Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Björn Berg Gunnarsson skrifar 11. ágúst 2026 07:00 Björn Berg Gunnarsson svarar lesendum Vísis aðra hverja viku. Hægt er að senda honum spurningu í spurningaforminu hér fyrir neðan. Vísir/Vilhelm 54 ára kona spyr: „Sæll. Nú er ég að velta fyrir mér að borga sirka 1,5 milljón inn á 17 milljóna króna húsnæðislán sem ég er með. Er eitthvað sérstakt sem ég þarf að hafa í huga, er einhver tímapunktur betri en annar eða get ég greitt inn á höfuðstólinn hvenær sem er? Með góðri kveðju og þökk.“ Þetta líst mér á. Mér leiðist seint að benda á kosti þess að greiða inn á húsnæðislán, en með því færðu ljómandi góða ávöxtun, skattfrjálsa og án áhættu. En það er þó rétt sem þig grunar, það þarf að huga að ýmsu. Björn Berg fjármálaráðgjafi svarar spurningum frá lesendum Vísis um allt sem tengist fjármálum, fjárfestingum og öðru. Uppgreiðslugjald Flestum bankalánum sem bera fasta vexti fylgir uppgreiðslugjald, ef meira en ein milljón króna er greidd inn á lánið á ári. Gjaldið getur þó aldrei verið meira en 0,2% fyrir hvert heilt ár sem eftir lifir af fastvaxtatímabilinu. Undantekningar eru viss eldri lán hjá HMS, sem þarf að skoða vel og vandlega. Ef uppgreiðslugjald er á þínu láni er kostnaðurinn þó væntanlega svo lítill að hann hefur tæplega áhrif á fyrirætlanir þínar. Heppilegasta tímasetningin Hvenær nákvæmlega er þá best að ráðast í innborgunina? Stutta svarið er núna strax. Með því eru það aðeins 15,5 milljónir króna sem bera vexti fram að næsta gjalddaga í stað sautján milljóna og það er að sjálfsögðu ódýrara fyrir þig. En hvers vegna er þá varla hægt að líta við á Facebook án þess að sjá fólk býsnast yfir því hve mikil mistök það hafi verið að greiða inn á lánið, þar sem „allt fór í vexti“? Það er vegna misskilnings um hvernig rukkað er af lánum. Þegar greiðsluseðillinn berst þér ert þú beðin um að greiða hluta af eftirstöðvum lánsins sem og vexti. Vextina þarf að sjálfsögðu að greiða, en þeir bætast daglega við kostnað lánsins. Sé greitt inn á lán áður en kemur að gjalddaga þess getur verið að hluti greiðslunnar fari í að greiða þá vexti sem safnast hafa frá síðasta gjalddaga og afgangurinn á höfuðstól lánsins. Það getur þá valdið því að greiðsluseðillinn sem næst berst inn um lúguna verður lægri sem því nemur, vegna þess að vextir hafa þegar verið greiddir. Það er ekkert neikvætt við það, innborgunin nýttist sannarlega. Nýlegar breytingar á lánakerfum hafa þó gert það að verkum að í dag fer slík umframgreiðsla alfarið á höfuðstól, óháð tímasetningu. Ef þú vilt halda áfram að greiða inn á lánið, til dæmis með reglubundnum hætti, gæti þó verið þægilegast fyrir þig að greiða viðbótargreiðsluna á gjalddaga, eftir að gengið hefur verið frá mánaðarlegri greiðslu lánsins. Þá getur þú verið viss um að hver króna fari alfarið á höfuðstól lánsins. Hvað gerist ef þú heldur greiðslubyrðinni óbreyttri? Nú veit ég ekki hvort lánið þitt sé verðtryggt eða óverðtryggt, með jöfnum afborgunum eða jöfnum greiðslum, né hver kjörin eru og lengd lánsins. Ef við gefum okkur þó að um tuttugu ára óverðtryggt jafngreiðslulán sé að ræða, sem ber 9,35% vexti, er áhugavert að líta á áhrif þess að 1,5 milljónir króna séu