Fulltrúar KSÍ á leið á neyðarfund: „Of snemmt að taka afstöðu“ Valur Páll Eiríksson skrifar 29. júlí 2026 11:27 Þorvaldur Örlygsson, formaður Knattspyrnusambands Íslands, fer á neyðarfund UEFA á morgun. Vísir/Einar Þorvaldur Örlygsson, formaður KSÍ, fer á boðaðan neyðarfund Knattspyrnusambands Evrópu, UEFA, á morgun. Fundurinn er vegna áætlana FIFA um að bjóða utanaðkomandi fjárfestum að innviðum sambandsins.
UEFA boðaði til neyðarfundar eftir að fregnir bárust af áformum FIFA. Landssambönd stakra ríkja hafa gagnrýnt starfshætti FIFA í málinu þar sem ákvarðanir um málið hafi verið teknar án alls samráðs við hlutaðeigandi aðila. UEFA sendi frá sér harðorða yfirlýsingu þar sem plön FIFA eru sögð fara yfir öll mörk, að fótboltinn sé ekki til sölu. Þá fylgi áætlunum FIFA ekkert gagnsæi um það hverjir hagnist á téðri sölu á innviðum Alþjóðasambandsins, en samkvæmt fréttum erlendra miðla mun Gianni Infantino, forseti FIFA, sjálfur hagnast mjög á viðskiptunum. Frekari gróðakrafa kemur frá utanaðkomandi áhættufjárfestum og leiða má að því líkur að fyrirhuguðu verkefni fylgi einnig þensla á stórmótum FIFA. Þau verði stærri og fari oftar fram. Það mun að líkindum þrengja að hefðbundnum deildum alþjóðaboltans og álfukeppnum, líkt og Meistaradeild Evrópu, á dagatali fótboltans sem þegar er við þenslumörk þegar kemur að álagi á leikmenn. Ekki nægar upplýsingar liggja fyrir til að taka afstöðu Þorvaldur Örlygsson, formaður KSÍ, fer á boðaðan fund UEFA á morgun fyrir hönd KSÍ. Í svari við skriflegri fyrirspurn Vísis segir hann of litlar upplýsingar liggja fyrir til að sambandið taki afstöðu. „UEFA hefur boðað til fundar um málið. Það er rafrænn fundur með öllum aðildarlöndum UEFA á fimmtudag,“ segir í skriflegu svari formannsins við fyrirspurn Vísis. Þorvaldur Örlygsson, formaður KSÍ, ásamt Gianni Infantino, forseta FIFA.Mynd/KSÍ „Akkúrat núna liggja ekki fyrir nægar upplýsingar um útfærslu á hugmynd FIFA og því of snemmt að segja til um nokkra afstöðu. FIFA mun væntanlega kynna málið vel fyrir samböndunum, því eins og hefur komið fram er framkvæmdin og útfærslan háð samþykki aðildarlanda FIFA,“ segir Þorvaldur sem var einnig spurður um samráð við Norðurlönd. Lise Klaveness, formaður norska knattspyrnusambandsins, hefur verið hvað háværust í opinberri gagnrýni á Gianni Infantino, forseta FIFA, en aðrir formenn sambanda Norðurlanda heldur haldið sig til hlés. Þorvaldur segir Norðurlöndin ekki hafa rætt málið sérstaklega, enn sem komið er. „Norðurlöndin hafa alla jafna gott samráð um ýmsa hluti en við höfum þó ekki rætt þetta mál sérstaklega enn sem komið er, enda takmarkaðar upplýsingar komið fram,“ segir Þorvaldur sem segir stjórn KSÍ þá ekki hafa fundað sérstaklega um málið, en hafi verið upplýst um stöðuna. „Stjórn KSÍ hefur verið upplýst um málið en í sjálfu sér ekki meira en fram hefur komið m.a. í fjölmiðlum og því og snemmt að segja nokkuð til um afstöðu KSÍ, eins og við gerum ráð fyrir að eigi við um flest önnur knattspyrnusambönd. En auðvitað verður málið rætt á stjórnarfundi þegar þar að kemur,“ „Við eigum von á meiri upplýsingum bæði frá UEFA og FIFA, sem við munum kynna okkur vel,“ segir í skriflegu svari Þorvaldar að endingu. Hvað má lesa út úr svörunum? Fulltrúar KSÍ hafa stigið varlega til jarðar þegar kemur að umræðu um stjórnarhætti alþjóðasambanda fótboltans. Líklegt má þykja að KSÍ taki afstöðu með UEFA eftir fund morgundagsins en köldu hefur andað milli Aleksander Ceferin, forseta UEFA, og Infantino. Alexander Ceferin, forseti UEFA, ásamt Þorvaldi Örlygssyni.KSÍ Ceferin neitaði til að mynda að mæta á úrslitaleik HM til að mótmæla umdeildri afléttingu leikbanns Folarin Balogun, leikmanns Bandaríkjanna, sem virðist hafa verið fyrir tilstilli Donalds Trump og Infantino. Fram kom í fréttum í gær að aðildarsambönd að FIFA, þar á meðal KSÍ, geti fengið 20 milljónir dala fyrir þáttöku í verkefninu. Samkvæmt bréfi Infantino til allra aðildarsambanda er sú upphæð hins vegar nær 40 milljónum dala, um fimm milljaðar króna, í „einskiptis fé“ (e. one-off capital). Það bjóðist þó aðeins þeim þjóðum sem taki þátt í verkefninu. Að Infantino lofi því jaðrar við atkvæðakaup en erfitt er fyrir sambönd víðs vegar um heim að ætla að segja nei við slíku gylliboði. KSÍ hefur þurft að fara í niðurskurð á undanförnum árum og óhætt að segja að slík fjárhæð myndi skipta sköpum fyrir sambandið. Spurningin er hver fórnarkostnaðurinn af því sé, að FIFA selji frá sér eignir sem öll sambönd heimsins hagnist nú þegar á. Um 80 prósent árlegs fjármagns KSÍ kemur frá FIFA og UEFA og skiljanlegt að erfitt sé að styggja svo sterkan bakhjarl. Nú þegar hefur eitt evrópskt samband lýst yfir stuðningi við áform FIFA. David Trunda, forseti knattspyrnusambands Tékklands, styður tillögu Infantino heilshugar. Menn hjá KSÍ hafa ekki langan tíma til að ákveða sig. Samkvæmt áðurnefndu bréfi Infantino þurfa aðildarsamböndin að ákveða fyrir 19. september hvort þau taki við gylliboði hans til að taka þátt í verkefninu. Vísir væntir frekari svara eftir fund morgundagsins. Fréttin hefur verið uppfærð.
KSÍ FIFA UEFA Deilur um Gianni Infantino Mest lesið Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Íslenski boltinn Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Enski boltinn Wirtz sé búinn að missa trúna Enski boltinn Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Körfubolti Bakgarðsáskorunin: Soðnar kartöflur besta nestið Sport Þekkir ekkert annað en pressu Körfubolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Fótbolti Fleiri fréttir Ceferin ætlar sér að stýra UEFA áfram Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Ber enn örið: „Eitur í æðum mér“ Wirtz sé búinn að missa trúna Varaforsetinn mildar afstöðu sína gagnvart Infantino Eins og óendurgoldin ást „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Býður sig fram á móti Infantino Tarik framlengir við Víking Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Fagnar stiginu: „Ég var að fíla Eistana“ „Bara lét okkur heyra það í hálfleik“ „Svo lengi sem ég get hlaupið vil ég spila fyrir Ísland“ Sjá meira