Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham Valur Páll Eiríksson skrifar 5. ágúst 2026 09:30 Tottenham er sagt hafa áhuga á Balogun, sem er uppalinn hjá Arsenal. John Dorton/USSF/Getty Images Tottenham leitar framherja fyrir komandi átök í ensku úrvalsdeildinni. Liðið er sagt hafa augastað á fyrrum leikmanni Arsenal.
Folarin Balogun varð í sumar einn umtalaðasti fótboltamaður heims þegar leikbanni hans á miðju heimsmeistaramóti var aflétt með sögulegum hætti, og í bága við allar reglur FIFA. Donald Trump Bandaríkjaforseti hreykti sér af því að hafa hringt í Gianni Infantino, forseta FIFA, vegna leikbannsins og hafi þar af leiðandi fengið því hnekkt. Balogun mátti því leika með Bandaríkjunum í leik við Belgíu á HM en bandaríska liðið tapaði þeim leik. Balogun sagði eftir leikinn að umræðan vegna bannsins hafi haft slæm áhrif á hann, en hann skoraði alls þrjú mörk í fjórum leikjum fyrir bandaríska landsliðið á mótinu. Balogun er 25 ára gamall og leikur fyrir Mónakó í Frakklandi. Hann er orðaður við Tottenham á Englandi, en Balogun ólst upp í unglingastarfi erkifjenda Spurs í Arsenal. Tottenham er sagt leita framherja fyrir komandi leiktíð í ensku úrvalsdeildinni og er einnig orðað við Nicolas Jackson, framherja Chelsea, sem er að líkindum á förum. Tottenham hefur Brasilíumanninn Richarlison og enska framherjann Dominic Solanke fyrir í hópi liðsins en óvíst er hvort Richarlison verði áfram leikmaður liðsins, þar sem hann hefur verið orðaður við brottför.
Tottenham Hotspur Enski boltinn Tengdar fréttir Balogun viðurkennir að inngrip Trumps hafi haft truflandi áhrif Folarin Balogun, einn umtalaðasti maður heimsmeistaramótsins í fótbolta, segir að allt fjaðrafokið í kringum leikbann hans sem var aflétt hafi haft truflandi áhrif á undirbúning bandaríska landsliðsins fyrir leikinn gegn Belgíu í sextán liða úrslitum. 15. júlí 2026 12:30 Mest lesið Man. City - Bournemouth | Haaland mættur með nýja hárgreiðslu Enski boltinn Haaland snoðaði sig fyrir fyrsta leik í enska Enski boltinn KSÍ og Norðurlöndin lýsa yfir vantrausti á Infantino Fótbolti Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn Körfubolti Myndasyrpa frá Reykjavíkurmaraþoninu: Bleyta, bætingar og bros Sport Sjáðu hvernig Hull og Brentford fóru með United og Spurs og öll mörkin úr enska Enski boltinn Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Sigurmark á lokamínútunni í fyrsta leiknum í endurkomu Mourinhos Fótbolti Vesen hjá Palace: Mateta heldur því fram að lokaár samningsins sé ógilt Enski boltinn Harkalegur árekstur hjá Verstappen á heimaslóðum Formúla 1 Fleiri fréttir Newcastle - Liverpool | Rauði herinn heimsækir skjórana Algjört hrun í fyrsta leik hjá Aston Villa Endurkomusigur hjá City í fyrsta leik Watkins utan hóps en Emery vill ekki tjá sig Haaland snoðaði sig fyrir fyrsta leik í enska „Ég mun reyna að finna nýjan Rodri“ Sjáðu hvernig Hull og Brentford fóru með United og Spurs og öll mörkin úr enska Vesen hjá Palace: Mateta heldur því fram að lokaár samningsins sé ógilt De Zerbi ósáttur: „Vorum ekki tilbúnir að berjast“ Brentford tók Tottenham í karphúsið Góð byrjun hjá strákunum hans Moyes Glæsimark kom ekki í veg fyrir nýliðasigur Tryggði sigur beint úr aukaspyrnu undir blálokin „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Curtis Jones farinn til Inter Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Konsa orðinn leikmaður Arsenal Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Liverpool fær höfnun frá Brighton Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Marcus Rashford búinn að fá nóg Sjá meira
Balogun viðurkennir að inngrip Trumps hafi haft truflandi áhrif Folarin Balogun, einn umtalaðasti maður heimsmeistaramótsins í fótbolta, segir að allt fjaðrafokið í kringum leikbann hans sem var aflétt hafi haft truflandi áhrif á undirbúning bandaríska landsliðsins fyrir leikinn gegn Belgíu í sextán liða úrslitum. 15. júlí 2026 12:30