greiddar inn á lánið. Í dag væri mánaðarleg greiðslubyrði slíks láns 156.921 kr. Eftir innborgunina verður greiðslubyrðin 143.085 kr. Þú hefur lækkað greiðslubyrði lánsins um tæp 14.000 kr. En hvað ef þú heldur óbreyttri greiðslubyrði og heldur áfram að greiða 156.921 í hverjum mánuði, óháð því hvað þú verður beðin um að greiða? Þá gerist nefnilega nokkuð ansi merkilegt. Í stað þess að það taki þig 20 ár að greiða lánið upp að fullu tekur það tæp 16 ár. Með það í huga og þínar aðstæður getur þú því velt fyrir þér hvort vegur þyngra, 14.000 kr. aukið svigrúm á mánuði eða að vera skuldlaus fjórum árum á undan áætlun. Fjármálin með Birni Berg Lánamál Fjármál heimilisins Tengdar fréttir Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Fimmtug kona spyr: „Ég fékk arf upp á nokkra tugi milljóna. Hvort er betra fyrir mig að borga upp húsnæðislánið mitt sem er verðtryggt eða að setja peningana á sparireikning og nota vexti til að borga aukalega inn á lánið? Þetta er það há upphæð að mánaðarlegir vextir geta „coverað“ verðtrygginguna.“ 31. júlí 2026 07:03 Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? 27 ára kona spyr: „Mér finnst eins og allir í kringum mig séu að skipta greiðslum fyrir alls konar kaup (t.d. síma, tölvur og heimilistæki). Alltaf verið að tala um hversu hentugt þetta er og ódýrt. „Miklu betra að borga einhverja þúsundkalla á mánuði heldur en 200K núna“ sagði einn við mig. En er þetta ekki bara lán? Þessi sami einstaklingur er í raun að borga hátt í 70K samtals á mánuði fyrir allar þessar greiðslur. Er þetta virkilega jafn hentugt og lítið mál eins og margir virðast halda?“ 14. júlí 2026 07:01 Má gefa börnunum sínum peninga? 71 árs kona spyr: „Má maður gefa börnunum sínum 2 milljónir og hvernig er það skattlagt?“ 30. júní 2026 07:02 Klára námslánið eða greiða inn á húsnæðislánið? 33 ára karlmaður spyr: „Góðan daginn. Er með námslán og eftirstöðvar á því eru nú um 814.000 kr. Afborganir af því eru rúmar 29.000 á mánuði. Ég get borgað inn á það aukalega hátt upp í 200.000 á mánuði og gengið frá láninu innan árs. Hversu skynsamt er fyrir mig að reyna að borga það upp sem fyrst og geta nýtt þessa upphæð inn á húsnæðislánið mitt eða halda áfram að borga af því og reyna frekar að greiða aukalega inn á húsnæðislánið? Þetta eru einu tvö lánin sem ég er með. Er einnig með smá upphæð í fjárfestingar.“ 16. júní 2026 07:03 Mest lesið Mátti rifta kaupum á bíl sem bilaði þremur dögum eftir kaup Neytendur Tollasamkomulag Bandaríkjanna og Kanada út um þúfur Viðskipti erlent Landsbankinn hækkar líka vexti Viðskipti innlent Geti munað allt að tvö þúsund krónum á matarkörfunni eftir verslunum Neytendur Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent JYSK opnar nýtt og glæsilegt vöruhús í Mosfellsbæ Samstarf „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Samstarf Jón Þór fer til Samherja Viðskipti innlent „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Viðskipti innlent Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Sjá meira
