Smá munur á Qarabag og Lengjudeildinni Gunnar Egill Daníelsson skrifar 30. júlí 2026 20:42 Þórður Gunnar Hafþórssin skoraði í 1-1 jafntefli við RFS þegar Evrópuævintýri Vestra lauk. Vestri Þórður Gunnar Hafþórsson skoraði fyrsta mark Vestra í Evrópukeppni á heimavelli, eða eiginlegum heimavelli, í sögunni þegar Vestfjarðaliðið gerði 1-1 jafntefli við RFS frá Lettlandi á Þróttarvelli í Laugardal í 2. umferð undankeppni Sambandsdeildarinnar í fótbolta í kvöld.
Um síðari leik liðanna var að ræða og er Vestri úr leik eftir að hafa tapað einvíginu samanlagt 2-5. „Mér fannst þetta vera hörkuleikur, 50/50 leikur og hefði alveg getað dottið öður hvoru megin. Ég er hrikalega stoltur af liðinu og fannst við standa okkur virkilega vel í dag,“ sagði Þórður Gunnar í samtali við Vísi eftir leik. Hann kom Vestra í forystu á 12. mínútu og kveikti þannig vonarneista um endurkomu. „Það kom klárlega trú í mannskapinn, maður fann það alveg. Við ætluðum að halda áfram að keyra á þá. Það kom virkilega mikil trú, við höfðum trú allan tímann á því að geta hleypt þessu í leik,“ sagði Þórður Gunnar. Evrópuævintýrið verið gríðarleg lífsreynsla Vestri mætti Qarabag í 1. umferð undankeppni Evrópudeildarinnar og svo RFS í 2. umferð Sambandsdeildarinnar. Alls lék liðið því fjóra Evrópuleiki, þá fyrstu í sögu félagsins. „Það hefur verið gríðarleg lífsreynsla og hrikalega skemmtilegt. Ferðalög og að spila á þessum völlum þarna úti. Umgjörðin og líka umgjörðin hérna heima, stuðningurinn og allt við þetta var geggjað. Þetta var virkilega skemmtilegt,“ sagði hann um Evrópuævintýri Vestfirðinga. Vestri er ríkjandi bikarmeistari en leikur í Lengjudeildinni eftir fall úr Bestu deildinni á síðasta tímabili. „Það er smá munur á þessu eins og leikurinn á móti Qarabag úti. Þá voru 20.000 manns á vellinum og þau sungu og öskruðu allan leikinn. En núna fer fullur fókus á Lengjudeildina og við ætlum að koma okkur upp um deild þar,“ sagði Þórður Gunnar Hafþórsson í samtali við Vísi.
Sambandsdeild Evrópu Vestri Mest lesið Endurkomusigur hjá City í fyrsta leik Enski boltinn Haaland snoðaði sig fyrir fyrsta leik í enska Enski boltinn KSÍ og Norðurlöndin lýsa yfir vantrausti á Infantino Fótbolti Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn Körfubolti Myndasyrpa frá Reykjavíkurmaraþoninu: Bleyta, bætingar og bros Sport Sjáðu hvernig Hull og Brentford fóru með United og Spurs og öll mörkin úr enska Enski boltinn Newcastle - Liverpool | Rauði herinn heimsækir skjórana Enski boltinn Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Algjört hrun í fyrsta leik hjá Aston Villa Enski boltinn Harkalegur árekstur hjá Verstappen á heimaslóðum Formúla 1 Fleiri fréttir Ísak skoraði og klúðraði víti í íslenskum nýliðaslag Newcastle - Liverpool | Rauði herinn heimsækir skjórana Brynjólfur hélt áfram að skora en allt hrundi á hinum endanum Algjört hrun í fyrsta leik hjá Aston Villa Thelma gaf stoðsendingu í hefndarsigri Endurkomusigur hjá City í fyrsta leik Watkins utan hóps en Emery vill ekki tjá sig Brynjar og Daníel byrja tímabilið í brekku Haaland snoðaði sig fyrir fyrsta leik í enska „Ég mun reyna að finna nýjan Rodri“ KSÍ og Norðurlöndin lýsa yfir vantrausti á Infantino Messi skoraði en Miami heldur áfram að tapa Gamli Primark-starfsmaðurinn sem var nálægt því að skemma fyrir Mourinho Sjáðu hvernig Hull og Brentford fóru með United og Spurs og öll mörkin úr enska Vesen hjá Palace: Mateta heldur því fram að lokaár samningsins sé ógilt Sigurmark á lokamínútunni í fyrsta leiknum í endurkomu Mourinhos De Bruyne gerði gæfumuninn gegn Mikael Agli og félögum De Zerbi ósáttur: „Vorum ekki tilbúnir að berjast“ Hinrik kominn á blað með nýja liðinu og okkar menn í Tyrklandi fögnuðu sigrum Sara skoraði tvö og Haukar fóru upp í annað sætið Brentford tók Tottenham í karphúsið Njarðvíkingar stöðvuðu sigurgöngu Húsvíkinga Ísfirðingar geta andað léttar Andri heldur áfram að skora fyrir Blackburn Góð byrjun hjá strákunum hans Moyes Glæsimark kom ekki í veg fyrir nýliðasigur HK vann enn einn heimaleikinn og Fylkir flengdi Grindavík Tryggði sigur beint úr aukaspyrnu undir blálokin Stefán Teitur með tvennu í þægilegum bikarsigri Infantino beðinn um að mæta ekki á barnamót sem FIFA fjármagnar Sjá meira