júlímánuður á Akureyri í níutíu og sjö ár Bjartviðri sunnan heiða en stöku skúrir vestan til Allt að tuttugu stiga hiti og líkur á síðdegisskúrum Hiti á bilinu sjö til tuttugu stig Vara við snörpum vindhviðum Vara við hvössum vindstrengjum Allt að átján stigum og léttskýjað vestanlands Allt að sautján stigum og mildast á Suður- og Vesturlandi Lægð suður af landinu og hæð yfir Grænlandi Sjá meira