Þetta líst mér á. Mér leiðist seint að benda á kosti þess að greiða inn á húsnæðislán, en með því færðu ljómandi góða ávöxtun, skattfrjálsa og án áhættu. En það er þó rétt sem þig grunar, það þarf að huga að ýmsu. Björn Berg fjármálaráðgjafi svarar spurningum frá lesendum Vísis um allt sem tengist fjármálum, fjárfestingum og öðru. Uppgreiðslugjald Flestum bankalánum sem bera fasta vexti fylgir uppgreiðslugjald, ef meira en ein milljón króna er greidd inn á lánið á ári. Gjaldið getur þó aldrei verið meira en 0,2% fyrir hvert heilt ár sem eftir lifir af fastvaxtatímabilinu. Undantekningar eru viss eldri lán hjá HMS, sem þarf að skoða vel og vandlega. Ef uppgreiðslugjald er á þínu láni er kostnaðurinn þó væntanlega svo lítill að hann hefur tæplega áhrif á fyrirætlanir þínar. Heppilegasta tímasetningin Hvenær nákvæmlega er þá best að ráðast í innborgunina? Stutta svarið er núna strax. Með því eru það aðeins 15,5 milljónir króna sem bera vexti fram að næsta gjalddaga í stað sautján milljóna og það er að sjálfsögðu ódýrara fyrir þig. En hvers vegna er þá varla hægt að líta við á Facebook án þess að sjá fólk býsnast yfir því hve mikil mistök það hafi verið að greiða inn á lánið, þar sem „allt fór í vexti“? Það er vegna misskilnings um hvernig rukkað er af lánum. Þegar greiðsluseðillinn berst þér ert þú beðin um að greiða hluta af eftirstöðvum lánsins sem og vexti. Vextina þarf að sjálfsögðu að greiða, en þeir bætast daglega við kostnað lánsins. Sé greitt inn á lán áður en kemur að gjalddaga þess getur verið að hluti greiðslunnar fari í að greiða þá vexti sem safnast hafa frá síðasta gjalddaga og afgangurinn á höfuðstól lánsins. Það getur þá valdið því að greiðsluseðillinn sem næst berst inn um lúguna verður lægri sem því nemur, vegna þess að vextir hafa þegar verið greiddir. Það er ekkert neikvætt við það, innborgunin nýttist sannarlega. Nýlegar breytingar á lánakerfum hafa þó gert það að verkum að í dag fer slík umframgreiðsla alfarið á höfuðstól, óháð tímasetningu. Ef þú vilt halda áfram að greiða inn á lánið, til dæmis með reglubundnum hætti, gæti þó verið þægilegast fyrir þig að greiða viðbótargreiðsluna á gjalddaga, eftir að gengið hefur verið frá mánaðarlegri greiðslu lánsins. Þá getur þú verið viss um að hver króna fari alfarið á höfuðstól lánsins. Hvað gerist ef þú heldur greiðslubyrðinni óbreyttri? Nú veit ég ekki hvort lánið þitt sé verðtryggt eða óverðtryggt, með jöfnum afborgunum eða jöfnum greiðslum, né hver kjörin eru og lengd lánsins. Ef við gefum okkur þó að um tuttugu ára óverðtryggt jafngreiðslulán sé að ræða, sem ber 9,35% vexti, er áhugavert að líta á áhrif þess að 1,5 milljónir króna séu greiddar inn á lánið. Í dag væri mánaðarleg greiðslubyrði slíks láns 156.921 kr. Eftir innborgunina verður greiðslubyrðin 143.085 kr. Þú hefur lækkað greiðslubyrði lánsins um tæp 14.000 kr. En hvað ef þú heldur óbreyttri greiðslubyrði og heldur áfram að greiða 156.921 í hverjum mánuði, óháð því hvað þú verður beðin um að greiða? Þá gerist nefnilega nokkuð ansi merkilegt. Í stað þess að það taki þig 20 ár að greiða lánið upp að fullu tekur það tæp 16 ár. Með það í huga og þínar aðstæður getur þú því velt fyrir þér hvort vegur þyngra, 14.000 kr. aukið svigrúm á mánuði eða að vera skuldlaus fjórum árum á undan áætlun.
Björn Berg fjármálaráðgjafi svarar spurningum frá lesendum Vísis um allt sem tengist fjármálum, fjárfestingum og öðru.
Fjármálin með Birni Berg Lánamál Fjármál heimilisins Tengdar fréttir Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Fimmtug kona spyr: „Ég fékk arf upp á nokkra tugi milljóna. Hvort er betra fyrir mig að borga upp húsnæðislánið mitt sem er verðtryggt eða að setja peningana á sparireikning og nota vexti til að borga aukalega inn á lánið? Þetta er það há upphæð að mánaðarlegir vextir geta „coverað“ verðtrygginguna.“ 31. júlí 2026 07:03 Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? 27 ára kona spyr: „Mér finnst eins og allir í kringum mig séu að skipta greiðslum fyrir alls konar kaup (t.d. síma, tölvur og heimilistæki). Alltaf verið að tala um hversu hentugt þetta er og ódýrt. „Miklu betra að borga einhverja þúsundkalla á mánuði heldur en 200K núna“ sagði einn við mig. En er þetta ekki bara lán? Þessi sami einstaklingur er í raun að borga hátt í 70K samtals á mánuði fyrir allar þessar greiðslur. Er þetta virkilega jafn hentugt og lítið mál eins og margir virðast halda?“ 14. júlí 2026 07:01 Má gefa börnunum sínum peninga? 71 árs kona spyr: „Má maður gefa börnunum sínum 2 milljónir og hvernig er það skattlagt?“ 30. júní 2026 07:02 Klára námslánið eða greiða inn á húsnæðislánið? 33 ára karlmaður spyr: „Góðan daginn. Er með námslán og eftirstöðvar á því eru nú um 814.000 kr. Afborganir af því eru rúmar 29.000 á mánuði. Ég get borgað inn á það aukalega hátt upp í 200.000 á mánuði og gengið frá láninu innan árs. Hversu skynsamt er fyrir mig að reyna að borga það upp sem fyrst og geta nýtt þessa upphæð inn á húsnæðislánið mitt eða halda áfram að borga af því og reyna frekar að greiða aukalega inn á húsnæðislánið? Þetta eru einu tvö lánin sem ég er með. Er einnig með smá upphæð í fjárfestingar.“ 16. júní 2026 07:03 Mest lesið Mátti rifta kaupum á bíl sem bilaði þremur dögum eftir kaup Neytendur Tollasamkomulag Bandaríkjanna og Kanada út um þúfur Viðskipti erlent Landsbankinn hækkar líka vexti Viðskipti innlent Geti munað allt að tvö þúsund krónum á matarkörfunni eftir verslunum Neytendur Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent JYSK opnar nýtt og glæsilegt vöruhús í Mosfellsbæ Samstarf „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Samstarf Jón Þór fer til Samherja Viðskipti innlent „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Viðskipti innlent Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Sjá meira
Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Fimmtug kona spyr: „Ég fékk arf upp á nokkra tugi milljóna. Hvort er betra fyrir mig að borga upp húsnæðislánið mitt sem er verðtryggt eða að setja peningana á sparireikning og nota vexti til að borga aukalega inn á lánið? Þetta er það há upphæð að mánaðarlegir vextir geta „coverað“ verðtrygginguna.“ 31. júlí 2026 07:03
Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? 27 ára kona spyr: „Mér finnst eins og allir í kringum mig séu að skipta greiðslum fyrir alls konar kaup (t.d. síma, tölvur og heimilistæki). Alltaf verið að tala um hversu hentugt þetta er og ódýrt. „Miklu betra að borga einhverja þúsundkalla á mánuði heldur en 200K núna“ sagði einn við mig. En er þetta ekki bara lán? Þessi sami einstaklingur er í raun að borga hátt í 70K samtals á mánuði fyrir allar þessar greiðslur. Er þetta virkilega jafn hentugt og lítið mál eins og margir virðast halda?“ 14. júlí 2026 07:01
Má gefa börnunum sínum peninga? 71 árs kona spyr: „Má maður gefa börnunum sínum 2 milljónir og hvernig er það skattlagt?“ 30. júní 2026 07:02
Klára námslánið eða greiða inn á húsnæðislánið? 33 ára karlmaður spyr: „Góðan daginn. Er með námslán og eftirstöðvar á því eru nú um 814.000 kr. Afborganir af því eru rúmar 29.000 á mánuði. Ég get borgað inn á það aukalega hátt upp í 200.000 á mánuði og gengið frá láninu innan árs. Hversu skynsamt er fyrir mig að reyna að borga það upp sem fyrst og geta nýtt þessa upphæð inn á húsnæðislánið mitt eða halda áfram að borga af því og reyna frekar að greiða aukalega inn á húsnæðislánið? Þetta eru einu tvö lánin sem ég er með. Er einnig með smá upphæð í fjárfestingar.“ 16. júní 2026 07:03